Skessuhorn


Skessuhorn - 29.01.2020, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 29.01.2020, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 29. JANúAR 202018 Ný pökkunarvél fyrir Prins póló súkkulaðikex var sett saman í Fjöl- iðjunni á Akranesi á fimmtudaginn. Starfsmenn Fjöliðunnar hafa í mörg ár endurpakkað Prins pólói. Í maí á síðasta ári, þegar bruni kom upp í húsnæði Fjöliðjunnar, skemmdist pökkunarvélin sem hafði verið not- uð. En öflugir starfsmenn Fjölið- unnar lögðu þó ekki árar í bát held- ur hafa síðan þá handpakkað Prins pólóinu. Nú er ný vel komin og á aðeins eftir að tengja og svo verð- ur hægt að byrja að nota hana til að pakka hinu þjóðlega pólska súkk- ulaðikexi. Um er að ræða nýrri út- færslu af vélinni sem brann en sú gamla var orðin tveggja áratuga gömul. arg Björgunarbáturinn Björg í Rifi er á næstu dögum á leiðinni í nýtt verk- efni. Báturinn er búinn að liggja við bryggju í Rifi frá síðasta hausti þeg- ar ný Björg kom í flota Lífsbjarg- ar. Til stóð að selja gömlu Björg- ina, en það hefur ekki gengið eftir og er þessa dagana unnið að því að standsetja hana og gera klára fyrir nýtt verkefni. Verður bátnum siglt vestur á firði, nánar tiltekið til Flat- eyrar þar sem hann verður bund- inn við bryggju í vetur. Verkefni þetta kemur til vegna þeirrar stöðu sem upp kom eftir snjóflóðin fyrr í mánuðinum. Enginn bátur er leng- ur til staðar á Flateyri sem hægt er að nota sem örugga flóttaleið ef til þess kemur að þjóðvegurinn lokist og rýma þurfi byggðarlagið. Vegna þessa hefur forsætisráðherra orðið við ósk Slysavarnafélagsins Lands- bjargar og mun styrkja félagið um hálfa milljón króna til þessa verk- efnis. Það eru félagar í björgunar- sveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ sem vinna að því að standsetja skip- ið og munu sigla því til Flateyrar. þa Bókasafn Akraness hefur tekið upp þá nýbreytni á nýju ári að opna safn- ið klukkan 10:00 virka daga og býð- ur þá upp á „Opnun án þjónustu“. Klukkan 12 er safnið svo opnað með fullri þjónustu. „Á síðasta ári var starfsemi safnsins endurskoð- uð og hugað að framtíð þess. Efnt var til vinnufundar undir stjórn sér- fræðinga frá Advanina með starfs- fólki bókasafnsins, menningar- og safnanefnd, forstöðumanni menn- ingar- og safnanefndar og fulltrúum íbúa á Akranesi. Unnið var út frá hugmyndafræði sem nefnist Design Thinking, en þar gegna notend- ur lykilhlutverki, hvort sem það er í þróun þjónustu eða innviða,“ seg- ir Halldóra Jónsdóttir bæjarbóka- vörður. „Eitt af því sem kom fram á vinnufundinum með íbúum var að safnið mætti opna fyrr að deginum og almennt mætti afgreiðslutíminn verða mun rýmri en hann hafði ver- ið.“ Halldóra segir að rýmri opnun sé ekki að öllu leyti nýlunda á Bóka- safni Akraness, því allt frá því að safnið tók til starfa á Dalbraut 1 árið 2009, hefur það verið opið að morgni fyrir ýmsa hópa, svo sem frá leikskólum bæjarins og grunn- skólum. Foreldramorgnar eru á fimmtudögum og greiningarfundir Ljósmyndasafnsins eru á miðviku- dögum. „Með rýmri opnun bjóðum við árrisula gesti velkomna í safnið að skoða bækur, tímarit og dagblöð. Fá sér kaffisopa, nota þráðlaust net, komast í tölvu, taka bækur að láni í sjálfsafgreiðslu og skila. Í safninu er ein sjálfsafgreiðsluvél og einnig leit- artölva þar sem gestir geta flett upp safnkosti. Í lessalnum Svöfusal verð- ur áfram opnað klukkan 8:00 virka daga og er hann opinn til kl. 18:00. Gengið er inn að norðanverðu. Allir námsmenn hafa aðgang að Svöfusal meðan safnið er opið. Auk þess geta námsmenn sótt um aðgangskort og haft ótakmarkað aðgengi að Svöfu- sal. Fjöldatakmörkun er þó að þessu aðgengi, að sögn Halldóru. „Fyrirkomulag af þessu tagi, Opnun án þjónustu, þekkist víða annars staðar á Norðurlöndum og eins hefur það reynst vel í Bóka- safni Kópavogs, Bókasafni Mos- fellsbæjar og Amtsbókasafninu á Akureyri. Þessi breyting hefur þeg- ar tekið gildi og hvet ég fólk hvatt til að kynna sér fjölbreytta starf- semi bókasafnsins. Verið velkomin á Bókasafn Akraness,“ segir Hall- dóra Jónsdóttir. mm Miðvikudaginn 22. janúar síðastlið- inn lagði varðskipið Þór að bryggju í Grundarfirði til að taka olíu, sækja vistir og hafa áhafnarskipti. Skip- ið hafði þá verið á Vestfjörðum þar sem snjóflóðin féllu fyrr í mán- uðinum. Skipið hélt svo aftur til Vestfjarða með nýja áhöfn og hlað- ið vistum. tfk Íbúar á Snæfellsnesi hafa ekki farið varhluta af gulum veðurviðvörun- um frekar en aðrir landsmenn und- anfarnar vikur. Margt hefur kom- ið uppá í veðurhamnum, en sem dæmi um það má nefna að í síðustu viku stíflaðist rör á vegi 54 vestan við Grundarfjörð. Flæddi vatn yfir veginn en mikil úrkoma var þennan dag og mjög hvasst. Þurfti að kalla til gröfu til að fara niður í fjöru og hreinsa frá rörinu. Í Ólafsvík losn- aði þak af húsi sem festa þurfti nið- ur. Bugsvatnið fyrir innan Ólafsvík flæddi allt að því yfir veginn og því greinilegt að vatnavextir voru mjög miklir ásamt því að klakabunkar flutu um. þa Varðskipið Þór sótti vistir og nýja áhöfn Unnið hörðum höndum við að handpakka Prins pólói. Fjöliðjan fær nýja pökkunarvél Hér er verið að koma vélinni fyrir. Ljósm. Áslaug Þorsteinsdóttir. Fjöliðjan er komin með nýja pökkunarvél fyrir Prins póló. Gömlu Björginni verður siglt til Flateyrar Festa þurfti þak á húsi í Ólafsvík. Vetrarríki og gular viðvaranir Svipmynd frá foreldramorgnum sem eru á fimmtudögum. Rýmri opnun Bókasafns Akraness

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.