Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 30

Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202030 SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA Tiltekt í skógarreitum Skógræktarfélags Eyfirðinga hefur staðið yfir í allt sumar: Ekki tekst að ljúka verkinu þó mikið hafi áunnist „Við tileinkum afmælisárið spor­ göngu fólkinu sem bjó til skógar ­ auðlindina sem við njótum góðs af. Það er gaman að líta yfir far­ inn veg og í rauninni er það stór ­ merkilegt að hafa í farteskinu 90 ára skógræktarsögu,“ segir Ingólfur Jóhanns son, framkvæmdastjóri Skóg ræktarfélags Eyfirð inga, en félagið fagnar í ár 90 ára afmæli sínu. Það er elst starfandi skóg ræktar­ félaga hér á landi. Félagið var stofnað þann 11. maí 1930 og fyrstu verk­ efni fólust í að girða af skógarleifar í Eyjafirði, nánar tiltekið í Garðsárgili og í Leyningshólum. Á báðum þess­ um stöðum standa nú ræktarlegir yndisskógar „og gaman að sjá að þetta brölt frumherjanna var ekki til einskis unnið,“ segir hann. Afmælisáform blásin af Veisluhöld í tilefni þessa merkisáfanga í sögu félagsins bíða betri tíma en á vordögum, fyrir daga kórónuveiru, var búið að skipuleggja heilmikla dagskrá frá vori og fram eftir ári með fræðslufundum ýmiss konar og öðrum viðburðum. Slíkt var allt blásið af eftir að heimsfaraldur braust út og segir Ingólfur það vissulega leitt en við því ekkert að gera. „Það hefur heilmikið vatn til sjávar runnið frá því félagið hóf að planta til nýrra skóga,“ segir hann, en félagið er nú með alls 11 skógarreiti sem það ýmist á eða hefur umsjón með. Þeirra frægastur er Kjarnaskógur sem stendur við Akureyri, mikil útivistarparadís og lýðheilsumiðstöð. Rekstur og viðhald útivistarsvæða Stunduð var umfangsmikil plöntu­ framleiðsla um árabil, margar trjá­ tegundir og kvæmi voru ræktuð á vegum SE og byggðist upp mikil þekking bæði varðandi ræktunar­ tækni og ekki síður hvaða efniviður hentar til ræktunar á okkar harðbýla landi. „Það voru upplýsingar sem ekki lágu fyrir þegar Íslendingar hófu að klæða landið á ný fyrir miðja síðustu öld og það eru upplýsingar sem við sem stundum skógrækt núna byggjum okkar starf á,“ segir Ingólfur. Nú snúist dagleg störf á vegum félagsins, auk þess að miðla þekkingu og vera sýnileg í samfé­ laginu, að stórum hluta um rekstur og viðhald útivistarsvæða í skógum félagsins sem hundruð þúsunda gesta heimsækja árlega og nýta sér góða veðrið í skóginum til heilsubótar á sál og líkama. Ingólfur bendir á að útivist, lýðheilsa, ferðamennska, kolefnis­ binding og ýmislegt fleira séu allt skógarafurðir ekki síður en hin hefð­ bundna timburauðlind, „og við reyn­ um að rækta þær allar“. Vinnufúsar hendur lyftu grettistaki Skógarreitir í Eyjafirði komu mjög illa undan sérlega snjóþungum vetri og hefur nánast allt sumarið farið í til­ tekt. Mikið hefur áunnist en verkinu er ekki lokið. „Það er ljóst að okkur endist ekki árið til að ljúka tiltekt eftir brot og braml vetrarins. En við höfum unnið hörðum höndum að því verk­ efni og vissulega komin vel áleiðis,“ segir Ingólfur. Aðgangur að vinnuafli var nú í sumar auðveldari en oft áður, stór hópur ungs fólks, frá 18 til 27 ára, allt að 40 manns, hafi unnið sumarlangt hjá félaginu og í raun lyft grettistaki í hirðingu bæði í Kjarnaskógi og fleiri skógum félagsins. „Án þeirra vinnufúsu handa væri ástandið mun verra,“ segir hann. Ungmennin komu til starfa með stuðningi bæði frá ríki og sveitarfélagi. Grisjunarvinna hefur staðið yfir undanfarnar vikur í hinum ýmsu reitum félagsins, m.a. í Kjarnaskógi, Vaðlareit, Leyn­ ings hólum og Hánefsstöðum í Svarfaðardal. Nýta efni upp í kostnað „Við höfum verið að saga brotin og beygluð tré, hreinsa og snyrta af miklu kappi frá því í vor,“ segir Ingólfur en dagleg störf snúist að miklu leyti um viðhald skóganna. Reynt er að nýta allt efni sem til fellur, það fer í kurl, eldivið og borðvið til að hafa upp í kostnað við vinnuna, en hann er sérlega mikill nú í sumar.“ Ingólfur segir að æ fleiri leggi leið sína í skógana. „Við tökum eftir því að gestir nýta skógana í auknum mæli nú á þessum viðsjárverðu veirutímum, það dylst engum að aðsóknin fer ört vaxandi og hér njóta fjölmargir útivistar alla daga,“ segir Ingólfur. Hann segir ekki óvarlegt að áætla að um 3–400 þúsund manns komi í Kjarnaskóg árlega. Reisa nýtt geymsluhús Ingólfur segir að hreinsunarstörf hafi einkennt sumarið og á meðan hafi Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga. Frá vinstri eru David Joseph Dowling, írskur skógfræðingur sem starfar hjá Skógræktarfélagi Eyfirðinga, Sigurður Hólm Sæmundsson, slökkviliðsmaður, skógbóndi og stjórnarmaður í SE, Bergsveinn Þórsson, skógfræðingur hjá Skógræktinni og stjórnarmaður í SE, og Jóhannes Helgason, önnur kynslóð skógarhöggsmanna í Kjarnaskógi, en foreldrar hans, Beate og Helgi í Kristnesi, hafa bæði höggvið skóg fyrir félagið. Myndir / Skógræktarfélag Eyfirðinga Samson B. Harðarson, sjálfboðaliði að störfum fyrir SE í Vaðlareit. Liðinn vetur var óvenju snjóþung- ur og erfiður. Þannig var umhorfs í Kjarnaskógi eftir norðanáhlaup. Þau eru ófá handtökin sem unnin hafa verið í sumar við að hreinsa brotin og brömluð tré út úr eyfirskum skógum. Ekki óalgeng sjón, brotin grenitré voru á víð og dreif um skógana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.