Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 50

Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202050 LESENDABÁS Enn um endurheimt votlendis Alllengi hefur mig undrað hve margir bændur virðast vera and­ snúnir eða feimnir við að ræða endurheimt votlendis. Í máli þeirra margra kraumar einhver niðurbæld gremja sem fær útrás þegar minnst er á deiglendi. Þar kunna að vera á ferð gömul um ­ mæli forvera um mýrar og dý sem vaða þurfti í mjóalegg til að komast leiðar sinnar. Jarðir gátu verið nytjarýrar vegna bleytu og búskapur allur torsóttur. Þetta er liðin tíð. Enginn hefur í hyggju að þrengja kosti búskapar eða umgengni í heimahögum. Skipulegar athuganir segja okkur að stærsti hluti framræsts mýrlendis er ekki og hefur aldrei verið nýttur til hefðbundins búskapar. Við vitum hins vegar öll, sem búið höfum bæði við mýrlendi og framræst heimalönd, að landið þornar og rýrnar; mýrargróðurinn hverfur, eftir verður fábreyttari gróður. Við framræsingu fær súr- efni greiðari leið til örvera sem brjóta niður lífræn efni í jarðveg- inum og kolefnið gufar þá upp í and rúmsloftið í formi koldíxýðs og veldur gróðurhúsaáhrifum. Með þornuninni skreppur landið saman. Það lækkar á hverjum áratug, verð- ur einhæfara og rýrara; geymist illa til framtíðarnota. Í mýrarjarðvegi hefur vatnið bundið kolefni safn- ast fyrir á löngum tíma með því að mýraróður vinnur koltvísýring úr andrúmsloftinu og bindur kolefnið í jarðvegi og skilar súrefni til and- rúmsloftsins.Þetta kolefni er undir- staðan í mó sem notaður var áður fyrr sem eldiviður hér á landi. Því eldri sem koltvísýringurinn er þeim mun betra eldsneyti er hann. Það er fyrrnefnd losun koltvísýrings sem við, sem vinnum að endurheimt votlendis,viljum draga úr eða stöðva. Ekkert land er endurheimt án skrif- legs samkomulags milli landeigenda og Votlendissjóðs. Hve mikil er losunin? Vísindamenn hérlendis sem erlendis hafa um áratugaskeið mælt þessa losun koltvísýrings. Samkvæmt þeirra kokkabókum er hún staðreynd. Um það er ekki deilt af af þeim sem rannsakað hafa málið. Deila má um og mistúlka hve mikil hún sé. Við sem berjumst fyrir endurheimt votlendis erum sannfærð um að mælitækin gefi áreiðanlegri niðurstöðu en ágiskun eða getgátur. Svo langt hefur tækninni fleygt fram að erlendis er farið að fylgjast með losun koltvísýrings frá næmum tækjum í drónum og jafnvel gervihnöttum. Það styttist í að hægt verði að fá niðurstöður þaðan um losun íslensku mýranna.Fullyrðingar um að losun koltvísýrings frá framræstu landi sé bull og vitleysa, án þess að bera við nokkur haldbær rök, minnir á staðhæfingar um að jörðin sé flöt. Sumt framræst land er vissulega orðið svo rýrt að losun þaðan er lítil. Vísindafólk Landgræðslunnar leiðbeinir og upplýsir Votlendissjóð um ástand á hverjum stað, áður en ákveðið er hvort fýsilegt sé að endurheimta votlendið. Nú þegar hefur verið hætt við að moka ofan í skurði sem Landgræðslan segir litla sem enga losun eiga sér stað. Þetta rannsóknafólk hefur í samstarfi við erlenda vísindamenn komist að niðurstöðum sem standa munu sem slíkar, þar til nákvæmari útkoma er fundin. Við höfum ekkert áreiðanlegra við að styðjast. Skynsemi eða glópska? Á upphafsdögum veðurfræðinnar hérlendis voru margir sem fussuðu og sveiuðu, ef þeim þótti spáin vera þeim óhagstæð eða út í hött. Þegar svokallað kvótakerfi var sett á fót á grundvelli rannsókna fiskifræðinga, sem birtu svartar skýrslur um ástand fiskistofna, voru fréttamenn ekki í neinum erfiðleikum með að finna sjómenn sem sögðu frá mikilli fiskgengd víðs vegar á miðum. Heima í Reykjahverfi var ekki gefið mikið fyrir umsagnir fræðimanna að sunnan um hnignandi gróðurfar í sumarhögum á Reykjaheiðinni og rofabörð þar sögð hafa staðið þar óbreytt í manna minnum. Það er fremur regla en hitt að nýjar og áður óþekktar, stundum óþægilegar, vísindalegar niðurstöður sem fjalla um nærumhverfi okkar og lífsbjörg séu véfengdar. Sem viti bornar manneskjur verðum við þó að skilja á milli huglægra, oft hagsmuna- og menningartengdra fullyrðinga, kenningasmíða eða niðurstöðu rannsókna. Magn losunar Meðal þeirra niðurstaðna sem dregnar eru títt í efa, er það magn koltvísýrings sem vísindamenn segja framræst land losa. Að baki þeirra efasemda liggur engin rannsókn eða skipuleg skráning. Engar rökheldar tölur. Margir yrðu glaðir, ef það reyndist við frek- ari rannsóknir eða mælingar úr gervihnöttum, allt vera tóm tjara. Vísindamenn hefðu farið offari. Votlendissjóður framkvæmir engar sjálfstæðar rannsóknir. Allt sem við styðjumst við er fengið frá vísindafólki Landgræðslunnar og LbhÍ. Eins og gengur og gerist finnast fræðimenn sem ekki deila að öllu leyti meginniðurstöðum stærstum hluta kollega sinna. Lifa verður við það því við höfum ekk- ert trúverðugra við að styðjast. Samkvæmt fyrrnefndu er meðal losun af framræstu landi hérlendis liðlega 19 tonn af C02 á hektara. Það er sagður vera stærsti einstaki orsakavaldur losunar gróðurhúsa- lofttegunda hérlendis. Hvað hangir á spýtunni fyrir bændur? Samfélagsvitund er nauðsynlegur eiginleiki allra sem nú lifa, hvort heldur í sveitum eða bæjum, landeigenda sem landleysingja. Sú mikla lífseyðandi loftslagsvá sem vofir yfir, leyfir engum að vera hlutlausum eða skeytingarlitlum. Margir þeirra sem afneita CO2 losun framræsts mýrlendis eru einnig í hópi þeirra sem segja yfirvofandi loftslagsvá vera bull, en það ræðum við ekki frekar hér. Það hefur verið rætt í þaula á vegum allra helstu alþjóðasamtaka heims. Í reglum Votlendissjóðs er skýrt ákvæði þess efnis að eftir átta ár frá ofanímokstri öðlast landeigendur ráðstöfunarrétt þeirra stöðvunareininga koltvísýr- ings sem, skv. mælingum er afleiðing endurheimtar á landi þeirra. Þetta verður dýrmæt eign sem auðveldar bændum að kolefnisjafna búskap sinn. Hver borgar brúsann? Nokkrir fréttamanna sem fjallað hafa um Votlendissjóð og framkvæmdir hans, hafa látið í ljós vissa örvinglan yfir því að skattfé sé notað í þeim tilgangi að endurheimta votlendi. Sjóðurinn hefur ekki borið gæfu til þess enn að njóta þess að greiða framkvæmdakostnað með peningum skattborgaranna eins og það heitir á pólitísku tungutaki. Votlendissjóður er fjármagnaður af sjálfsaflafé sem kemur frá samfélagslega ábyrgum einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum. Sá stuðningur er þakkarverður og ber þess vott að fjölmargir vilja leggja málefninu lið. Samfélagslega ber það vott um félagsþroska, að gera Votlendissjóði það kleift að fjármagna þetta mikla samfélagsverkefni með frjálsum framlögum. Þröstur Ólafsson, form. stjórnar Votlendissjóðs Ein af fimm grenndarstöðvum í Grímsnes- og Grafningshreppi, en þessi er staðsett á Borg. Terra sér um sorphirðu í sveitarfélaginu og hefur gert frá árinu 2009. Mynd / MHH Grímsnes- og Grafningshreppur: Flokkun sorps til fyrirmyndar Þeir sem eiga leið um eða hafa átt leið um Grímsnes­ og Grafningshrepp hafa eflaust orðið varir við grenndarstöðvar á fimm stöðum í sveitarfélaginu. Þar er hægt að losa sig við heimilisúr­ gang í sjö flokka; plast, pappa, málm, gler, lífrænt, blandað og skilaskyldar umbúðir, allt dýr­ mæt efni sem Terra kemur síðan í endurvinnslu. Við flokkun sorps í sveitar- félaginu er notast við fjögurra tunnu kerfi. Á hverju heimili er ein tunna fyrir almennt sorp, ein tunna fyrir lífrænan úrgang, ein fyrir pappa og pappír og ein tunna fyrir plast. Í Grímsnes- og Grafningshreppi búa um 500 íbúar sem allir flokka í lágmark fjóra flokka á heimilum sínum, lífrænan úrgang í brúntunnu, plast í græntunnu, pappa í blátunnu og annan úrgang í grátunnu. Á sama tíma hafa íbúar verið hvattir til að safna málmum og gleri á heimilum sínum og fara með í þar til gerð ílát á Gámastöðina Seyðishólum. Í sveitarfélaginu eru einnig tæplega 3.000 frístundahús. /MHH Kaupfélag Vestur-Húnvetninga: Björn Líndal Traustason verður nýr kaupfélagsstjóri Stjórn Kaupfélags Vestur­ Hún vetninga hefur ráðið Björn Líndal Traustason í starf kaup­ félags stjóra Kaupfélags Vestur­ Húnvetninga. Hann hefur síðustu ár starfað sem sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Stranda- manna, en gegndi áður stöðu fram- kvæmdastjóra Samtaka sveitar félaga á Norðurlandi vestra. Björn Líndal er með Bs gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og M.A. gráðu í skattarétti og reikningsskil- um frá Háskóla Íslands. Björn tekur við starfinu af Reimari Marteinssyni þann 1. nóvember næstkomandi. Þetta kemur m.a. fram í tilkynningu frá stjórn kaupfélagsins. 111 ára kaupfélag „Kaupfélagið hefur starfað frá árinu 1909 og er því 111 ára. Það eru ekki mörg fyrirtæki á Íslandi sem eiga svo langa og farsæla sögu. Ég tek við afar góðu búi þar sem Kaupfélagið hefur eflst mjög á undanförnum árum undir öruggri stjórn Reimars, sem stýrt hefur félaginu síðustu 13 ár. Ég finn til mikillar ábyrgðar og auðmýktar gagnvart starfinu og sögu Kaup félagsins,“ segir Björn Líndal. Sex félagsdeildir Kaupfélag Vestur-Húnvetninga var stofnað 20. mars 1909 á Hvamms- tanga og er félagssvæði þess Húna þing vestra. Félagsmenn eru 383 talsins í 6 félagsdeildum. Á Hvammstanga rekur félagið kjör- búð, byggingarvöruverslun og bú- vöruverslun. Félagið á einnig og rekur fasteignir sem hýsa m.a. starf- semi Selaseturs Íslands, Fæðingar- orlofssjóðs og veitinga staðarins Sjávarborgar. Kaupfélagið á einnig hlut í nokkrum fyrirtækjum, m.a. 50% hlut í sláturhúsinu á Hvammstanga. Rekstrartekjur kaupfélagsins á árinu 2019 námu um 864 milljónum og var hagnaður af rekstri samstæð- unnar rúmar 50 milljónir króna. Heildareignir félagsins námu um 728 milljónum króna og var eigið fé í árslok 2019 um 518 milljónir króna. Fjöldi ársverka hjá félaginu eru 19. /MHH LÍF&STARF Björn Líndal Traustason, nýr kaup- félagsstjóri Vestur Húnvetninga, sem tekur við starfinu 1. nóvember næstkomandi. Mynd / Einkasafn Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is 21,9% fólks á höfuðborgarsvæðinu les Bændablaðið 21,9% 41,9% á landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðinu 29,2% landsmanna lesa Bændablaðið Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2019. Aldur 12-80 ára. Hvar auglýsir þú? LÍF&STARF Frístundabóndi í Borgarfirði hannar eyrnabönd með bæjarnúmerum: Geta hentað vel til að auðkenna fólk sem má fara í réttir í haust Dóróthea Guðrún Sigvaldadóttir, frístundabóndi í Borgarfirði, brá á það ráð á dögunum að láta útbúa eyrnabönd með bæjarnúmerum sem hefur verið vel tekið. Böndin þykja henta afskaplega vel til að auðkenna fólk sem má fara í réttir í haust. Hún aug- lýsir eyrna- böndin á Facebook og hafa við- brögðin ekki látið á sér standa. – Hægt er að hafa samband við Dórótheu í síma 893-2928 eða á hafrafell@gmail. com til að panta hjá henni eyrna- bönd. /ehg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.