Bændablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. ágúst 202050
LESENDABÁS
Enn um endurheimt votlendis
Alllengi hefur mig undrað hve
margir bændur virðast vera and
snúnir eða feimnir við að ræða
endurheimt votlendis. Í máli
þeirra margra kraumar einhver
niðurbæld gremja sem fær útrás
þegar minnst er á deiglendi. Þar
kunna að vera á ferð gömul um
mæli forvera um mýrar og dý
sem vaða þurfti í mjóalegg til að
komast leiðar sinnar. Jarðir gátu
verið nytjarýrar vegna bleytu og
búskapur allur torsóttur. Þetta er
liðin tíð. Enginn hefur í hyggju
að þrengja kosti búskapar eða
umgengni í heimahögum.
Skipulegar athuganir segja
okkur að stærsti hluti framræsts
mýrlendis er ekki og hefur aldrei
verið nýttur til hefðbundins
búskapar. Við vitum hins vegar öll,
sem búið höfum bæði við mýrlendi
og framræst heimalönd, að landið
þornar og rýrnar; mýrargróðurinn
hverfur, eftir verður fábreyttari
gróður. Við framræsingu fær súr-
efni greiðari leið til örvera sem
brjóta niður lífræn efni í jarðveg-
inum og kolefnið gufar þá upp í
and rúmsloftið í formi koldíxýðs
og veldur gróðurhúsaáhrifum. Með
þornuninni skreppur landið saman.
Það lækkar á hverjum áratug, verð-
ur einhæfara og rýrara; geymist illa
til framtíðarnota. Í mýrarjarðvegi
hefur vatnið bundið kolefni safn-
ast fyrir á löngum tíma með því að
mýraróður vinnur koltvísýring úr
andrúmsloftinu og bindur kolefnið
í jarðvegi og skilar súrefni til and-
rúmsloftsins.Þetta kolefni er undir-
staðan í mó sem notaður var áður
fyrr sem eldiviður hér á landi. Því
eldri sem koltvísýringurinn er þeim
mun betra eldsneyti er hann. Það er
fyrrnefnd losun koltvísýrings sem
við, sem vinnum að endurheimt
votlendis,viljum draga úr eða stöðva.
Ekkert land er endurheimt án skrif-
legs samkomulags milli landeigenda
og Votlendissjóðs.
Hve mikil er losunin?
Vísindamenn hérlendis sem
erlendis hafa um áratugaskeið
mælt þessa losun koltvísýrings.
Samkvæmt þeirra kokkabókum
er hún staðreynd. Um það er ekki
deilt af af þeim sem rannsakað hafa
málið. Deila má um og mistúlka
hve mikil hún sé. Við sem berjumst
fyrir endurheimt votlendis erum
sannfærð um að mælitækin gefi
áreiðanlegri niðurstöðu en ágiskun
eða getgátur. Svo langt hefur
tækninni fleygt fram að erlendis
er farið að fylgjast með losun
koltvísýrings frá næmum tækjum
í drónum og jafnvel gervihnöttum.
Það styttist í að hægt verði að fá
niðurstöður þaðan um losun íslensku
mýranna.Fullyrðingar um að losun
koltvísýrings frá framræstu landi
sé bull og vitleysa, án þess að bera
við nokkur haldbær rök, minnir á
staðhæfingar um að jörðin sé flöt.
Sumt framræst land er vissulega
orðið svo rýrt að losun þaðan er
lítil. Vísindafólk Landgræðslunnar
leiðbeinir og upplýsir Votlendissjóð
um ástand á hverjum stað, áður
en ákveðið er hvort fýsilegt sé að
endurheimta votlendið. Nú þegar
hefur verið hætt við að moka
ofan í skurði sem Landgræðslan
segir litla sem enga losun eiga sér
stað. Þetta rannsóknafólk hefur í
samstarfi við erlenda vísindamenn
komist að niðurstöðum sem standa
munu sem slíkar, þar til nákvæmari
útkoma er fundin. Við höfum ekkert
áreiðanlegra við að styðjast.
Skynsemi eða glópska?
Á upphafsdögum veðurfræðinnar
hérlendis voru margir sem fussuðu
og sveiuðu, ef þeim þótti spáin vera
þeim óhagstæð eða út í hött. Þegar
svokallað kvótakerfi var sett á fót á
grundvelli rannsókna fiskifræðinga,
sem birtu svartar skýrslur um ástand
fiskistofna, voru fréttamenn ekki í
neinum erfiðleikum með að finna
sjómenn sem sögðu frá mikilli
fiskgengd víðs vegar á miðum.
Heima í Reykjahverfi var ekki gefið
mikið fyrir umsagnir fræðimanna
að sunnan um hnignandi gróðurfar
í sumarhögum á Reykjaheiðinni
og rofabörð þar sögð hafa staðið
þar óbreytt í manna minnum. Það
er fremur regla en hitt að nýjar og
áður óþekktar, stundum óþægilegar,
vísindalegar niðurstöður sem fjalla
um nærumhverfi okkar og lífsbjörg
séu véfengdar. Sem viti bornar
manneskjur verðum við þó að skilja
á milli huglægra, oft hagsmuna- og
menningartengdra fullyrðinga,
kenningasmíða eða niðurstöðu
rannsókna.
Magn losunar
Meðal þeirra niðurstaðna sem
dregnar eru títt í efa, er það magn
koltvísýrings sem vísindamenn
segja framræst land losa. Að baki
þeirra efasemda liggur engin
rannsókn eða skipuleg skráning.
Engar rökheldar tölur. Margir yrðu
glaðir, ef það reyndist við frek-
ari rannsóknir eða mælingar úr
gervihnöttum, allt vera tóm tjara.
Vísindamenn hefðu farið offari.
Votlendissjóður framkvæmir
engar sjálfstæðar rannsóknir. Allt
sem við styðjumst við er fengið
frá vísindafólki Landgræðslunnar
og LbhÍ. Eins og gengur og gerist
finnast fræðimenn sem ekki deila
að öllu leyti meginniðurstöðum
stærstum hluta kollega sinna. Lifa
verður við það því við höfum ekk-
ert trúverðugra við að styðjast.
Samkvæmt fyrrnefndu er meðal
losun af framræstu landi hérlendis
liðlega 19 tonn af C02 á hektara.
Það er sagður vera stærsti einstaki
orsakavaldur losunar gróðurhúsa-
lofttegunda hérlendis.
Hvað hangir á spýtunni
fyrir bændur?
Samfélagsvitund er nauðsynlegur
eiginleiki allra sem nú lifa, hvort
heldur í sveitum eða bæjum,
landeigenda sem landleysingja. Sú
mikla lífseyðandi loftslagsvá sem
vofir yfir, leyfir engum að vera
hlutlausum eða skeytingarlitlum.
Margir þeirra sem afneita CO2 losun
framræsts mýrlendis eru einnig í
hópi þeirra sem segja yfirvofandi
loftslagsvá vera bull, en það ræðum
við ekki frekar hér. Það hefur verið
rætt í þaula á vegum allra helstu
alþjóðasamtaka heims. Í reglum
Votlendissjóðs er skýrt ákvæði þess
efnis að eftir átta ár frá ofanímokstri
öðlast landeigendur ráðstöfunarrétt
þeirra stöðvunareininga koltvísýr-
ings sem, skv. mælingum er afleiðing
endurheimtar á landi þeirra. Þetta
verður dýrmæt eign sem auðveldar
bændum að kolefnisjafna búskap
sinn.
Hver borgar brúsann?
Nokkrir fréttamanna sem fjallað hafa
um Votlendissjóð og framkvæmdir
hans, hafa látið í ljós vissa örvinglan
yfir því að skattfé sé notað í þeim
tilgangi að endurheimta votlendi.
Sjóðurinn hefur ekki borið gæfu
til þess enn að njóta þess að greiða
framkvæmdakostnað með peningum
skattborgaranna eins og það heitir á
pólitísku tungutaki. Votlendissjóður
er fjármagnaður af sjálfsaflafé sem
kemur frá samfélagslega ábyrgum
einstaklingum, félagasamtökum
og fyrirtækjum. Sá stuðningur er
þakkarverður og ber þess vott að
fjölmargir vilja leggja málefninu
lið. Samfélagslega ber það vott um
félagsþroska, að gera Votlendissjóði
það kleift að fjármagna þetta mikla
samfélagsverkefni með frjálsum
framlögum.
Þröstur Ólafsson,
form. stjórnar Votlendissjóðs
Ein af fimm grenndarstöðvum í Grímsnes- og Grafningshreppi, en þessi er
staðsett á Borg. Terra sér um sorphirðu í sveitarfélaginu og hefur gert frá
árinu 2009. Mynd / MHH
Grímsnes- og Grafningshreppur:
Flokkun sorps til fyrirmyndar
Þeir sem eiga leið um eða
hafa átt leið um Grímsnes og
Grafningshrepp hafa eflaust orðið
varir við grenndarstöðvar á fimm
stöðum í sveitarfélaginu. Þar er
hægt að losa sig við heimilisúr
gang í sjö flokka; plast, pappa,
málm, gler, lífrænt, blandað og
skilaskyldar umbúðir, allt dýr
mæt efni sem Terra kemur síðan
í endurvinnslu.
Við flokkun sorps í sveitar-
félaginu er notast við fjögurra
tunnu kerfi. Á hverju heimili er
ein tunna fyrir almennt sorp,
ein tunna fyrir lífrænan úrgang,
ein fyrir pappa og pappír og ein
tunna fyrir plast. Í Grímsnes- og
Grafningshreppi búa um 500
íbúar sem allir flokka í lágmark
fjóra flokka á heimilum sínum,
lífrænan úrgang í brúntunnu, plast
í græntunnu, pappa í blátunnu og
annan úrgang í grátunnu. Á sama
tíma hafa íbúar verið hvattir til að
safna málmum og gleri á heimilum
sínum og fara með í þar til gerð
ílát á Gámastöðina Seyðishólum. Í
sveitarfélaginu eru einnig tæplega
3.000 frístundahús. /MHH
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga:
Björn Líndal Traustason verður
nýr kaupfélagsstjóri
Stjórn Kaupfélags Vestur
Hún vetninga hefur ráðið Björn
Líndal Traustason í starf kaup
félags stjóra Kaupfélags Vestur
Húnvetninga.
Hann hefur síðustu ár starfað sem
sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Stranda-
manna, en gegndi áður stöðu fram-
kvæmdastjóra Samtaka sveitar félaga
á Norðurlandi vestra. Björn Líndal
er með Bs gráðu í viðskiptalögfræði
frá Háskólanum á Bifröst og M.A.
gráðu í skattarétti og reikningsskil-
um frá Háskóla Íslands. Björn tekur
við starfinu af Reimari Marteinssyni
þann 1. nóvember næstkomandi.
Þetta kemur m.a. fram í tilkynningu
frá stjórn kaupfélagsins.
111 ára kaupfélag
„Kaupfélagið hefur starfað frá árinu
1909 og er því 111 ára. Það eru ekki
mörg fyrirtæki á Íslandi sem eiga svo
langa og farsæla sögu. Ég tek við
afar góðu búi þar sem Kaupfélagið
hefur eflst mjög á undanförnum
árum undir öruggri stjórn Reimars,
sem stýrt hefur félaginu síðustu 13
ár. Ég finn til mikillar ábyrgðar og
auðmýktar gagnvart starfinu og sögu
Kaup félagsins,“ segir Björn Líndal.
Sex félagsdeildir
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga var
stofnað 20. mars 1909 á Hvamms-
tanga og er félagssvæði þess
Húna þing vestra. Félagsmenn eru
383 talsins í 6 félagsdeildum. Á
Hvammstanga rekur félagið kjör-
búð, byggingarvöruverslun og bú-
vöruverslun. Félagið á einnig og
rekur fasteignir sem hýsa m.a. starf-
semi Selaseturs Íslands, Fæðingar-
orlofssjóðs og veitinga staðarins
Sjávarborgar. Kaupfélagið á einnig
hlut í nokkrum fyrirtækjum, m.a. 50%
hlut í sláturhúsinu á Hvammstanga.
Rekstrartekjur kaupfélagsins á árinu
2019 námu um 864 milljónum og
var hagnaður af rekstri samstæð-
unnar rúmar 50 milljónir króna.
Heildareignir félagsins námu um
728 milljónum króna og var eigið fé
í árslok 2019 um 518 milljónir króna.
Fjöldi ársverka hjá félaginu eru 19.
/MHH
LÍF&STARF
Björn Líndal Traustason, nýr kaup-
félagsstjóri Vestur Húnvetninga,
sem tekur við starfinu 1. nóvember
næstkomandi. Mynd / Einkasafn
Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
21,9% fólks
á höfuðborgarsvæðinu
les Bændablaðið
21,9% 41,9%
á landsbyggðinni
á höfuðborgarsvæðinu
29,2%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2019. Aldur 12-80 ára.
Hvar auglýsir þú?
LÍF&STARF
Frístundabóndi í Borgarfirði hannar eyrnabönd með bæjarnúmerum:
Geta hentað vel til að auðkenna
fólk sem má fara í réttir í haust
Dóróthea Guðrún Sigvaldadóttir,
frístundabóndi í Borgarfirði, brá
á það ráð á dögunum að láta útbúa
eyrnabönd með bæjarnúmerum
sem hefur verið vel tekið. Böndin
þykja henta afskaplega vel til
að auðkenna fólk sem má fara
í réttir í
haust.
Hún aug-
lýsir eyrna-
böndin á
Facebook
og hafa við-
brögðin ekki
látið á sér standa. – Hægt er að
hafa samband við Dórótheu í síma
893-2928 eða á hafrafell@gmail.
com til að panta hjá henni eyrna-
bönd. /ehg