Morgunblaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe í aðalhlutverki. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI AÐRAR MYNDIR Í SÝNINGU: * Tröll 2 (ísl. tal) * Hvolpasveitin (ísl. tal) * My Spy * The Postcard Killings * The Secret : Dare to dream FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS Nýjasta Meistaraverk Christopher Nolan SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Frábær ný teiknimynd fyrir alla fjölskylduna.★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ The Guardian The Times The Telegraph TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég hitti Atla í Breiðdalsvík ísumar, í glæsilegu kaup-félagi þess staðar. Hann var þar á stjákli að gera nákvæmlega sömu hluti og feður á ferðalagi gera. Kaupa sælgæti handa krökkunum, virða fyrir sér matseðilinn, spyrja hvort reitt sé fram kakó. Ég sá hann álengdar, en ég hef aldrei talað við manninn, þrátt fyrir að hafa sinnt tónlistarskrifum í rúm tuttugu ár. Ákvað því að kynna mig (og taldi lík- legra en ekki að hann myndi kannast við mig, nafnið a.m.k.). Það gerði hann og kveðjan var kumpánleg, ekki nema mátulega vandræðaleg. Vinsamleg fyrst og fremst. Brosið var breitt og hlýlegt. Ég man þegar Stuðkomp- aníið vann Músíktilraunir árið 1987. Var þrettán ára. Og fílaði „Jólastund“ (og geri enn). Maður vissi svo af Atla næstu árin. Hann slóst í lið með Sálinni hans Jóns míns og Síðan skein sól m.a. og var eitt af þessum nöfnum sem voru áberandi í íslenskum dægurtónlist- arheimi. Það var svo liðið aðeins inn í fyrsta áratuginn þegar ég fer að Með fast land undir fótum Tónskáld Músíkin á hug og hjarta Atla Örvarssonar og hefur alltaf átt. heyra nafnið hans aftur nokkuð títt en þá í tengslum við tónlist fyrir sjónvarp og kvikmyndir. Fyrsta kvikmyndaverkefnið var Stuart Little 3 og snemma fór hann að vinna með Hans Zimmer sem er eitt allra þekktasta kvikmynda- tónskáld heims í dag. Myndir eins og Edge of Se- venteen og The Hitman‘s Body- guard hafa verið tónsettar af Atla og stærð verkefnanna vex, hægt en bít- andi. Ég nefni líka í þessu samhengi undurfagra tónlist hans við Hrúta og vinnu hans við jólaplötu systur hans, Hildu Örvarsdóttur. Bæði verkefnin til mikillar prýði þó ólík séu. Nú, svo sá hann einnig um Evróvisjónmynd Will Ferrell. Og allt þetta sem ég hef verið að nefna hefur reyndar verið unnið eft- ir að Atli flutti aftur til Akureyrar, heimabæjar síns, árið 2014. Atli tal- ar um að bærinn hefði farið að seiða hann til sín á ný, bærinn sem hann vildi ekkert frekar en að komast frá í eina tíð. Þar hefur hann nú komið sér haganlega fyrir í eigin hljóðveri og sinnir verkefnum af ýmsum toga. Þar á meðal hefur hann nú lokið sinni fyrstu eiginlegu sólóplötu, You are here, sem ég ætla að hugsa að- eins um hérna ásamt þér, lesandi góður. Það er ekki sérstaklega algengt, þegar fólk er komið djúpt í feril sem kvikmyndatónskáld, að það finni hjá sér þörf til að stíga út fyrir það svið og búa til frístandandi plötur. Jó- hann heitinn Jóhannsson gerði þetta að vísu. Hann hafði reyndar byrjað ferilinn þannig og kvikmyndatónlist- in fór að taka meira pláss með ár- unum getum við sagt. Atli er að því leytinu til að fara öfugum megin inn. Mér varð hugsað til Jóhanns þegar ég hlustaði á þessa plötu Atla, ekki endilega vegna líkinda í formi, held- ur varð mér hugsað til þessarar þarfar sem Jóhann hafði, að gera „sitt“, ekki bara það sem kvik- myndamiðillinn kallar eftir, því að tónspor kvikmynda tekur alltaf eðli- lega mið af þeirri stemningu sem á skjánum er. Ég sá svo eftir á, þegar ég var að rannsaka fyrir þessa grein, að Atli nefnir Jóhann í viðtali við Bergstein Sigurðsson um þessa plötu, að sviplegt fráfallið hafi ein- mitt ýtt honum út í það að klára þetta verk. You are here er vissu- lega kvikmyndaleg en það er ekki al- veg svo einfalt. „Húm“, hlutar eitt og tvö, keyrir hana af stað, höfug verk og nokk voldug. „Dropar“ (hvar Gyða Valtýsdóttir leikur á selló) er sorgarþrungið, hægt lag og umlykj- andi – eiginlega stillt. Platan öll situr einhvern veginn á milli þessara póla. Tónlistin á það til að vera stór en oggulítil líka. Síðasta lagið, „Solid Ground“, unnið með Viktori Orra Árnasyni, er naumhyggjulegt, hæg píanóslög í tóminu, ris er svo gefið til kynna frekar en að það eigi sér stað og svo rennur lagið snoturlega út í sandinn. Með reisn. Atli hefur talað um að hann hafi fundið innri frið heimkominn. Það er nóg að hlýða á þessa plötu til að sannfærast um það. » Platan situr ein-hvern veginn á milli þessara póla. Tónlistin á það til að vera stór en oggulítil líka. Fyrsta sólóplata Atla Örvarssonar, kvik- myndatónskálds með meiru, kallast You Are Here. Þar sveigir hann að vissu leyti frá viðteknum venjum kvikmyndatónlist- arformsins þó að sá starfsvettvangur hans móti verkið sumpart líka. Spænsk-íslensk heimildarmynd, Humarsúpa eða Lobster soup á ensku, verður sýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíð- inni í San Sebast- ian á Spáni nú í haust en hún er ein af þeim virt- ari sem haldnar eru árlega í heiminum og flokkast sem A-hátíð. Myndin verður sýnd í flokkinum Zinemira sem helgaður er kvikmyndum á alþjóðlegum markaði og eru framleiddar að ein- hverju leyti í Baskalandi. Humar- súpa var framleidd af íslenska fyrir- tækinu Axfilms ehf. og spænsku fyrirtækjunum SUICAfilms og REC Grabaketa Estudioa og var hún tek- in upp með hléum frá nóvember 2017 fram í maí á þessu ári. Umfjöllunarefni myndarinnar er mannlífið á veitingahúsinu Bryggj- unni í Grindavík og spænskir höf- undar myndarinnar eru Pepe And- reu og Rafa Molés. Þeir komu fyrst til Íslands árið 2006, heilluðust af mannlífinu á Bryggjunni og sneru svo aftur 11 árum síðar. Hafði þá orðið mikil breyting á íslensku sam- félagi og þær breytingar leiddu til þess að þeir ákvaðu að gera heimild- armynd um staðinn og mannlífið. Ólafur Rögnvaldsson hjá Axfilms sér um íslenskan hluta framleiðslunnar og kom hann einnig að handritsgerð og annaðist hluta kvikmyndatöku. Humarsúpa sýnd í San Sebastian Ólafur Rögnvaldsson Fegurðin býr í litunum nefnist sýning sem opn- uð var í fyrradag í Galleríi Gróttu. Guðrún Gunn- arsdóttir sýnir þar verk sín sem sögð eru óður til lífsins og hug- mynd um bjart- ari og litfegurri tíma. Guðrún hefur unnið að frjálsri myndsköpun og textílhönn- un frá árinu 1976. Um bjartari og litfegurri tíma Guðrún Gunnarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.