Morgunblaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Búið er að selja fjórar íbúðir af tíu í
endurgerðum Hólmgarði en hann var
lengi verslunarkjarni fyrir Bústaða-
hverfið í Reykjavík.
Hólmgarður er norðan við Bú-
staðaveg og steinsnar frá versl-
unarmiðstöðinni Grímsbæ.
Norðan við Hólmgarð er gróinn al-
menningsgarður með leiktækjum og
norðan hans er leikskólinn Jörfi og
Breiðagerðisskóli.
Framkvæmdirnar hófust vorið
2019 og lauk þeim í sumar.
Við endurgerðina var byggt ofan á
húsið nema hvað miðhlutinn er nokk-
urn veginn í upprunalegri hæð.
Húsið hefur verið klætt með álplöt-
um og hafa allar íbúðir svalir til suð-
urs sem snúa að inngarði.
Á jarðhæð er atvinnuhúsnæði.
Skátasamband Reykjavíkur hefur
þegar komið sér fyrir í einu rýminu
en það hefur verið í Hólmgarði í ára-
tugi. Við húsið er fjöldi bílastæða.
Milli 60 og 70 hópar í skoðun
Fyrirtækið Jakobssynir ehf. fer
með endurgerð Hólmgarðs. Það er í
eigu Ásgeirs Arnar Hlöðverssonar
byggingarverkfræðings.
Ásgeir Örn segir tvær íbúðir seldar
og tvo kaupsamninga hafa verið und-
irritaða. Milli 60 og 70 hópar hafi
komið í opið hús síðan salan hófst um
miðjan ágúst.
Áhuginn sé mikill og íbúðirnar hafi
selst á hér um bil uppsettu verði.
Alls tíu íbúðir eru í húsinu og eru
þær allar á tveimur hæðum.
Íbúðirnar eru tveggja til fjögurra
herbergja og eru tvö baðherbergi sitt
á hvorri hæð í átta íbúðum af tíu. Þær
eru 83-122 fermetrar. Steinplötur eru
bæði á eldhúsum og böðum, svört
mött tæki, undirfelldir vaskar og sér-
smíðaðar innréttingar.
Selja á ásettu verði
„Við reiknum með að selja íbúð-
irnar í Hólmgarði á ásettu verði og að
allt verði selt innan tveggja mánaða,“
segir Ásgeir Örn.
Hinn dæmigerði kaupandi sé mið-
aldra og vilja minnka við sig.
„Hann vill hins vegar sömu gæði
og í einbýlishúsinu hvað varðar
innanstokksmuni. Það reyndist rétt
mat hjá okkur að vera með til dæmis
steinplötur, undirfellda vaska, vand-
aðar flísar, ítölsk blöndunartæki og
raftæki eins og algengt er í einbýlis-
húsum. Það er fátítt að boðið sé upp á
þessi gæði í nýjum íbúðum,“ segir Ás-
geir Örn um fráganginn. Innrétt-
ingar eru svartar og mattar og fylgja
fataskápar með svefnherbergjum.
Byggir líka í Starmýri
Settur hefur verið upp söluvefur
fyrir verkefnið.
Ásgeir Örn undirbýr jafnframt
byggingu 18 íbúða í endurgerðu húsi í
Starmýri 2 í Reykjavík.
Líkt og í Hólmgarði verður þar
byggt ofan á atvinnuhúsnæði.
Grunnurinn tekinn 1950
Hinn 25. nóvember 1990 fjallaði
Guðrún Guðlaugsdóttir, þá blaða-
maður á Morgunblaðinu, um sögu
Hólmgarðs í opnugrein í blaðinu. Til-
efni greinarinnar var að „óvenjumikið
af verslunarhúsnæði“ væri þá til sölu
eða leigu í Reykjavík. Þar á meðal
Hólmgarður. Segir þar að grunnur
hússins hafi verið tekinn 1950. Áður
en verslunarrekstur hófst í húsinu
hafi íbúar hins nýja Bústaðahverfis
þurft að sækja mjólk og ýmsar aðrar
nauðsynjar í Sogamýrina. Ný og
glæsileg nýlenduvöruverslun hafi
verið opnuð í Hólmgarði, Ólabúð, sem
nefnd var eftir eigandanum, Óla Hall-
grímssyni. Hólmgarður hafi orðið að
miðstöð í hverfinu.
Morgunblaðið/Baldur
Hólmgarður fyrstu árin Síðar var þar meðal annars rakarastofa, innrömmunarstofa, hár-
greiðslustofa, bókaútgáfan Skjaldborg, efnalaug og verkstæði fyrir píanóstillingar.
Morgunblaðið/Eggert
Í janúar 2019 Svona leit byggingin út áður en endurgerðin hófst vorið 2019. Byggt var ofan á
húsið nema hvað miðhlutinn er álíka hár og hann var. Þá hefur húsið verið klætt með álplötum.
Endurgerður Hólmgarður á markað
Gamli verslunarkjarninn hefur fengið andlitslyftingu Tíu íbúðir á tveimur hæðum í húsinu
Fjórar íbúðir seldar Fjárfestir reiknar með að selja allar íbúðirnar á næstu tveimur mánuðum
Morgunblaðið/Baldur
Breytt ásýnd Húsið hefur tekið stakkaskiptum með endurgerðinni. Á baklóð verða geymslur fyrir íbúa en á jarðhæð verður atvinnuhúsnæði.
Gróið hverfi Norðan við Hólmgarð er almenningsgarður og leiksvæði. Bakhliðin Endaíbúðirnar hafa álmu sem snýr inn að garðinum.
Ljósmynd/Render
Hönnun Hér má sjá skipulag á annarri endaíbúðinni, neðri hæð.
Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is
Við búum til
minningar myndó.isljósmyndastofa
NJÓTUM
MINNINGANN
A