Morgunblaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 56
568 9234 544 2410
Heimildarmyndin Hálfur Álfur
eftir Jón Bjarka Magnússon
verður sýnd í keppnisflokknum
Norrænar raddir á norrænu
stutt- og heimildarmyndahátíð-
inni Nordisk Panorama sem
fram fer í Malmö og í streymi á
netinu 17.-24. september. Átján
myndir frá Norðurlöndunum
keppa til verðlaunanna sem eru
veitt fyrir fyrsta verk norræns
kvikmyndagerðarmanns. Í myndinni fjallar Jón Bjarki
um vitavörðinn Trausta Breiðfjörð Magnússon sem
tengist sínum innri álfi á meðan hann undirbýr
hundrað ára afmæli sitt eða eigin jarðarför. Á sama
tíma hörfar eiginkona hans Hulda Jónsdóttir inn í
heim horfinna ljóða með aðstoð stækkunarglersins
síns. Trausti og Hulda voru amma og afi Jóns Bjarka
en eru nú látin. Hálfur Álfur var ein fjórtán heimild-
armynda sem sýna átti á Skjaldborg á Patreksfirði
um verslunarmannahelgina en hátíðinni var aflýst
vegna hertra sóttvarna.
Hálfur Álfur á Nordisk Panorama
LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 242. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Langflestir NBA-leikmenn eru blökkumenn (75-80%)
og flestir þeirra hafa alist upp í lægri stéttum. Af þeim
sökum skilja flestir þeirra það kynþáttamisrétti sem er
hér í landi og það ólöglega lögregluofbeldi sem margir
minnihlutahópar í Bandaríkjunum – sérstaklega svartir
– þurfa að eiga við. Fyrir þessa leikmenn er kyn-
þáttamisrétti og hatur ekki óhlutstætt – þeir hafa ekki
þann lúxus að hunsa dæmið sem borgarar,“ skrifar
Gunnar Valgeirsson í Los Angeles m.a. í grein sinni um
stöðu mála í NBA-deildinni vestanhafs. »48-49
Kynþáttamisrétti og hatur ekki
óhlutstætt fyrir marga í NBA
ÍÞRÓTTIR MENNING
fyrir utan skipulagsvinnu vegna
móta. „Það er mikill heiður að gegna
þessu embætti, ég horfði fram á tvö
mjög skemmtileg ár og ætlaði að
njóta þeirra fram í fingurgóma, en
þetta ár hefur verið öðruvísi en ætlað
var. Í starfi forseta EGA felst einnig
einskonar sendiherrahlutverk. Áætl-
anir voru um að fara á öll risamótin,
Ólympíuleikana, heimsmeistaramótið
og Ryder-bikarinn auk Evrópumót-
anna, og eiga þar fundi með fulltrúum
annarra golfsambanda víðs vegar um
heiminn. Flestum þessara viðburða
var aflýst og ég hef ekki farið neitt og
fer ekkert á þessu ári nema á ein-
staka Evrópumót.“
Haukur vonar að seinna árið verði
nokkurn veginn eðlilegt, þótt hann
geri fastlega ráð fyrir að takmarkanir
verði áfram á alþjóðlegu keppnishaldi
í golfi. „Næsta ár verður því ekki
venjulegt ár en ég vona að það verði
sem næst því.“
Þrátt fyrir miklar takmarkanir,
meiri en nokkru sinni áður í 80 ára
sögu EGA fyrir utan árin sem seinni
heimsstyrjöldin stóð yfir, er Haukur
bjartsýnn á framhaldið. Golfíþróttin
hafi blómstrað á landsvísu nánast alls
staðar í Evrópu í ár og í raun sé ekki
yfir neinu að kvarta með það í huga.
„Þetta er til dæmis besta ár Golf-
sambands Íslands. Aldrei hafa verið
fleiri skráðir félagsmenn, aldrei fleiri
golfhringir verið leiknir á landinu
enda metþátttaka á æfingum og í
mótum.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Golfíþróttin hefur aldrei átt eins mik-
illi velgengni að fagna á Íslandi og í
ár, en helstu golfmótum heims hefur
á sama tíma verið frestað eða þeim af-
lýst vegna kórónuveirunnar. Haukur
Örn Birgisson, forseti Golfsambands
Íslands og forseti Evrópska golf-
sambandsins, EGA, hefur því svo
sannarlega gengið í gegnum sætt og
súrt undanfarna mánuði.
Frá 2010 hefur Haukur starfað fyr-
ir EGA. Fyrst í mótanefnd í fjögur ár
og svo í framkvæmdastjórn frá 2015.
Hann gegndi embætti verðandi for-
seta 2017-2019 og tók við sem forseti
til tveggja ára í nóvember í fyrra.
Bara netsamskipti
„Þetta hefur farið töluvert öðruvísi
en gert var ráð fyrir,“ segir hann um
gang mála eftir að kórónuveiran setti
allt á annan endann. Hann bendir á
að EGA standi fyrir yfir 20 Evr-
ópumótum á ári, en öllum mótum hafi
verið slegið á frest. Allir fundir hafi
verið á netinu, bæði með stjórn og
starfsfólki og skipuleggjendum á
hverjum stað. Í sumum tilfellum hafi
verið reynt að finna nýja mótsstaði,
allt eftir því hvernig veiruvindar hafi
blásið hverju sinni. „Við höfum lagt
kapp á að halda mótin, búa til nýtt
keppnistímabil, sem hófst fyrir um
þremur vikum og stendur fram í
október.“ Önnur bylgja kórónu-
veirufaraldursins hafi samt haft áhrif
á skipulagið, staðan í löndunum
breytist ört og ómögulegt sé að segja
til um hvernig mál skipast. „Við fylgj-
umst með ástandinu, púslum þessu
saman eftir bestu getu og þátttakan
hefur verið vonum framar.“
EGA hefur orðið fyrir miklum
tekjumissi, en Haukur segir að af-
raksturinn sé samt meiri en gert hafi
verið ráð fyrir í mars og apríl. Hins
vegar sé ekki útilokað að enn verði að
fresta mótum. Allur tíminn undan-
farna mánuði hafi farið í skipulags-
vinnu á netinu og því hafi eðlileg sam-
skipti legið niðri.
Starfi forseta fylgja mikil ferðalög
Átti að vera á ferð
og flugi en fór hvergi
Haukur Örn Birgisson í óvenjulegri stöðu sem forseti EGA
Viðhöfn Haukur Örn Birgisson tók við embætti forseta EGA af Frakkanum
Pierre Bechmann á ársþinginu í Chantilly í Frakklandi í nóvember 2019.