Morgunblaðið - 15.10.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.10.2020, Blaðsíða 20
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 TILBOÐ 20%afmælis afslátturí október Áhudfegrun.is máfinna upplýsingar umallarmeðferðirnar! 20 ára farsæl reynsla Af því tilefni bjóðumvið ykkur 20% afsláttaf öllummeðferðum Húðslípun – Laserlyfting –Gelísprautun Dermapen –Húðþétting –Háreyðing... ...sannarlega eitthvað fyrir alla! Nýttu þér afmælistilboð okkar bókaðu þínameðferð núna! Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Staðan er viðkvæm og ekkert má út af bera,“ segir Pétur Heimisson, framkvæmda- stjóri lækninga á Heilbrigðisstofnun Austur- lands og umdæmislæknir sóttvarna í hér- aðinu. Hvergi á landinu er staðan í baráttunni við Covid-19 jafn góð og eystra. Skv. tölum miðvikudags var aðeins einn á svæðinu sýktur af veirunni og fimm í sóttkví. Pétur vekur þó athygli á því að þetta geti breyst í sviphendingu og talan rokið upp. Nokkur smit hafi til dæmis verið á svæðinu sl. vor, en vel hafi tekist að sigr- ast á vandanum þá. „Ég er þess ekki umkominn að geta út- skýrt nákvæmlega af hverju staðan hér eystra er jafn skapleg og nú,“ segir Pétur. „Veit þó að forráðamenn í fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum hér á svæðinu hafa, eftir því sem ég veit, gætt vel að smit- vörnum, vinnusvæðum er hólfaskipt og svo framvegis. Smitvarnir hvers og eins, svo sem handþvottur og -spritt og grímunotkun, það er að gæta sín og taka tillit til annarra er þýðingarmikið. Þá hafa íbúar hér líka verið vel með á nótunum. Svo má líka benda á að hér eystra er yfirleitt dreifbýlt og fólk minna á ferðinni en áður, til dæmis í aðra landshluta.“ Aðstæður vinna með sóttvörnum Pétur segir að landfræðilegar aðstæður á Austurlandi kunni að vinna með sóttvörnum. Þó geti veiran gert usla í sambærilegum að- stæðum, samanber hópsmit á nokkrum stöð- um á landsbyggðinni síðasta vor. Einn smit- aður geti haft mikil margfeldisáhrif, sé ekki varlega farið. Mikilvægur liður í smitvörnum eystra hafi líka verið virk aðgerðastjórn vegna Covid-19 undir stjórn lögreglunnar. Einnig samhæft sóttvarnastarf á landsvísu undir stjórn sóttvarnalæknis og ríkislög- reglustjóra. Góð staða ráðist því af mörgum þáttum, og sennilega sé sumt heppni. Starfsfólk heilsugæslu á Austurlandi hef- ur verið mjög virkt í sýnatöku vegna ein- kenna og líka komið að skimun fyrir veir- unni. Sama starfsfólk sinnir líka landamæra- skimun, bæði hvað varðar sýni 1 og 2. Þar er stærsta einstaka verkefnið tengt viku- legri komu Norrænu til Seyðisfjarðar, síðast nú á þriðjudaginn. Þá komu um 70 farþegar með skipinu en þeir voru um 700 þegar mest var á nýliðnu sumri. Þá eru líka ein- staka ferðir beint á Egilsstaðaflugvöll frá erlendum flugvöllum sem kalla á skimun farþega. Daglegt líf samkvæmt hefðum Í Snæfellsbæ voru engin virk smit í gær né heldur neinn í sóttkví. „Ég hef enga ákveðna skýringu á þessu, sennilega er þetta að hluta til heppni. Varkárni og skyn- semi íbúanna í smitvörnum hefur líka sitt að segja,“ segir Kristinn Jónasson bæjarstjóri. Daglegt líf á svæðinu segir hann ganga hefðum samkvæmt, enda þótt margvíslegar varúðarráðstafanir séu uppi gagnvart veir- unni. Bátar fari á sjó og fiski ágætlega, sem aftur skapi umsvif í vinnsluhúsum. Sjávar- útvegurinn sé og verði alltaf mikilvægur í bæjarfélaginu. Hinu sé ekki að leyna að slegið hafi í bakseglin í ferðaþjónustunni, en þegar best lét hafi um 800 þúsund ferða- menn komið á Snæfellsnes á ári. Nú séu þeir sárafáir enda séu ferðalög milli lands- hluta í núverandi ástandi óskynsamleg. Nærri því smitlaust svæði Í gær voru tveir smitaðir á Norðurlandi vestra og tveir aðrir í sóttkví. „Við erum nærri því að teljast smitlaust svæði, sem er mjög ánægjulegt“ segir Gunn- ar Örn Jónsson lögreglustjóri. Aðgerða- stjórn almannavarna í héraðinu hefur verið mönnuð af lögreglu síðan neyðarástandi var lýst yfir og fundar stjórnin daglega. Jafn- framt eru vettvangsstjórnir reiðubúnar til virkjunar ef þörf er á. Allur sé varinn góður, sbr. umfangsmikla hópsýkingu í Húnaþingi vestra í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldurs- ins síðasta vor. Samfélagið sé að einhverju leyti í hægari takti en endranær og jafn- framt séu færri á ferðinni sem sé líklegt til að draga úr útbreiðslu veirunnar. Í því sam- bandi megi nefna að heildarsamdráttur um- ferðar á Norðurlandi á milli ára nú sé um 50%, samkvæmt tölum Vegagerðarinnar. Sóttvarnir, heppni og færri á ferð Byggðir Egilsstaðir, til vinstri, og Ólafsvík eru meðal staða þar sem fá og jafnvel engin smit af Covid-19 eru virk. Engin einhlít skýring ræður því, en allur er varinn góður og smitvarnir sterkar. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Pétur Heimisson Kristinn Jónasson Gunnar Örn Jónsson  Veiran misjöfn milli staða Handþvottur og grímur virka  Góð staða á Austurlandi, Norðurlandi vestra og í Snæfellsbæ  Færri eru á ferðinni  Annríki við sýnatökur hjá farþegum með Norrænu Alls greindust 88 kórónuveirusmit innanlands á þriðjudag. Af þeim sem greindust var helmingur í sóttkví við greiningu. Einn greind- ist með mótefni við kórónuveirunni í landamæraskimun. Beðið er eftir niðurstöðu úr mótefnamælingu hjá einum. 24 eru inniliggjandi á Landspít- ala vegna Covid-19, þar af eru þrír á gjörgæslu. Af þeim sem greindust innan- lands hafði 71 farið í einkenna- sýnatöku en 1.238 slík sýni voru tekin á þriðjudag. 17 greindust í sóttkvíar- og handahófsskimun en 548 slík sýni voru tekin á þriðjudag. Samtals eru 1.132 í einangrun, smitaðir af kórónuveirunni. Alls eru 3.409 í sóttkví og 1.739 í skim- unarsóttkví. Á höfuðborgarsvæð- inu eru 980 í einangrun og 2.801 í sóttkví. Á Suðurlandi eru 61 í ein- angrun og 80 í sóttkví. Kórónuveirusmit á Íslandi Staðfest smit frá 30. júní 3.757 staðfest smit Heimild: covid.is Nýgengi innanlands 13. október: 268,9 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa 24 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af 3 á gjörgæslu 88 ný inn an lands smit greindust 13. október 316.008 sýni hafa verið tekin Þar af í landamæraskimun 159.193 sýni, samtals í skimun 1 og 2 1.739 einstaklingar eru í skimunarsóttkví 100 80 60 40 20 0 99 75 16 3.409 einstaklingar eru í sóttkví 1.132 eru með virkt smit og í einangrun júlí ágúst september október Fjöldi smita innanlands Fjöldi smita á landamærum 88 ný smit innanlands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.