Morgunblaðið - 15.10.2020, Síða 30

Morgunblaðið - 15.10.2020, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is SANGSIN gæðavara frá Kóreu BREMSU VÖRUR í flestar gerðir bíla 2012 2019 mánuði árins með loðnubresti og erfiðum veðrum á fjarlægum kol- munnamiðum hafi gengið vel síðustu mánuði á makríl og síldarvertíð. Páll segir að Eskja hafi framleitt tölu- vert af makríl og síld á vertíðinni frá byrjun júlí til loka september, alls um 27 þúsund tonn af afurðum, og tekið á móti um 38 þúsund tonnum af hráefni til vinnslu á tímabilinu. Skipin til síldveiða Sölumál hafi verið í góðum farvegi þrátt fyrir áskoranir vegna kórónu- veirufaraldursins og ágætlega geng- ið að selja framleiðsluna. Eigi að síð- ur séu frystigeymslur vel nýttar og ákveðið hafi verið að gera hlé á veið- um á norsk-íslenskri síld í þrjár vik- ur og nýta nýju frystigeymsluna fyr- ir afurðir úr síðustu þrjú þúsund síldartonnunum eða um tæplega þriðjungi kvótans. Jón Kjartansson fer til síldveiða í lok vikunnar og síð- an Aðalsteinn Jónsson. Reiknað er með tveimur túrum á hvort skip, en eftir er að koma í ljós hversu langt þarf að sækja síldina. Fyrirhugað er að vinna aflann á dag- vöktum í uppsjávarfrystihúsinu þar sem tekur um tvo daga að vinna hvern farm. Gamla frystihúsið rifið Fyrir ári gerðu Eskja og Fjarða- byggð samning um kaup og maka- skipti á nokkrum eignum og lóðum í bænum. Meðal annars tók bærinn yfir lóðir við Strandgötu í hjarta bæjarins, þar sem gamla frystihúsið og frystiklefi eru, en Eskja sér um niðurrif húsanna. Páll segir að unnið hafi verið að niðurrifi í áföngum, en kórónufaraldurinn haf aðeins sett strik í reikninginn. Ýmsir mögu- leikar skapast á nýrri uppbyggingu í miðbænum. Páll segist reikna með að 30 ára gamalli fresku eftir Baltasar á gafli frystigeymslunnar verði fundinn staður á nýja athafnasvæðinu. Þar eru á 14 myndum sýndir þættir úr atvinnusögu og umhverfi á Eski- firði. Löngu tímabær frystigeymsla  Eskja tekur í notkun geymslu fyrir níu þús. tonn Ljósmynd/Gungör Tamzok Athafnasvæði Eskju Næst er nýr frystiklefi, hægra megin við hann er uppsjávarfrystihús, sem tekið var í notkun 2016, og á milli er tengibygging, sem enn vantar þakið á. Fjær er fiskimjölsverksmiðja með mjöl- og lýsistönkum og við bryggju er Guðrún Þorkelsdóttir SU. Á lóðunum fremst á myndinni á Eskja lóðir þar sem áformað er að halda áfram uppbyggingu. Þarna eru einnig birgðastöð Skeljungs, nótastöð Egersund og starfsstöð Vélsmiðjunnar Hamars. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Mikil breyting verður hjá Eskju hf. á Eskifirði á næstunni er hluti nýrrar frystigeymslu verður tekinn í notk- un. Alls er húsnæðið 3.400 fermetrar og verður þar pláss fyrir um níu þús- und tonn af afurðum. Nú hefur Eskja alls rými í frysti- geymslum fyrir sjö þúsund tonn; þrjú þúsund tonn í geymslu við hlið upp- sjávarfrystihússins, þrjú þúsund tonn í frystihúsinu á Reyðarfirði og þús- und tonn í frystiklefa í gamla frysti- húsinu á Eskifirði. Þá hefur verið leigð aðstaða erlendis eftir þörfum. Páll Snorrason, framkvæmda- stjóri rekstrar- og fjármálasviðs Eskju, segir að fullbúin muni frysti- geymslan kosta um hálfan annan milljarð. Húsinu verður skipt í tvennt fyrst í stað og hefjast prófanir um miðja næstu viku. Byrjað er að keyra frost á klefann, en það ferli tekur nokkra daga, að sögn Páls. Skutlur flytja afurðir Starfsmenn verktakafyrirtækj- anna Frosts, Rafeyrar, Verkþings og Borgarafls hafa haft í nógu að snúast undanfarið við lokafrágang á húsi og frystiklefa. Fast rekkakerfi á fjórum hæðum frá Rými hf. verður sett upp í geymslunni fyrir áramót. Svokall- aðar skutlur flytja afurðir á brettum inn í rekkana, en lyftarar fæða skutl- urnar. Páll segir að um sé að ræða hagkvæma og tæknilega lausn og góð nýting verði á plássi. Páll segir þetta löngu tímabæra fjárfestingu og þegar mikið sé fram- leitt eins og í ár anni gömlu geymsl- urnar engan veginn þörfinni. Nauð- synlegt sé fyrir fyrirtækið að eiga birgðir til að þjónusta viðskiptavini allan ársins hring. Þrátt fyrir erfiða byrjun fyrstu Hafnar eru framkvæmdir við stækkun á höfninni á Eskifirði, en mikil starfsemi fer fram á at- hafnasvæðinu innarlega í bæn- um. Að sögn Jóns Björns Hákonarsonar, bæjarstjóra í Fjarðabyggð, eru framkvæmd- irnar á Eskifirði meðal þeirra um- fangsmestu í sveitarfélaginu í ár og á næsta ári. Samkvæmt uppfærðri kostn- aðaráætlun fyrir stækkun Eski- fjarðarhafnar verður heildar- kostnaður við stækkunina um einn milljarður króna og eru verk- lok áætluð á vormánuðum 2022. Kostnaður við hafnar- framkvæmdirnar er alfarið greiddur af Fjarðabyggðarhöfnum eins og aðrar framkvæmdir á þeirra vegum síðan 2006. Meðal annars verður gerður 150 metra langur hafnarkantur, dýpkað verður við bryggjuna og gerður 165 metra leiðigarður. Landfylling er áætluð 6.550 fer- metrar að stærð og gert ráð fyrir að efnismagn verði um 23 þúsund rúmmetrar. Tilboð í framleiðslu og rekstur staura bárust frá þremur aðilum og voru þau öll undir kostnaðar- áætlun. Samið hefur verið við lægstbjóðanda, Per Aarsleff A/S. Gerð var verðkönnun í stálþils- plötur í bakþil fyrir landvegg og var tilboði undir kostnaðaráætlun tekið frá Guðmundi Arasyni ehf. Þetta eru þeir verkþættir sem núna eru undir í verkefninu og hafa aðrir áfangar verkefnisins ekki verið boðnir út. Milljarður í höfnina FRAMKVÆMDIR Á ESKIFIRÐI Ljósmynd/Gungör Útgerð Aðalsteinn Jónsson SU 11, eitt skipa Eskju á Eskifirði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.