Morgunblaðið - 15.10.2020, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020
Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími8.00-16.30
Hakk,
gúllas,
bjúgu
og bara
nefndu það
Kjötbúð Kjötsmiðjunnar – Ekki bara steikur
NETKAST 7.- 12. okt.
Skechers RelmentVerð 16.995.-
Stærðir 4
1 - 47,5
Vatnsheldir og léttir
herra gönguskór
FRÍ HEIMSENDING
„Umhverfismálið hefur það að markmiði að út-
rýma einnota kaffimálum á Íslandi. Við trúum
því að samfélagsleg ábyrgð og sjálfbærni séu
lykillinn að grænni framtíð og sækjum inn-
blástur í hringrásarhagkerfið,“ segja þeir Sindri
Már Hannesson, Skúli Bragi Geirdal og Elís Orri
Guðbjartsson sem eru mennirnir á bak við Um-
hverfismálið. Sindri er með meistaragráðu í við-
skiptum frá ESADE-háskólanum í Barcelona,
Skúli er grafískur hönnuður og dagskrárgerð-
armaður á N4 og Elís Orri er með meistaragráðu
í alþjóðasamskiptum frá London School of
Economics. Bakgrunnur þeirra er því ólíkur en
samlegðaráhrifin henta vel verkefni sem þessu.
Þeir félagar segja mikilvægt nú sem aldrei
fyrr að fólk sýni samfélagslega ábyrgð og hlúi að
umhverfinu. Framtíðin sé ekki einnota og mik-
ilvægt sé að temja sér þann þankagang.
„Umhverfismálið, sem er búið til úr endur-
unnum kaffikorgi ásamt öðrum náttúrulegum
bindiefnum, er eins umhverfisvænt og það gerist
og því „umhverfismál“ í orðsins fyllstu merk-
ingu, segja þeir og bæta því við að það sé allt
öðruvísi upplifun að drekka kaffið úr Umhverf-
ismálinu. „Upplifunin er hreinlega allt önnur, og
mikið umhverfisvænni. Ímyndaðu þér að drekka
kaffi úr kaffi. Kaffimálið sem þú drekkur úr var
eitt sinn kaffið í kaffibollanum þínum, segja þeir
en Umhverfismálið er famleitt í Berlín af litlu ný-
sköpunarfyrirtæki sem einblínir á að framleiða
vörur sem stuðla að hringrásarhagkerfinu. Kaffi-
korgurinn, sem er aðaluppistaðan í Umhverf-
ismálinu, sækja þau á hjólum hjá nærliggjandi
kaffihúsum. Umhverfisþáttum er því gert eins
hátt undir höfði og mögulegt er við framleiðsl-
una.
Til að binda saman kaffikorginn eru notaðar
niðurbrjótanlegar líffjölliður (e. biopolymers)
sem eru unnar úr beðmi, sterkju, viði, nátt-
úrulegri kvoðu og olíum. Því er bindiefnið al-
gjörlega laust við alla hráolíu, melamínkvoðu eða
plastagnir. Umhverfismálið má setja í upp-
þvottavél, er 100% endurvinnanlegt og brotnar
niður í náttúrunni.
Einstakt Umhverfismál
sem gerir kaffisopann betri
Góður kaffibolli er nauðsynlegur og flest harðkjarna kaffidrykkjufólk á sitt fjölnota kaffimál sem
það hefur ætíð með í för. Nú hafa íslenskir þremenningar stigið skrefinu lengra og kynna til sög-
unnar Umhverfismálið sem unnið er úr endurunnum kaffikorgi.
Ljósmynd/Aðsend
Hvert mál skiptir máli Í hvert skipti sem þú
notar Umhverfismálið sparar þú umhverfinu
rusl í formi einnota kaffimáls. Með því að nota
Umhverfismálið færðu 40 kr. afslátt hjá t.d. Te
og kaffi og Kaffitári.
Áhugi Íslendinga á neyslu þara er mikill og
eykst sífellt; ekki síst í ljósi þess að joð-
skortur er í fyrsta skipti mælanlegur hér á
landi en þari inniheldur einmitt mikið af joði
og öðrum lífsnauðsynlegum steinefnum. Kar-
en Jónsdóttir, sem á og rekjur Kaju Organic
og Matbúr Kaju á Akranesi, hefur sett á
markað þarapasta sem er framleitt af henni
sjálfri og lífrænt. Um er að ræða hefðbundið
ferskt lífrænt tagliatelli-pasta sem búið er að
setja þaraduft saman við. Útkoman er að
sögn Kaju einstaklega vel heppnuð og hafa
viðtökurnar verið framar björtustu vonum.
Pastað sé afar bragðgott og með þessu móti
geti fólk fengið sinn ráðlagða dagskammt af
joði.
Pastað er fáanlegt í Melabúðinni og Hag-
kaup.
Ljósmynd/Aðsend
Frábær máltíð Þarapastað þykir sérlega
bragðgott og nóg er að snöggsjóða það og
bera fram með góðri olífuolíu, sjávarsalti og
ferskum parmesan.
Íslenskt
þarapasta
á markað
Nýtt íslenskt pasta hefur litið
dagsins ljós sem er í senn ein-
taklega bragðgott, lífrænt og
ákaflega hollt.
Atvinna