Morgunblaðið - 15.10.2020, Page 57

Morgunblaðið - 15.10.2020, Page 57
DÆGRADVÖL 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020 Gjafalisti Einfalt að sníða sinn jólagjafalista á duka.is Allir sem gera gjafalista hjá Dúka fá inneign að verðmæti 15% af því sem keypt er af listanum KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS við að starfið nærir, kætir og bætir, ætti nánast að vera sjálfboðavinna. Samstarfsfólkið er hvert öðru ynd- islegra og skólastjórnendur metn- aðarfullir þótt íhaldi eins og mér finnist stundum fullmikil ákefð í að stokka upp og breyta. En Kristinn skólameistari og hans fólk er far- sælt í starfi og lendir málum af skynsemi og fagmennsku.“ Páll skrifar moggablogg og hefur gert í rúman hálfan annan áratug. „Að skrifa er að læra, segi ég nem- endum mínum. Bloggið er merking- ariðja líkt og kennsla. Líf án merk- ingar er fánýtt.“ Fjölskylda Páll er kvæntur Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur blaðamanni er starfar á skrifstofu forstjóra Grund- arheimilanna, f. 6.2. 1961, dóttir hjónanna Ingibjargar Þ. Hann- esdóttur handavinnukennara, f. 16.8. 1933, og sr. Guðmundar Ósk- ars Ólafssonar prests, f. 25.11. 1933, d. 17.12. 2003. Þau voru búsett lengst á Skólavörðustíg í Reykjavík og á Seltjarnarnesi. Börn Páls og Guðbjargar eru: 1) Guðmundur Óskar viðskiptafræð- ingur, í sambúð með Lovísu Krist- ínu Sigurjónsdóttur lækni og eiga þau Elísabetu. Búa í Vesturbænum. 2) Vigdís Ingibjörg markaðsstjóri, í sambúð með Sveini Ragnari Sig- urðssyni viðskiptafræðingi og eiga þau Egil Pál. Búa á Seltjarnarnesi. 3) Inga Þóra, laganemi við HÍ. Býr á Seltjarnarnesi. Systkini Páls eru Hanna Björg kennari, f. 27.8. 1963; Garðar kenn- ari, f. 25.12. 1966; og Inga María fé- lagsráðgjafi, f. 1.3. 1971. Foreldrar Páls eru hjónin Vigdís Pálsdóttir húsmóðir og skrif- stofukona, f. 27.11. 1943, d. 5. 2. 2020, og Vilhjálmur Grímsson tæknifræðingur, f. 3.8. 1942, d. 12.11. 2011. Þau bjuggu lengst af í Keflavík en síðustu árin í Breiðholti í Reykjavík. Páll Vilhjálmson Ása Jóhannsdóttir húsfreyja í Rvk. frá Hofi á Eyrarbakka Símon Jónsson kaupmaður í Rvk. frá Bakka í Ölfusi Jóhanna Símonardóttir húsmóðir í Reykjavík Páll Þorsteinsson aðalgjaldkeri Flugfélags Íslands, frá Búðareyri, en búsettur í Reykjavík Vigdís Pálsdóttir húsmóðir og skrifstofukona í Keflavík Áslaug Katrín Maack Pétursdóttir frá Grunnavík, húsfreyja í Reyðarfirði Þorsteinn Pálsson kaupmaður í Ekru í Reyðarfirði Magdalena Brekkman húsfreyja í Færeyjum Mortan Mörk útgerðarmaður og skipstjóri í Færeyjum Ingibjörg Mörk húsmóðir í Keflavík og síðar Reykjavík Grímur Eysturoy Guttormsson kafari og skipasmiður frá Færeyjum, bús. á Íslandi frá 1945 í Keflavík og síðar Rvk. Sara Maria Johnson húsfreyja í Þórshöfn í Færeyjum Guttormur Eysturoy snikkari í Þórshöfn í Færeyjum Úr frændgarði Páls Vilhjálmssonar Vilhjálmur Grímsson tæknifræðingur í Keflavík „JÁ, ÞETTA ER ÓHEPPILEGT – EN ÞETTA VAR BARA TOPPURINN Á ÍSJAKANUM. ÉG ER VISS UM AÐ ÞAÐ TEKUR ENGINN EFTIR ÞVÍ AÐ HANN ER HORFINN.” „ÉG ÆTLA AÐ SLEPPA EFTIRRÉTTI. MÉR FINNST SVO ÓÞÆGILEGT AÐ HLAUPA MEÐ MAGANN FULLAN.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... það sem telur. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞAÐ ER ÁHUGAVERT AÐ EIGA KÆRUSTU SEM ER DÝRA- LÆKNIR HÚN ER EKKI BARA KLÁR, HÚN ER LÍKA SKEMMTILEG ÞÚ SEGIR ÞAÐ NÚNA … BÍDDU ÞAR TIL HÚN MÆLIR ÞIG HÉR ER KEMUR BRANDARI – ÞRÍR VÍKINGAR LÖBBUÐU ÚT AF KRÁ! ÉG FATTA HANN EKKI? VÍKINGARNIR LÖBBUÐU ÚT! ÞEIR ULTU EKKI, SKJÖGRUÐU, DUTTU, RÚLLUÐU NÉ SKRIÐU ÚT! Maðurinn með hattinn yrkir áBoðnarmiði: Ég læt mig oft um dömur dreyma djarfur kvölds í húminu. Indælt væri að una heima með einni þar í rúminu. Konur get ég elskað alla stund, og allsber verið hjá þeim framá nætur. Að lokum síðan eftir ástarfund er ætíð kvöl að þurfa að skríða á fætur. Þessu svaraði Kerlingin á Skóla- vörðuholtinu: Bjástrið fór úr böndum við baldna draumafrúna, harðsperrur í höndum hefur greyið núna. Guðmundur Arnfinnsson leggur fram tillögu um mannanöfn í sléttu- böndum: Tarfur, Hækja, Skratti, Skömm, Skolli, Krækja, Tittur, Skarfur, Dækja, Vambi, Vömm, Vindur, Skækja, Pyttur. Pyttur, Skækja, Vindur, Vömm, Vambi, Dækja, Skarfur, Tittur, Krækja, Skolli, Skömm, Skratti, Hækja, Tarfur. Í Sögu Sjómannafélagsins 1915- 2015, „Frjálsir menn þegar aldir renna“, segir frá því, að Guðmundur Björnsson landlæknir hafi sumarið 1910 farið eina nótt með togaranum Snorra Sturlusyni út á Svið. „Jeg hef hvorki utanlands nje innan sjeð fríð- ari og röskari verkamannasveit en þessa skipshöfn,“ skrifaði hann og kvað togarasjómennina „verða þjóðinni til stórsóma með dugnaði sínum“. Þá varð til þessi vísa: Lengjast skuggar, lækkar sól, leggjum út á Svið, óþarft er að gefa þeim gula næturfrið. Köstum voð, tökum tak, togum út við hraun. Aldrei bregðast aflamönnum erfiðislaun. Oddur sterki af Skaganum tók miklu ástfóstri við Sjómannafélag Reykjavíkur. Rifjaðar eru upp tvær vísur úr Vantraustsræðu Odds eftir Örn Arnarson: Vandasamt er sjómannsfag, sigla og stýra nótt og dag. Þeir, sem stjórna þjóðarhag, þekkja varla áralag. Eftir mikið þras og þóf þingið upp til valda hóf menn, sem hafa ei pungapróf, piltar, það er forsmán gróf! Reyr frá Drangsnesi skaut inn „einni gamalli“: Flýgur suður fugl á ný fölna jurtir allar og dagur styttist stöðugt því stjarnan okkar hallar Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Gott er að láta sig dreyma

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.