Morgunblaðið - 15.10.2020, Page 61

Morgunblaðið - 15.10.2020, Page 61
MENNING 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI AÐRAR MYNDIR Í SÝNINGU: * The New Mutants * Trolls World Tour * Hvolpasveitin SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS Nýjasta Meistaraverk Christopher Nolan ★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ The Guardian The Times The Telegraph Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is MÖGNUÐ MYND SEM GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI : ★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ Roger Ebert.com San Fransisco Cronicle The Playlist 88% SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR. FORSÝNINGAR UM HELGINA. Bandaríska kvikmynda-gerðarkonan KirstenJohnson hefur starfað viðkvikmyndatöku heimildarmynda í hartnær þrjá ára- tugi og hefur á ferli sínum myndað fjölbreytt efni á víð og dreif um hnöttinn við ýmsar aðstæður. Í kvik- mynd sinni Myndavélamanneskja (Cameraperson, 2016) notaði hún myndbrot úr fjölda þessara mynda til að setja saman nýja heild sem gerði myndavélina, manneskjuna á bak við hana og sambandið við við- fangið að viðfangsefni sínu. Mynda- vélamanneskja vakti mikla athygli í kvikmyndaheiminum vestanhafs sem og víðar og hlaut meðal annars góðar undirtektir hérlendis á kvik- myndahátíðinni Stockfish. Nú hefur Johnson fylgt velgengninni sem leik- stjóri eftir með heimildarmyndinni Dick Johnson er dauður, en hún er framleidd af (og nýlega aðgengileg á) streymisveitunni Netflix. Líkt og Myndavélamanneskja er Dick Johnson er dauður sjálfsævi- söguleg en þó á mun persónulegri og beinskeyttari hátt. Titilpersónan Dick Johnson er geðlæknir að hætta störfum á níræðisaldri og jafnframt faðir Kirsten Johnson, leikstjóra myndarinnar. Dick hefur greinst með heilabilunarsjúkdóm og því fram undan sú erfiða en óhjákvæmi- lega hrörnun og vitræna skerðing sem svo margir þurfa að ganga í gegnum. Dick og Kirsten þekkja þá reynslu mætavel sem aðstandendur en eiginkona Dicks og móðir Kirst- enar þjáðist af alzheimersjúkdómn- um í sjö ár og lést af hans völdum ár- ið 2007. Myndskeið af langt leiddri móður Kirstenar voru persónuleg- asti hluti Myndavélamanneskju og rifjar hún hér upp viðlíka átakanlegt atriði þar sem móðirin man ekki nafn dóttur sinnar. Sögumannsrödd Kirstenar lýsir eftirsjá yfir því að ekki sé til myndefni sem sýni móður hennar í fullu fjöri. Ætlun Dick Johnson er dauður er því að fanga persónuna Dick Johnson áður en það er um seinan. Í gerð mynd- arinnar er þar með fólgin nokkurs konar sameiginleg barátta feðgin- anna gegn því sem þau standa frammi fyrir – „hvarfi“ Dicks John- sons. Þau ætla ekki að taka því með sátt eins og sögumannsrödd Kir- stenar lýsir í upphafi myndar. Myndin er ansi fjörleg og mein- fyndin á köflum, þótt það kunni að skjóta skökku við. Leikgleði hennar er meðal annars að finna í fjöl- breyttum dauðasenum þar sem dauði Dicks er sviðsettur á ýktan, galgopalegan og jafnvel teikni- myndalegan máta. Líklegt er að áhorfendum bregði í fyrsta tilfellinu þegar loftræstikerfi dettur af himn- um ofan á höfuð Dicks en í kjölfarið er tilbúningurinn látinn í ljós í atriði þar sem feðginin vinna með áhættu- leikurum sem ganga í spor föðurins. Þessi aðferðafræði er gegnumgang- andi og í henni felst jafnframt eitt helsta þema myndarinnar – eðli kvikmyndagerðarinnar og tilbúning- urinn sem í henni felst – sem og hvaða áhrif hún hefur á lifandi líf. Kirsten Johnson lætur sér þó ekki nægja að drepa föður sinn ítrekað heldur sendir hún hann einnig til ímyndaðs himnaríkis sem einkennist af litadýrð, fjörugri tónlist, dansi og súkkulaðipoppkornsregni. Þessar fantasíusenur eru kjánalega fallegar og skemmtilegar og gegna mikil- vægu hlutverki innan frásagnarinn- ar til að gefa grið frá raunveruleik- anum. Þó var einni þeirra ofaukið en það er einungis smávægilegt um- kvörtunarefni. Milli þess að feðginin taka upp dauða- og himnaríkissenur gengur lífið sinn vanagang. Dick þarf að pakka saman skrifstofu sinni þar sem hann tók á móti skjólstæðingum sínum áratugum saman. Bíllinn hans er seldur. Hann flytur frá heimili sínu á vesturströnd Bandaríkjanna í Seattle austur til New York í íbúð Kirstenar þar sem hún býr ásamt tveimur börnum. Þennan hluta frá- sagnarinnar mætti telja til hefð- bundnari heimildamyndargerðar og myndar hann hryggjarstykki mynd- arinnar. Í honum kemur greinilega fram hvað Dick Johnson er frábær karl – kærleiksríkur og lífsglaður með gegnheil viðhorf og hvað sam- band feðginanna er náið og opin- skátt. Mynd sem þessi myndi aldrei ganga upp á þann hátt sem hún ger- ir ef persónurnar og sambandið þeirra á milli væri ekki með þessu móti. Áhrifaríkastar eru senurnar milli föður og dóttur þegar þau ræða málin á hreinskilinn máta og hætt er við að nokkur tár falli við áhorfið. Rödd Kirsten brestur þegar þau tala um fráfall móðurinnar og flutn- ingana og enn átakanlegra er þegar faðirinn skilur ekki af hverju bíllinn hefur verið seldur og þau átta sig í sameiningu á frelsismissinum sem í því felst. Dick Johnson er dauður er í senn verk sjálfsskoðunar og raunveru- leikaflótta þeirra sem eiga í hlut. Með ferlinu eru Kirsten Johnson og fjölskylda að horfast í augu við það sem er óumflýjanlegt en líka að dreifa huganum með listræna ferl- inu. Sviðsetning atburða í myndinni vekur óneitanlega siðferðileg álita- mál, sem kvikmyndagerðarfólkið er líklega meðvitað um, og er hluti af inntaki verksins. Óhætt er að mæla heils hugar með myndinni með þeim fyrirvara að fjallað er um viðkvæm málefni sem eru þó svo hversdagleg í eðli sínu og ættu þar með að ná til margra. Framvinda myndarinnar er einnig nokkuð útsmogin og kom gagnrýnanda skemmtilega á óvart. Dauði og upprisa (poppkorn á himnum) Dauður Dick Johnson í einu af mörgum sviðsettum andlátsatriðum myndarinnar. Hér liggur Dick dauður eftir að hafa fengið loftræstitæki í höfuðið. Netflix Dick Johnson er dauður/ Dick Johnson Is Dead bbbbn Leikstjóri: Kirsten Johnson. Handrit: Nels Bangerter, Kirsten Johnson. Klipp- ing: Nels Bangerter. Bandaríkin, 2020. 89 mínútur. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.