Morgunblaðið - 19.11.2020, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.11.2020, Qupperneq 1
Stofnað 1913  273. tölublað  108. árgangur  T Í BEINNI!KL. 19:00IS/BINGO ÁT D . TAKTU Í KVÖ Á MB Þ L L F I M M T U D A G U R 1 9. N Ó V E M B E R 2 0 2 0 ÁHRIFAMIKILL OG VINSÆLL LISTAMAÐUR GOTT OG BLESSAÐ BÆNDAMARKAÐUR Á VEFNUM 14THORVALDSEN 250 ÁRA 62 Wellington Nautalund 5.939KR/KG ÁÐUR: 8.999 KR/KG KRÆSILEG TILBOÐ Í NÆSTU NETTÓ Lambasúpukjöt Fjallalamb – niðursagað 699KR/KG ÁÐUR: 1.295 KR/KG Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 19.—22. nóvember -46% -34% Kúrbítur 405KR/KG ÁÐUR: 579 KR/KG Eggaldin 419KR/KG ÁÐUR: 599 KR/KG -30% velvirk.is Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is „Við gerum ráð fyrir að MAX-vél- arnar komi inn í áætlunina hjá okkur næsta vor.“ Þetta segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, inntur eftir viðbrögðum nú þegar bandarísk flugmálayfirvöld hafa gef- ið út flughæfnisvottorð á Boeing 737- MAX-vélarnar sem staðið hafa kyrr- settar um heim allan frá því í mars í fyrra. Með því hillir undir lengstu samfelldu kyrrsetningu farþegavél- ar í sögu flugsins sem átti rætur að rekja til tveggja mannskæðra flug- slysa í Jövuhafi og Eþíópíu sem kost- uðu 346 manns lífið. „Það hefur verið talað um að Evrópska flugmálaeft- irlitið muni gefa sér tvo mánuði til að fara yfir niðurstöðurnar hjá því bandaríska og þá er sennilegt að flughæfni vélarinnar verði staðfest fyrir Evrópu í janúar næstkomandi. Við gerum hins vegar ekki ráð fyrir að taka vélarnar okkar inn í áætlun fyrr en nokkru eftir það. Miðað við umsvifin sem við gerum ráð fyrir næstu mánuðina erum við með nógu margar vélar til að anna flugáætl- uninni.“ Í Bandaríkjunum hafa flugfélög nú þegar gefið út í einhverjum mæli hvernig þau hyggjast byggja upp traust flugfarþega á vélunum. Bogi segir þá vinnu fram undan hjá Ice- landair einnig. „Við munum miðla upplýsingum til okkar farþega og útskýra að þess- ar vélar eru mjög traustar og hafa farið í gegnum mjög yfirgripsmikið ferli sem tryggir öryggi þeirra.“ Þá segir Bogi Nils það ótvíræðan kost að þegar félagið hyggist taka vélarnar í notkun að nýju verði kom- in reynsla á vélarnar bæði í Ameríku og Evrópu. „Það mun staðfesta fyrir fólki það sem við höfum sagt að þessar vélar eru mjög traustar.“ Segir hann að innan tíðar hefjist að nýju þjálfun flugmanna sem ekki hafa haft færi á að fljúga vélunum í eitt ár og átta mánuði. Maxinn fer í loftið í vor  Forstjóri Icelandair segir ekki þörf fyrir vélina fyrr en á komandi vori  Hefja senn undirbúning að þjálfun flugmanna  Flughæfni staðfest í Bandaríkjunum Stormasamt » Icelandair staðfesti kaup á 16 Boeing 737-MAX-vélum árið 2013. » Félagið tók við fyrstu þot- unni í mars 2018. » Nú hefur náðst samkomulag um að félagið muni kaupa 12 vélar í stað 16. Þegar gengið er niður Laugaveginn um þessar mundir blasa við tóm og lokuð verslunar- og þjónusturými til beggja handa. Þar hefur kórónu- veirufaraldurinn haft sín áhrif en fjölda ferðamannaverslana hefur verið lokað síðustu mánuði. Sömuleiðis standa mörg rými tóm. Í talningu Morgunblaðsins nýverið kom í ljós að ríflega 30 rými standa auð og yfirgefin og til viðbótar hefur 20 verslunum verið lokað. Eru þá ótalin þau veitinga- og kaffihús við Laugaveginn sem hafa lokað tíma- bundið vegna faraldursins eða eru með takmarkaða þjónustu. Séu þau talin með fer talan vel yfir 70, líkt og kom nýverið fram á mbl.is. Borgin áformar að fara í nýja talningu á sölustöðum við Laugaveg. »28-29 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Laugavegur Hér var áður minja- gripabúð en stendur núna auð. Tugir rýma tóm og lokuð á Laugavegi Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu lauk keppni í A-deild Þjóðadeildar UEFA í gærkvöldi með enn einu tapinu, að þessu sinni gegn Eng- lendingum á hinum víðfræga Wembley- leikvangi, 4:0. Ísland tapaði öllum sex leikjum sínum í keppninni og er fallið niður í B-deildina eftir að hafa endað í neðsta sæti riðilsins. Leik- urinn var jafnframt sá síðasti hjá Erik Hamrén sem þjálfari íslenska landsliðsins. AFP Ófarir Íslands í Þjóðadeildinni héldu áfram á Wembley Stofnað 1913  273. tölublað  108. árgangur 
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.