Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is
Við búum til minningar
myndó.is
ljósmyndastofa
FRÁBÆR JÓLAGJÖF!
GJAFABRÉF handa ömmu og afa
eða mömmu og pabba
og minningarnar
gleymast ekki
ENGIN SKILYRÐI. ÞÚ ÞARFT HVORKI LYKIL NÉ KORT.
ÖNNUR VILDARKJÖR GILDA EKKI MEÐ LÆGSTA VERÐI ÓB.
ob.is
LÆGSTA
VERÐÓB
ARNARSMÁRI
BÆJARLIND
FJARÐARKAUP
HLÍÐARBRAUT AKUREYRI
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það má segja að íslenskir ungling-
ar skari fram úr unglingum annars
staðar í Evrópu hvað varðar litla
vímuefnanotkun og það hafa þeir
gert í svolítinn tíma. Áfengisneysla
íslenskra unglinga er mun minni en
jafnaldra þeirra í öðrum löndum
Evrópu,“ sagði Ársæll Már Arnars-
son, prófessor í tómstunda- og fé-
lagsmálafræði við Háskóla Íslands.
Hann er fulltrúi Íslands í evrópsku
samstarfi um gerð ESPAD-saman-
burðarrannsókna á vímuefnanotk-
un 10. bekkinga í 35 Evrópulöndum.
ESPAD-könnunin var fyrst gerð
árið 1995 og hefur Ísland tekið þátt
í henni frá upphafi. Hún var gerð í
sjöunda skipti í fyrra. Öllum grunn-
skólum með 10. bekk var boðin
þátttaka og tók 61% íslenskra tí-
undubekkinga þátt í könnuninni
2019. Ársæll sagði íslensku ung-
lingana standa sig mjög vel nú hvað
varðar litla áfengisneyslu, sígar-
ettureykingar og notkun kannabis-
efna. En það hefur ekki alltaf verið
svo.
„Við fórum úr því að vera með
unglinga sem notuðu hvað mest
áfengi í Evrópu þegar byrjað var að
gera þessar kannanir í að vera með
unglinga sem nota áfengi hvað
minnst,“ sagði Ársæll. Hann sagði
tilhneiginguna vera þá í flestum
Evrópulöndum að unglingar reyktu
minna og drykkju minna en jafn-
aldrar þeirra gerðu á árum áður.
Allsgáða kynslóðin
„Þessi kynslóð unglinga í dag er
stundum kölluð allsgáða kynslóðin.
Við höfum skorið okkur talsvert úr
öðrum löndum með að hér hefur
þessi breyting orðið snarpari og
meiri en annars staðar,“ sagði Ár-
sæll. Hann sagði erlenda fræði-
menn horfa mikið til Íslands í þessu
sambandi og vera mjög forvitna um
hvaða aðferðum hefði verið beitt til
að ná þessum árangri.
Þrátt fyrir góðan árangur við að
draga úr notkun áfengis og tóbaks
hjá íslenskum unglingum veldur
mikil lyfjanotkun íslenskra ung-
menna áhyggjum.
„Notkun íslenskra unglinga á
geð- og taugalyfjum er með því
mesta sem gerist í Evrópu. Þeir eru
mjög mikið að nota lyf við ofvirkni,
þunglyndislyf, róandi lyf og þess
háttar sem læknar hafa ávísað til
viðkomandi. Það kemur fram í þess-
um mælingum ESPAD að íslenskir
unglingar nota talsvert mikið af ró-
andi lyfjum og ofvirknilyfjum án
þess að læknar hafi skrifað upp á
þau fyrir þessa einstaklinga,“ sagði
Ársæll. Hann sagði þessa miklu
lyfjanotkun mögulega tengjast al-
mennt mikilli notkun á geð- og
taugalyfjum hér á landi. „En mikil
notkun íslenskra unglinga á geð- og
taugalyfjum án þess að hafa fengið
þau ávísuð af lækni er sérstakt
áhyggjuefni,“ sagði Ársæll.
Íslenskir unglingar drekka lítið
Mjög hefur dregið úr vímuefnanotkun íslenskra unglinga Niðurstöður ESPAD-samanburðarrann-
sóknarinnar sýna jákvæða þróun Mikil notkun tauga- og geðlyfja íslenskra unglinga er áhyggjuefni
59
54
49
46 45 45
42 40 39
36 35 34 34 34 32 32 32 32
28
24 22 20
16 14
7.6
Tíðni lotudrykkju áfengis hjá 15-16 ára*
Ísland og nokkur Evrópulönd skv. könnun í skólum árið 2019 (%)
Marktækt fleiri drengir**
Marktækt fleiri stúlkur**
**Yfir 3 prósentustig
Heimild: ESPAD
*Hlutfall 15-16 ára sem segjast einu sinni eða oftar á síðustu 30 dögum
hafa neytt fimm eða fleiri áfengra drykkja í einni lotu
D
an
m
ö
rk
Þ
ýs
ka
la
n
d
A
u
st
u
rr
ík
i
S
ló
va
kí
a
G
eo
rg
ía
K
ró
at
ía
H
o
lla
n
d
S
ló
ve
n
ía
T
ék
kl
an
d
Le
tt
la
n
d
Ít
al
ía
S
p
án
n
P
ó
lla
n
d
Fr
ak
kl
an
d
Fæ
re
yj
ar
Ír
la
n
d
E
is
tl
an
d
G
ri
kk
la
n
d
Li
th
áe
n
P
o
rt
ú
ga
l
Fi
n
n
la
n
d
S
ví
þ
jó
ð
N
o
re
g
u
r
K
ó
so
vó
Ís
la
nd
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Tímann notum við til þess að syngja,
nú þegar tilveran er í rólegri gír en
endranær,“ segir Hlynur Snær
Theódórsson bóndi og trúbador á
Voðmúlastöðum í
Austur-
Landeyjum. Tón-
list hefur lengi
verið hans hálfa
líf og saman hafa
þau Sæbjörg Eva
dóttir hans komið
víða fram. Þau
hafa spilað og
sungið á manna-
mótum á Suður-
landi, svo sem fyr-
ir tjaldgesti í Þórsmörk, á
sveitasamkomum á Suðurlandi og
svo mætti áfram telja.
„Bullandi músík“
Fyrir þetta tónlistarstarf tók síð-
asta vor þegar sóttvarnir vegna kór-
ónuveirunnar voru settar á. Því varð
að finna nýjar leiðir svo söngurinn
mætti hljóma og landinn gæti tekið
lagið! Fjörið var fært yfir á Facebook
og hefur verið þar á laugardags-
kvöldum. Fram undan nú er fimmta
skemmtunin og allt í beinni!
Hlynur Snær bóndi á Voðmúla-
stöðum og Guðlaug Björk Guðlaugs-
dóttir kona hans eiga þrjú börn. Son-
urinn Valtýr Freyr býr í Svíþjóð með
sinni fjöskyldu og svo eru það tvær
dætur; Sæbjörg Eva sem nemur tón-
list við Listaháskóla Íslands og
Brynja Sif sem er leikskólakennari á
Selfossi. „Það er bullandi músík í
báðum stelpunum,“ segir Hlynur
sem sest í stofusófann á laugardags-
kvöldum heima og er með gítarinn
undir hendi. Syngur og spilar og dæt-
urnar með. Eiginkonan og móðirin
stendur svo á bak við myndavél og
græjur. Er í hlutverki tæknimanns-
ins sem sér til þess að spilverkið og
söngurinn berist á Facebook til
áhorfenda heima í stofu.
30.000 innlit á einni helgi
„Miðað við tækni nútímans sem
flestir hafa tileinkað sér er útsend-
ingin ekki flókin í framkvæmd. Að
þetta sé mögulegt í raun er samt
magnað,“ segir Hlynur Snær.
„Oft eru um 500 notendur tengdir
við facebooksíðuna mína í einu, inn-
litin á hverju laugardagskvöldi eru
um 10.000 og 30.000 yfir helgina. Með
þau viðbrögð erum við fjölskyldan
hæstánægð. Raunar má segja að
andrúmsloftið á þessum undarlegu
tímum hafi fært samfélagið á nýjan
stað og skapað stemningu, samanber
þættirna Það er komin Helgi. Sjálfur
er ég búinn að vera í tónlist alveg síð-
an á barnsaldri, hef verið í kórum,
kvartettum og fleiru. Finnst fátt
skemmtilegra en að taka lagið með
góðu fólki – skemmtileg lög sem bók-
staflega allir kunna.“
Fjölbreytnin er ráðandi á lagalista
Hlyns á Voðmúlastöðum og dætra
hans. Svo nokkuð sé tínt til af listan-
um má þar nefna lögin Rósin, Sólar-
samba, Við gengum tvö, Ríðum sem
fjandinn, Vor í Vaglaskógi, Undir
bláhimni, Síðan hittumst við aftur, Í
fjarlægð, Traustur vinur og Vegbú-
inn.
Jökullinn logar
Og síðast en ekki síst Ég er kom-
inn heim, einkennislag stuðnings-
manna íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu. Í þeim slagara er sungið um
jökulinn sem logar og haft er fyrir
satt að Jón Sigurðsson bankamaður,
sem samdi textann, hafi haft Eyja-
fjallajökul í huga. Það getur vel pass-
að því Jón ólst upp undir Eyjafjöllum
og hafði fyrir augum á æskuslóðum
sínum hinn logandi jökul, sem blasir
sömuleiðis við frá Voðmúlastöðum.
„Það sem gerir þessi partí hér
heima í stofu skemmtileg eru gagn-
virk samskipti. Í útsendingu berast
kveðjur frá fólki víða að og beðið er
um óskalög,“ segir tónlistarbóndinn.
„Við höldum áfram enn um sinn með
þessar skemmtanir. Söngkvöld á að-
ventunni í beinni útsendingu á Face-
book er nokkuð sem ekki má vanta.
Þar erum við með nokkur jólalög
tilbúin og byrjuð að æfa fleiri.“
Söngvaseiður Frá vinstri: Brynja Sif, Sæbjörg Eva og Hlynur Snær syngja og leika og áhorfendur við tölvuna.
Sveitafólkið syngur
Bóndi og dætur heima í stofu Söngur og spil í beinni
útsendingu Þúsundir fylgjast með Lífið í Landeyjum
Hlynur Snær
Theódórsson
Facebook: Hlynur Snær
Theódórsson