Morgunblaðið - 19.11.2020, Síða 38
38 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
Kórónuveira sú, er
gengur undir nafninu
„Covid-19“, herjar nú
á heimsbyggðina með
víðtækum heilsufars-
legum og ekki síður
efnahagslegum af-
leiðingum. Ekkert
stöðvar för hennar
fyrr en bóluefni verð-
ur tilbúið. Íslenska
ríkisstjórnin hefur
mætt fárinu af fagmennsku með
lækna og vísindamenn sem ráð-
gjafa. Þríeykið fer fyrir liði af ein-
lægni með þekkinguna í handrað-
anum og Kára að baki sér. Hér
hefur betur tekist til en í flestum
löndum og þrátt fyrir varúð hefur
komið í ljós að hvergi má slaka á
klónni. Veiran fer um eins og
sinueldur og gýs upp við minnstu
eftirgjöf.
Auðvitað takast á heilsufarsleg
sjónarmið og miklir efnahagslegir
hagsmunir. Þessi skaðræðisveira
ræðst helst að öldruðum og veik-
um, en börn og ungmenni sleppa
að mestu leyti við hana. Staðfest
smit hér eru á sjötta þúsund ein-
staklingar og 27 látnir. Þessar töl-
ur eru háar en gætu verið í hæð-
um hefði heilbigðiskerfið brugðist.
Heilbrigðisþjónustan og heilbrigð-
isstéttirnar stóðust prófið. Þær
hlúðu að veikum og björguðu lífi
margra.
Með markvissri varúð hefur lífi
hundraða fólks verið bjargað.
Hvað efnahaginn varðar fer ekk-
ert í gang á veraldarvísu hvað
ferðalög varðar fyrr en bóluefni
sigrar óvininn. Það finnst engin
önnur lausn. Við Ís-
lendingar eigum eng-
an annan kost en
þreyja jólin, þorrann
og góuna með þá einu
von að heimurinn
verði frelsaður á vor-
dögum. Ég hefi dáðst
að málflutningi Þór-
ólfs og Ölmu og Víðis.
Þau koma fram af
hógværð en festu og
falla aldrei í þá
freistni að benda á
annan. Þau standa af
einurð með heilbrigðisráðherra og
ríkisstjórninni.
Við verðum að grímuklæðast til
vors en það þýðir að við getum
orðið fyrsta landið sem ferðamenn
vilja heimsækja, þegar um hægist.
Þar liggur von ferðaþjónustunnar.
Einn meginkostur mannverunnar
er hversu hún er oft fljót að aðlag-
ast breyttum aðstæðum. Ég tala
nú ekki um eins og þegar dauðinn
ógnar lífinu. Nú hlakka allir til
vorsins. Þá öðlumst við vonandi
frelsi á ný. Heimurinn er breyttur
og margt ber að endurskoða í
háttum okkar mannanna, þegar
veirunni hefur verið komið fyrir
kattarnef. Vonandi leggst gæfan á
eitt með vísindunum í þeim efnum.
Þreyjum jólin,
þorrann og góuna
Eftir Guðna
Ágústsson
Guðni Ágústsson
» Þríeykið fer fyrir liði
af einlægni með
þekkinguna í handrað-
anum og Kára að baki
sér.
Höfundur er fv. alþingismaður og
ráðherra.
Frá aldamótum
hefur legið fyrir ís-
lensk þýðing á Wind-
ows-stýrikerfinu, al-
gengasta stýrikerfinu
í einkatölvum. Micro-
soft stóð að þýðing-
unni í upphafi sam-
kvæmt samningi við
menntamálaráðu-
neytið. Árið 2008
veitti Microsoft yf-
irmönnum tölvudeilda
í grunnskólum Hafnarfjarðar
viðurkenningu fyrir að taka upp
íslenska þýðingu Windows. Í BA-
ritgerð Huldu Hreiðarsdóttur við
HÍ í íslensku um notkun íslenskra
þýðinga á stýrikerfum í grunn-
skólum Hafnarfjarðar segir að
notkun íslenskunnar hafi aukið
sjálfsöryggi nemenda og skilning
þeirra á tölvunotkun. Jafnframt
virðist sem nemendur í Hafn-
arfirði hafi notað íslensk orð um
tölvunotkun í meiri mæli en nem-
endur skóla sem notuðu enska út-
gáfu.
Í dag má velta fyrir sér hvers
vegna notkun íslenskra þýðinga á
stýrikerfum eigi undir högg að
sækja. Líkleg ástæða er að við
tæknimenn og kerfisstjórar forð-
umst íslenskuna. Ég finn því mið-
ur iðulega fyrir mikilli mótstöðu
og neikvæðni hjá minni stétt.
Hvers vegna? Kannski þóttu ís-
lensku þýðingarnar í upphafi asna-
legar, óþjálar eða lélegar? Eða er
ástæðan að tæknimenn þurfa að
hugsa meira við leit úrlausna á
netinu á tæknivandamálum sem
birtast þeim á íslensku? Gagna-
grunnurinn með úrlausnum á móð-
urmálinu okkar ylhýra er ekki
stór. Einnig kann
tregða notenda við að
breyta yfir í íslensku
að ráða för. Þar eig-
um við sölumenn,
tæknimenn og þeir
sem sjá um uppsetn-
ingu tölva ef til vill
þátt með því að tala
niður íslenska not-
endaviðmótið.
Tökum ákvörðun
um að nota ís-
lenskt viðmót
Ég hef notað kerfi
með íslenskt viðmót í allnokkurn
tíma. Má þar nefna gömlu Nokia-
símana, Android-stýrikerfið,
Microsoft Windows og Office.
Meira að segja man ég þá tíma
þegar Macintosh var á íslensku,
en Apple breytti um stefnu og
kerfið er því miður ekki lengur fá-
anlegt á íslensku. Ég held að það
sé sjaldgæft að tæknimaður, sem
undirritaður er einnig, noti ís-
lenskt viðmót á stýrikerfi í tölvu.
Ég byrjaði að nota íslenskuna sem
áskorun á sjálfan mig og til að
vera jákvæðari fyrir þá við-
skiptavini sem vildu íslenskt við-
mót. Þetta var í raun markviss
viðleitni til að auka þjónustuna.
Það tók mig ekki nema tvær vikur
að venjast íslenskunni og nú nota
ég að mestu íslenskt viðmót og hef
lagt metnað í að bjóða viðskipta-
vinum mínum það. Persónulega
finnst mér þýðingarnar í dag
nokkuð góðar; ég man ekki hve-
nær ég rakst síðast á skondna
þýðingu hjá Microsoft. Snýst þetta
bara um að velja íslenskt viðmót í
stjórnsýslu, sveitarfélögum og
skólum landsins?
Tryggjum framtíð
íslenskunnar innan
upplýsingatækninnar
Upplýsingatækni er mikilvægur
þáttur í daglegu lífi fólks. Þær
ánægjulegu fréttir bárust um dag-
inn að nýtt íslenskt smáforrit,
Embla, sem svarar spurningum á
íslensku og getur flett upp í Wi-
kipediu, er væntanlegt í snjall-
síma. Framkvæmd íslenskrar mál-
stefnu hlýtur að krefjast þess að
ríki, sveitarfélögum og grunn-
skólum sé skylt að bjóða íslenskt
viðmót þar sem það er fáanlegt.
Sjái framleiðendur kerfanna sér
ekki fært að bjóða tungumál að
eigin frumkvæði á að knýja þá til
að bæta þjónustu sína. Láti ís-
lenskir notendur við það sitja að
kaupa gallaða vöru að þessu leyti
vega þeir að eigin tungu og menn-
ingu. Mikilvægt er að notendur
venjist íslenskunni frá byrjun og
því ríður á að hugbúnaður í grunn-
skólum landsins sé á íslensku.
Hugsanlega reynist nauðsynlegt
að krefjast þess af söluaðilum að
þeir afhendi tölvur á íslensku.
Gerð er krafa um að innihaldslýs-
ingar á umbúðum og aðrar upplýs-
ingar séu á íslensku. Eiga stýri-
kerfi og notendaviðmót ekki einnig
að vera það? Allir geta skipt yfir í
ensku ef þeir vilja en lágmarks-
krafan er þó að upplýsinga-
tæknikerfi séu boðin á íslensku.
Hættum að tala ís-
lenska viðmótið niður
Reynsla mín er að notendur sem
taka upp íslenskt viðmót og nota
það í 30 daga vilji ekki hverfa frá
því.
Við endurnýjun tölvubúnaðarins
spyrja þeir oft sérstaklega hvort
þeir haldi ekki örugglega íslensk-
unni. Ég hef hins vegar þurft að
sannfæra starfsmenn og sam-
starfsaðila innan tölvugeirans um
að gott sé að nota íslenskuna. Þeir
tala íslenska viðmótið ítrekað nið-
ur og harðneita jafnvel að setja
það upp. Íslenska viðmótið geri
vinnu þeirra erfiðari. Ég stóð í
þeirra sporum fyrir nokkrum ár-
um en þarf nú í versta falli að
hugsa aðeins lengur við leit að
lausnum á veraldarvefnum. Ef við
viljum tryggja framtíð íslensk-
unnar er mikilvægt að við tækni-
menn þróum með okkur jákvætt
viðhorf til tungumálsins og sjáum
til þess að íslenskan sé notuð inn-
an upplýsingatækninnar.
Ríki og sveitarfélög spyr ég:
Hefur verið íhugað að gera
kröfu um að íslenskt notenda-
viðmót sé í tölvum hjá ríki, sveit-
arfélögum og grunnskólum?
Hvaða sveitarfélög og stjórn-
sýslustofnanir keyra nú þegar
stýrikerfi og notendahugbúnað á
íslensku?
Hvaða afstöðu hefur mennta-
málaráðherra til þess að skylda
sölu- og dreifingaraðila til að selja
og dreifa tölvum með íslenskt við-
mót?
Að keyra íslensku inn í hug-
búnað ætti að vera minna mál en
að fá áprentaða íslenska stafi á
lyklaborðið. Til að ná þessu mark-
miði þurfum við að fá í lið með
okkur sterka kerfisstjóra og
tæknimenn sem draga vagninn og
sýna gott fordæmi.
Er „download“ flottara
en „niðurhal“?
Eftir Valgeir
Ólafsson
»Reynsla mín er að
notendur sem taka
upp íslenskt viðmót og
nota það í 30 daga vilji
ekki hverfa frá því.
Valgeir
Ólafsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Tölvuaðstoðar
valgeir@tolvuadstod.is
Word á íslensku
Windows stillingar á íslensku
Fasteignir
SMARTLAND
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
Lukkutröll í jólapakkann
BÖRN
5.990,- stk
FULLORNIR 6.990,- stk
Töfrahlið 5.590,-
JÓLAHÚS
14.990,-
Jólatré
lítið 2.690,-