Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 40
40 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
Íslensk-danski
myndhöggvarinn Ber-
tel Thorvaldsen var
einn þekktasti lista-
maður Evrópu um
sína daga og hlotn-
aðist á langri ævi
nánast hver sá heiður
sem listamanni getur
fallið í skaut. Í dag,
19. nóvember, eru 250
ár liðin frá fæðingu
hans. Af því tilefni er
ærin ástæða til að minnast veg-
lega þessa stórmerka myndhöggv-
ara hér á landi bæði vegna upp-
runa hans og ræktarsemi sem
hann sjálfur sýndi „Íslandi, ætt-
arlandi sínu“.
Bertel sótti innblástur til klass-
ískrar myndlistar Forn-Grikkja og
Rómverja og er talinn einn helsti
fulltrúi nýklassíska stílsins í högg-
myndalist ásamt hinum ítalska
Antonio Canova. Thorvaldsen var
lengst af búsettur í Róm og vann
þar meðal annars verk fyrir páf-
ann, Napóleon og margar af kon-
ungsfjölskyldum álfunnar. Er
hann eini myndhöggvarinn sem á
verk í Péturskirkjunni í Róm sem
er ekki kaþólskur. Finna má verk
Thorvaldsens um all-
an heim, ýmist í söfn-
um, kirkjum eða utan-
dyra.
Thorvaldsen-safnið í
Kaupmannahöfn varð-
veitir verk Bertels
Thorvaldsens og held-
ur minningu hans á
lofti. Er listamað-
urinn jarðsettur í
garði safnsins.
Fagnað sem
þjóðhetju
Bertel Thorvaldsen
fæddist í Kaupmannahöfn árið
1770 og ólst þar upp. Faðir hans,
Gottskálk Þorvaldsson, prests-
sonur úr Skagafirði, var fæddur
árið 1741. Fór hann ungur til iðn-
náms í Kaupmannahöfn og lærði
myndskurð í tré og vann síðar við
að skera út stafnmyndir á skip og
höggva í stein. Móðir Bertels hét
Karen Dagnes, fædd á Jótlandi
1735 þar sem faðir hennar var
djákni. Þau hjónin bjuggu við
frekar þröngan kost en snemma
komu listrænir hæfileikar einka-
sonarins í ljós og hóf hann nám
við Kunstakademiet eða Kon-
unglega listaháskólann í Kaup-
mannahöfn árið 1781, aðeins 11
ára að aldri, og lauk þar námi árið
1793. Hlaut hann fjölda verðlauna
og viðurkenninga fyrir verk sín,
meðal annars ferðastyrk sem
gerði honum kleift að fara til
Rómar árið 1796. Borgin var þá
háborg menningar og lista og bjó
Thorvaldsen þar við góðan orðstír
allt til ársins 1838 er hann flutti
aftur til Danmerkur og var honum
þá fagnað sem þjóðhetju.
Eftirsóttasti
myndhöggvari Evrópu
Bertel Thorvaldsen gerði rúm-
lega 90 frístandandi höggmyndir,
tæplega 300 lágmyndir og yfir 150
brjóstmyndir auk mikils fjölda af
teikningum, skissum og módelum.
Í safni Thorvaldsens eru varð-
veittar upprunalegar gifsmyndir
af flestum verka hans, en þar má
einnig sjá mörg verk hans höggvin
í marmara eða steypt í brons.
Thorvaldsen varð á sínum tíma
einn eftirsóttasti myndhöggvari
Evrópu og fékk pantanir frá kon-
ungshirðum og aðalsfólki víðs veg-
ar að. Mörg helstu verka hans
sækja efnivið sinn og fyrirmyndir
í grísk-rómverska goðafræði og
kenningar Winckelmanns og Less-
ings um yfirburði grískrar klass-
ískrar höggmyndalistar þar sem
lögð var áhersla á hreinleika
marmarans og fullkomnun forms-
ins.
Fjöldi verka á Íslandi
Í Reykjavík eru þrjár bronsaf-
steypur af verkum Thorvaldsens í
almannarými auk þess sem þrjú
verka Thorvaldsens höggvin í
marmara eru í opinberri eigu. Í
kirkjugörðum landsins má sjá lág-
myndir Thorvaldsens á fjölmörg-
um legsteinum og í söfnum lands-
ins eru varðveittar ýmsar
eftirgerðir af vinsælustu verkum
hans. Nálgast má upplýsingar um
verk Bertels Thorvaldsens á ís-
lenskum söfnum á vefnum sarp-
ur.is. Ekkert verk Thorvaldsens
hefur enn verið sett upp úti við á
slóðum ættmenna hans í Skaga-
firði þó að sú tillaga hafi verið
borin upp. Til að heiðra minningu
hins mikla listamanns væri ekki
úr vegi að koma því í verk, „í
ræktarskyni“ eins og hann sjálfur
orðaði það þegar hann gaf Dóm-
kirkjunni í Reykjavík skírnarfont
eftir sig árið 1827. Það má líka
með sanni segja að rekja megi
hina listrænu æð Thorvaldsens til
Íslands að hluta en ævistarf hans
varpaði skærum ljóma á danska
konungsríkið.
Eftir Silju Dögg
Gunnarsdóttur » Í dag eru 250 ár liðin
frá fæðingu íslensk-
danska myndhöggv-
arans Bertels Thorvald-
sens. Hann var einn
þekktasti listamaður
Evrópu um sína daga.
Silja Dögg
Gunnarsdóttir
Höfundur er forseti Norðurlandaráðs
og þingmaður Framsóknarflokksins.
siljadogg@althingi.is
Minnumst myndhöggvarans Bertels Thorvaldsens
Albert Bertel Thorvaldsen
Vinnuverndar-
stofnun Evrópu
hefur um langt ára-
bil haldið úti for-
varnarverkefnum og
í ár og næstu tvö ár-
in er þemað: Vinnu-
vernd er allra hagur.
Hæfilegt álag – heil-
brigt stoðkerfi. Sér-
stakur stýrihópur fer
fyrir verkefninu hér
á landi sem í eiga
sæti, auk Vinnueftirlitsins,
félagsmálaráðuneytið, samtök að-
ila vinnumarkaðarins og VIRK –
starfsendurhæfing-
arsjóður.
Átakið miðar að því
að auka vitund um að
vinnutengd
stoðkerfisvandamál
gera vart við sig í öll-
um atvinnugreinum
og störfum. Jafnframt
að sýna fram á að
hægt sé að koma í
veg fyrir stoðkerf-
isvandamál og hafa
áhrif á þau með
markvissum aðgerð-
um. Markmiðið er að
hvetja atvinnurekendur, starfs-
menn og aðra hagsmunaaðila til
að vinna saman að forvörnum
gegn stoðkerfisvandamálum.
Vinnutengd stoðkerfisvandamál
hafa áhrif á starfsmenn á öllum
aldri og í öllum gerðum starfa.
Forvarnir gegn áhættuþáttum
sem geta leitt til vinnutengdra
stoðkerfisvandamála eru mik-
ilvægar til að stuðla að sjálfbærni
vinnunnar, þannig að starfsmenn
komi heilir heim eftir vinnudag-
inn og séu heilir heilsu í lok
starfsævinnar. Slíkar forvarnir
eru einkum mikilvægar með hlið-
sjón af hækkandi aldri starfandi
fólks og stefnu um aukna at-
vinnuþátttöku meðal eldri aldurs-
hópa.
Stoðkerfisvandi er útbreiddasta
vinnutengda heilbrigðisvandamálið
í Evrópu og ein algengasta orsök
örorku, veikindaleyfa og
snemmbúinnar lífeyristöku. Þar af
leiðandi dregur hann ekki einungis
úr lífsgæðum einstakra starfs-
manna heldur hefur líka neikvæð
áhrif á fyrirtæki og efnahag landa.
Það er því til mikils að vinna að
bæta heilsu og vellíðan starfs-
manna. Ekki aðeins fyrir þá sjálfa
heldur gerir það fyrirtæki sam-
keppnishæfari og dregur úr álagi á
og kostnaði við heilbrigðiskerfið.
Til að vekja athygli á málefninu
og undirstrika mikilvægi þess
stendur Vinnueftirlitið fyrir vef-
ráðstefnunni „Meira vinnur vit en
strit“ í dag milli 13.00 og 15.55.
Þar verður málið skoðað út frá
ýmsum hliðum svo sem heilsuefl-
ingu á vinnustöðum, kostnaði við
endurhæfingu og skaðabótarétti.
Ráðstefnunni verður streymt
beint af vef Vinnueftirlitsins og er
öllum opin.
Eftir Gunnhildi
Gísladóttur » Stoðkerfisvandi
er útbreiddasta
vinnutengda heilbrigðis-
vandamálið í Evrópu
og ein algengasta
orsök örorku.
Gunnhildur
Gísladóttir
Höfundur er sérfræðingur hjá
Vinnueftirlitinu.
Meira vinnur vit en strit
Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími7.30-16.30
Gjafabréf
Kjötsmiðjunnar
eru fullkomin
í jólapakkann
fyrir starfsfólkið.
Eða til að gleðja
nákominn sælkera
með góðu kjöt.