Morgunblaðið - 19.11.2020, Side 56
Hrós vikunnar Kennarar landsins hafa staðið sig vel á þessum erfiðu tímum.
Hér á K100 stefnum við ávallt að
því að „hækka í gleðinni“ og er því
viðeigandi að í hverri viku sé ein-
hverjum gefið uppbyggilegt hrós.
Það er sérstaklega mikilvægt að
hrósa því sem vel er gert. Bæði
höfum við öll gott af því að fá hrós
sem og að gefa það áfram. Hvað
þá núna þegar vetur konungur er
mættur í öllu sínu veldi og tak-
markanir vegna Covid hafa verið
gífurlegar.
Kennarastéttin á hrós skilið
Það er söng- og fjölmiðlakonan
Karitas Harpa Davíðsdóttir sem
veitir hrósið í þessari viku.
„Hrós mitt fær kennarastéttin, í
þessu hrósi tala ég sérstaklega til
kennara sonar míns. Ég vil hrósa
kennara hans fyrir að taka á móti
honum hvern morgun með bros á
vör, tilbúin/n að leiðbeina honum
meðan hann tekur sín fyrstu skref
um menntaveginn.
Þar sem samband skóla og for-
eldra er mikilvægt hefur kenn-
arinn tekið að sér að taka á móti
syni mínum í dyrunum og fylgja
honum inn þar sem ég má ekki
koma inn í bygginguna,“ segir
Karitas.
Hún segist vilja hrósa kennara
sonar síns fyrir jákvæða og upp-
byggilega skólareynslu á þessum
erfiðu tímum.
„Fyrir sveigjanleika og aðlög-
unarhæfni eftir því sem yfirvöld
boða hverju sinni, það er ekki látið
bitna á barninu að allt sé með
breyttu sniði.
Kennarinn fer frá heimili sínu
hvern morgun, frá fjölskyldu sinni,
til þess að sinna syni mínum og
hans bekkjarfélögum og gera sitt
allra besta til að þau finni ekki hve
miklar breytingar eru raunveru-
lega í gangi og fái að upplifa eins
„venjulegasta“ skólagöngu og
mögulegt er á svona tímum.
Ég get alveg lofað því að það
hefur farið aukinn tími, aukin
orka, aukið þrek og þol í allan
þennan undirbúning og úrvinnslu,
nú veit ég ekki fyrir víst, en geri
ekki ráð fyrir því að kennari hans
né aðrir kennarar fái sérstaklega
greitt fyrir alla þá aukavinnu sem
þau hafa þurft að leggja í daglega
kennslu, en fyrir þessa stétt er ég
gífurlega þakklát og vil hrósa þeim
fyrir að setja börnin okkar og líð-
an þeirra í forgang.“
Fylgist með á K100.is þar sem
við höldum áfram með hrós vik-
unnar og ef þú lumar á jákvæðu
hrósi endilega deildu því með okk-
ur.
Karitas Harpa
hrósar kennur-
um landsins
Karitas Harpa Davíðsdóttir vill hrósa kennarastétt-
inni fyrir vel unnin verk á skrítnum tímum. Hún er
þakklát fyrir það að sonur hennar skuli fá jákvæða
og uppbyggilega skólareynslu þrátt fyrir Covid.
Jákvætt Karitas Harpa
Davíðsdóttir er þakklát
fyrir kennara sonar síns.
Hrós vikunnar fær kennarastéttin í heild sinni
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
NETKAST 7.- 12. okt.
Outdoor Ultra
Verð 17.995.- / Stærðir: 36-41
HLÝIR OGVATNSHELDIR
DÖMU KULDASKÓR