Morgunblaðið - 19.11.2020, Síða 58
58 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fyrirtæki og verslanir
Hnetubrjótur
3 teg. 89 cm
Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is
Mixbox Gold
25 stk. ks.
Dinnerkerti
Tré Silver 27 cm
Jólapoki-Nutcracker
2 teg. 26x32 cm LEDJólasveinn
120 cm
Upph.
Nutcracker
Bear 11cm
Viðararinn
23x100x115 cm
Dýrin í Skóginum
Hvít 27 cm
Fiður stelpa
2 teg. 22 cm
Jólapappír
Metalic
5 teg. 2 mtr
LED Vax Wave Kerti 3 stk. sett
LED Jólatré
Prelit 2 teg.
30 cm
Fuglar Glitter Gold
2 teg 19 cm
Jólatré Snowy
210 cm 900 l
Grenigrein
m/könglum 38 cm
Fullt af
fallegri vöru
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu það ekki stöðva þig, þótt
stundum sé erfitt að fá ákveðin svör. Gerðu
því ekkert sem getur varpað skugga á
samband þitt og þeirra sem þér eru kærir.
20. apríl - 20. maí
Naut Hringdu í foreldra þína eða sendu
þeim kort í dag. Jafnvel hlutir sem þér
þykja hversdagslegir geta þarfnast full-
komnunar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það eru ýmsir lausir endar sem
þú þarft að hnýta áður en persónulegt mál
telst farsællega í höfn.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að gera upp hug þinn til
vandasams verkefnis. Fyrir því liggja vissar
ástæður sem þú munt fá að vita í fyllingu
tímans.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Andstæðan við það að tala er ekki að
bíða. Ræddu það sem þig langar til þess að
gera við aðra, fólk skilur þig núna.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er hvorki staður né stund til að
vera tilfinningalega lokaður. Lausnir
margra mála liggja nær þér en þú vilt í
fljótu bragði viðurkenna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér er óhætt að hafa háleitar hug-
myndir ef þú hefur fæturna bara á jörðinni.
Spáðu í að flytja, þó ekki væri nema á ann-
an stað í sama hverfi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú veist öðrum betur hvað
þér er fyrir bestu svo vertu óhræddur við
að fara þínar eigin leiðir. Að skipta auðveld-
lega um gír gæti gefið gull í mund.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú færð alltof lítinn tíma til að
sinna verkum þínum. Vinir þínir geta einnig
komið þér skemmtilega á óvart.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Skoðanir þínar falla í misgóðan
jarðveg svo þú þarft að temja þér háttvísi
við kynningu þeirra. Næsta mánuðinn er
best að vinna á bak við tjöldin og hafa sig
ekki í frammi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er alveg hægt að rökræða
við fólk án þess að allt fari í hund og kött.
Losaðu þig við skuldir og hvers konar
drasl.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það getur verið nauðsynlegt að
vera einn með sjálfum sér um tíma. Bæði
vinir og óvinir eru kennarar og maður lærir
mest af þeim sem maður er mest með.
hvernig hægt sé að hafa áhrif á nið-
urstöður könnunar með niðurröðun
spurninga. „Þegar þú ert að spyrja
ákveðinna spurninga, skiptir sam-
hengið ótrúlega miklu máli.“
Þegar hjónin komu heim frá
myndi sjá um barnið, en á þessum
tíma þurfti að fá dvalarleyfi í land-
inu. Guðbjörg blómstraði í náminu
og vildi læra allt sem hún gat um
aðferðafræði skoðanakannana, en
doktorsritgerð hennar fjallaði um
G
uðbjörg Andrea Jóns-
dóttir fæddist 19. nóv-
ember 1960 í Framnesi
í Mýrdal, næstelst
fjögurra barna
hjónanna Ingibjargar Ásgeirs-
dóttur frá Framnesi og Jóns Ein-
arssonar, kennara í Skógaskóla.
Þau bjuggu í Framnesi hjá for-
eldrum Ingibjargar en fluttu að
Skógum þegar Guðbjörg var rúm-
lega hálfs árs. „Það var dásamlegt
að alast upp í sveitinni. Þar var stór
hópur barna kennaranna í Skóga-
skóla og við ólumst þarna upp eins
og systkini og tengsl okkar eru
ennþá sterk.“
Eftir landspróf fór Guðbjörg í
Menntaskólann við Hamrahlíð á ný-
málasvið. „Ég þekkti engan í skól-
anum þegar ég byrjaði, en bara á
fyrstu dögunum eignaðist ég mínar
bestu vinkonur.“ Á síðasta árinu í
MH var hún í sálfræðiáfanga, en
það var þó ekki fyrr en hún fór að
vinna á meðferðarheimilinu á Kleif-
arvegi sem hún fékk virkilegan
áhuga á faginu og skráði sig í sál-
fræði í Háskóla Íslands. „En ég var
reyndar ótrúlega fljót að missa
áhugann. Þegar ég var komin á
annað árið var ég að spá í að hætta,
en pabbi sagði að ég yrði að klára
það sem ég byrjaði á,“ sem hún
gerði og lauk BA-prófi 1984. Guð-
björg fann sig ekki í þeim kúrsum
sem leiddu til frekara náms í klín-
ískri sálfræði en segir að hún hafi
fundið sig í aðferðafræðinni og töl-
fræðinni.
Guðbjörg kynntist eiginmanni
sínum, Jóhanni Friðriki Klausen, í
háskólanum og þau ákváðu að fara
til Lundúna þar sem Guðbjörg
hugði á frekara nám. „Við bjuggum
í London í fjögur ár, frá 1985-89, en
komum heim þegar ég var ófrísk að
dóttur minni.“ Guðbjörg gekk í
London School of Economics, þar
sem hún nam félagssálfræði og lauk
meistaraprófinu 1986 og dokt-
orsprófinu lauk hún frá sama skóla
2004. Jóhann var heima með
þriggja ára son þeirra og Guðbjörg
hlær þegar hún rifjar það upp
hversu erfitt það var að útskýra
það fyrir Bretunum að faðirinn
Bretlandi fór Guðbjörg að kenna í
MH og við Félagsvísindadeild HÍ.
Árið 1996 varð hún forstöðumaður
þróunarsviðs Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur. „Þetta var mjög
skemmtilegur tími. Það var verið að
byggja upp fræðslumiðstöðina, afla
tölfræðilegra upplýsinga um skóla-
kerfið og hanna stjórnkerfi Reykja-
víkurborgar varðandi rekstur á
grunnskólunum, en þeir voru að
taka við skólunum frá ríkinu á þess-
um tíma.“
Guðbjörg var ráðin rannsókn-
arstjóri Capacent Gallup árið 2005.
„Þarna var ég komin inn í það um-
hverfi sem ég hafði menntað mig
sérstaklega til, sem er gerð kann-
ana. Ég lærði afskaplega mikið af
því að vera hjá einkafyrirtæki og
kynntist mörgu góðu fólki.“
Frá árinu 2010 hefur Guðbjörg
verið forstöðumaður Félagsvís-
indastofnunar Háskóla Íslands.
„Mesta vinnan hefur farið í upp-
byggingu rannsóknainnviða í
félagsvísindum. Við höfum verið að
taka þátt í stórum alþjóðlegum
könnunum reglulega, en með þeim
er verið að fylgjast með breytingum
á viðhorfum í samfélaginu. Svo höf-
um við líka verið byggja upp gagna-
þjónustu, þ.e. að gera þessi gögn
aðgengileg, svo hver sem er geti
komist í gögnin og unnið með þau.“
Þegar hún er spurð um hvað sé
að breytast nefnir hún að mikið hafi
dregið úr trausti til stjórnvalda,
sérstaklega eftir hrunið, en þó sé
áhugavert í því sambandi að Ísland
hefur þar talsverða sérstöðu, því
enn ríki mikið traust á Íslandi í
samanburði við önnur Evrópulönd.
Núna er Guðbjörg í námsleyfi og er
að taka mjög áhugaverðan kúrs í
sínum gamla háskóla í London um
gervigreind og hvernig er hægt að
nýta sér hana til að vinna með stór
gagnasöfn. Eftir að hún fann sína
hillu hefur áhuginn á faginu bara
aukist með árunum.
Það er ekki að spyrja að því að
sveitastelpan er mikið fyrir útivist.
„Við hjónin erum í gönguhópnum
Afturgöngurnar, sem dregur nafn
sitt af því að við göngum alltaf aftur
og aftur,“ segir hún og hlær. Hóp-
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands – 60 ára
Fjölskyldan Frá vinstri Andri, Jóhann Friðrik, Herdís með Friðrik Úlf, Jón
og Guðbjörg Andrea. Myndin er tekin þegar Jón útskrifaðist frá MH 2019.
Samhengið skiptir miklu máli
Gönguferð Með góðum vinum af Fræðslumiðstöð á Laka í ágúst 2020 í tilefni
af 70 ára afmæli Ingunnar Gísladóttur fyrr á árinu. Frá vinstri Þorvarður
Kári Ólafsson, Grétar Guðmundsson, Ingunn Gísladóttir, Gerður G. Ósk-
arsdóttir, Anna Kristín Sigurðardóttir, Jóhann Friðrik og Guðbjörg Andrea.
Til hamingju með daginn
Stykkishólmur Finnur Óliver Corp-
in Hinriksson fæddist 13. febrúar
2020 kl. 23.23. Hann vó 2.236 g
og var 45 cm langur. Foreldrar
hans eru Bernadette S. Corpin og
Hinrik Elvar Finnsson.
Nýr borgari
30 ára Harpa ólst upp
í Kópavogi en býr núna
í miðbæ Reykjavíkur.
Harpa er með BA í
myndlist og lærði förð-
unarfræði. Hún vinnur
við kvikmyndagerð í
búningadeild og sem
sminka. Hún hefur einnig unnið í leikhúsi
og í ýmsum sjálfstætt starfandi verk-
efnum. Henni finnst gaman að vinna í
verkefnum með stórum hópi af fólki.
Maki: Víkingur Kristjánsson, f. 1989,
vinnur í kvikmyndum og veitingageir-
anum.
Foreldrar: Oddný Halla Haraldsdóttir, f.
1955, myndlistarkennari og Finnur Logi
Jóhannsson, f. 1956, búfræðingur og
smiður.
Harpa
Finnsdóttir
30 ára Elva Katrín
ólst upp í Danmörku
og í Hafnarfirði. Núna
býr hún í Reykjavík.
Elva Katrín er með
meistaragráðu í
mannauðsstjórnun frá
HR. Hún var að vinna í
ferðamálageiranum en er núna að sinna
börnum og búi þar til ástandið lagast.
Helstu áhugamál Elvu Katrínar eru úti-
vera og samvera með fjölskyldunni.
Maki: Brynjar Þór, f. 1984.
Börn: Kristófer Arnar, f. 2009, og
Elías Þór, f. 2019.
Foreldrar: Kristín Erla Einarsdóttir, f.
1969, verkfræðingur og Elías Birgir
Andrésson, f. 1964, pípulagningamaður,
d. 2018.
Elva Katrín
Elíasdóttir