Morgunblaðið - 19.11.2020, Page 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
mánudaga - sunnudaga 12-18
20-25%
Sparadu-
af borðstofu-
húsgögnum
Lýkur á mánudag
20%
Sparadu-
af borðbúnaði
20%
Sparadu-
af jólavörum
Frí heimsending
á höfuðborgarsvæðinu
ef verslað er fyrir
5.000 kr. eða meira
Yfirlitssýning á verkum myndlistarmannsins Sigurðar
Árna Sigurðssonar, ÓraVídd, verður opin fyrir gesti
Kjarvalsstaða frá og með deginum í dag. Vegna veiru-
faraldursins verður ekki um formlega sýningaropnun
að ræða og geta 10 gestir verið í safninu á hverjum
tíma. Verkin á sýningunni spanna um þrjátíu ára feril
Sigurðar Árna. Í tengslum við sýninguna gefur Lista-
safn Reykjavíkur út veglega sýningarskrá með ljós-
myndum af sýningunni, myndum af verkum og textum
um Sigurð Árna og viðfangsefni hans.
Umfangsmikil yfirlitssýning á verk-
um Sigurðar Árna á Kjarvalsstöðum
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 324. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Allar líkur eru á því að Ísland sé á leiðinni í lokakeppni
EM U21-árs landsliða í knattspyrnu í annað sinn á
næsta ári en mótið fer fram í Ungverjalandi og Slóven-
íu. Íslandi verður líklega úrskurðaður sigur gegn Arme-
níu sem varð að draga sig úr keppni og mun það duga
til að enda í öðru sæti riðilsins. Eiður Smári Guðjohn-
sen þjálfari ræddi við Morgunblaðið í gær um ævintýrið
í undankeppninni þar sem Ísland lenti í gríðarlega erf-
iðum riðli. Hann segist stoltur af liðinu og því afreki
sem það hefur unnið við erfiðar kringumstæður. »61
Ísland fer að öllum líkindum á EM
U21-árs landsliða á næsta ári
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bókin Ein er fyrsta skáldsaga Ásdís-
ar Höllu Bragadóttur en áður sendi
hún frá sér minningabækurnar Tví-
sögu og Hornauga. Að þessu sinni
beinir hún augum sínum að einsemd-
inni, sem er dauðans alvara, í átak-
anlegri og raunsærri spennusögu.
„Einsemdin
hefur alltaf verið
hluti íslenska
samfélagsins, en í
fyrsta sinn er fjöl-
mennur hópur
eldra fólks mikið
einn heima,“ segir
hún. „Við höfum
ekki enn lært að
passa upp á þennan hóp félagslega,
hvorki sem aðstandendur né sveit-
arfélögin eða ríkið í sínu hlutverki.
Þessu verður að breyta og ég vona að
bókin veki einhverja til umhugs-
unar.“
Ásdís Halla var einn stofnenda
Sinnum heimaþjónustu 2008. Hún
segir að þá hafi hún stundum hlaupið
í skarðið að lokinni skrifstofuvinnu
dagsins og sinnt öldruðu og lang-
veiku fólki á heimilum þess. Hún hafi
verið mjög hugsi yfir einsemdinni,
sem hún hafi víða orðið vör við, og oft
átt erfitt með að fara út af heimilum
og skilja íbúana eftir eina. „Veruleiki
þessa fólks, sem býr eitt, jafnvel sárt
og kvalið, opnaðist fyrir mér og síðan
hefur blundað í mér að miðla af
reynslunni og skrifa skáldsögu, sem
endurspeglaði líf einstæðinga en
væri um leið áhugaverð, skemmtileg
og spennandi.“
Mein í einveru og samskiptum
Sagan gerist á föstudaginn langa í
ár og sviðið er fyrst og fremst blokk
við Aflagranda í Reykjavík, en frá-
sögnin teygir anga sína til Ísafjarðar
og vestur um haf til New York. Ásdís
Halla segist hafa byrjað á henni í
fyrra og tilviljun hafi ráðið því að
kórónuveirufaraldurinn hafi blandast
í málið. Hún hafi verið á fullu í að
breyta Hótel Íslandi í heilsuhótel,
þegar faraldurinn hafi skollið á. „Þá
upplifðum við mjög sterkt að við
hefðum því miður litla sem enga
stjórn á rekstrinum,“ segir hún. Nýj-
ar reglur hafi oft tekið gildi með
skömmum fyrirvara og á svipstundu
hafi rekstrargrundvellinum verið
kippt undan fótunum á þeim. „Þá var
gott að fara heim í lok langs vinnu-
dags og setjast niður við skriftir þar
sem maður ekki bara stjórnar at-
burðarásinni heldur skapar persón-
urnar og er með örlög þeirra í hönd-
unum. Um leið er gefandi að hafa
getað notað þetta andrúmsloft til að
ljúka sögunni, sem ég vona að eigi er-
indi og ég er mjög þakklát fyrir við-
tökur lesenda.“
Helstu persónur sögunnar eiga sér
nokkrar fyrirmyndir, að sögn Ásdís-
ar Höllu. „Þeir, sem þekkja til, kann-
ast eflaust við karaktereinkennin,“
segir hún, en einstaklingar túlki og
upplifi hlutina með misjöfnum hætti
og því sé undirtitillinn, (ó)sönn
(skáld)saga, tvíræður. „Þetta er
skáldsaga, en ég skrifa að mestu leyti
um það sem ég hef séð, hugsað út í,
fólk sem ég hef hitt, kynnst. Því má
kalla þetta raunsæissögu.“
Ásdís Halla leggur áherslu á að
það að vera einn sé ekki alltaf það
sama og að vera einmana, en því mið-
ur megi oft setja samasemmerki þar
á milli. Bókin heitir Ein en fyrir
framan er stafurinn M frekar
ógreinilegur. „Í hönnuninni leikum
við okkur með þennan undirliggjandi
tón, sem er mein, sem getur verið
mein í einverunni eða mein í mann-
legum samskiptum. Ef við vöndum
okkur ekki og komum ekki fallega
fram við hvert annað getur setið eftir
djúpt mein.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rithöfundur Ásdís Halla fetar nýjar slóðir og beinir augum að einsemdinni.
Einsemd er átakanleg
og dauðans alvara
Ásdís Halla sendir frá sér spennandi raunsæissögu