Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 42
42 STJÓRNMÁL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
Árið 2020 olli vonbrigðum. En hver verða áhrif ársinsþegar fram líða stundir? Hátt í tvær milljónir manna hafa dáið af völdum far-aldursins og margfalt fleiri gengið í gegnum erfið veik-
indi. Efnahagslegt tjón er slíkt að niðursveiflan er sums staðar sú
mesta um árhundruð. Fjöldi fólks hefur misst vinnuna og orðið
fyrir miklu eignatjóni.
Þó er mikilvægt að huga að heildarsamhengi hlutanna, fortíð-
inni og framtíðinni. Á flesta mælikvarða voru flest ár mannkyns-
sögunnar verri en árið 2020. Framfarir liðinna ára og alda hafa
gert okkur kleift að takast á við sjúkdóma og efnahagsþrenging-
ar betur en áður. Þær framfarir komu ekki af sjálfu sér. Þær
byggðust á grundvallargildum sem munu reynast mikilvæg í því
uppbyggingarstarfi sem í hönd fer. Á liðnu ári hefur þó orðið bak-
slag í virðingu fyrir þessum gildum, ný, órökrétt og eyðileggjandi
hugmyndafræði ruddi sér til rúms hraðar en áður. Umræða um
þessi mál er skammt á veg komin á Íslandi en þó birtast áhrifin
víða.
Hinn nýi rétttrúnaður
Víða á Vesturlöndum hefur samhengið við söguna slitnað. Sú
tilfinning var orðin ríkjandi að allt kæmi af sjálfu sér. Jafnvel að
því marki að þau gildi sem hafa skilað okkur mestum árangri
væru gamaldags og óþörf. Hlutir eins og fullveldi þjóða, vinnu-
semi, fórnfýsi, þrautseigja, rökræða, samstaða, fyrirgefning og
þannig mætti lengi telja.
Í staðinn hefur nýr rétttrúnaður rutt sér til rúms, byggður á
yfirborðsmennsku, marklausum frösum og umbúðum frekar en
innihaldi. Vonir margra um að heimsfaraldurinn og áhrif hans
myndu reynast áminning um það sem raunverulega skiptir máli
stóðust ekki. Þvert á móti, með faraldrinum breiddist rétttrún-
aðurinn út sem aldrei fyrr og vald hans og óbilgirni jókst. Heil-
brigð skynsemi og jafnvel vísindalegar staðreyndir og gamal-
reyndar rannsóknaraðferðir eru látnar víkja fyrir því sem telst
rétt að mati hugmyndafræðinnar. Hugmyndafræði sem í aukn-
um mæli minnir á ýmsa þá öfgahyggju sem náði tökum á mörg-
um samfélögum á liðinni öld.
Gerð er krafa um fortakslausa fylgispekt við rétttrúnaðinn og
þeir sem láta ekki undan eiga ekki von á góðu. Nornaveiðar og út-
skúfun mæta mörgum þeirra sem leitast við að efna til rökræðu,
segja eitthvað vanhugsað eða bara eitthvað sem hægt er að snúa
út úr.
Snjókornin
Rétttrúnaðarreglan er að miklu leyti sprottin úr háskólum,
ekki hvað síst í enskumælandi löndum, en á rætur í hugmynda-
fræði þeirra sem kölluðu sig póstmódernista upp úr miðri síðustu
öld. Sá hópur var þá mjög á jaðrinum og fannst helst innan
vinstrisinnaðrar mennta- og menningarelítu þess tíma.
Unga fólkið sem aðhyllist nú þessa hugmyndafræði er stund-
um kallað snjókornin. Með því er vísað til þeirrar möntru að hver
einstaklingur sé einstakur og viðkvæmur. Vissulega er hver
manneskja einstök en gallinn er sá að kenningin gengur út á að
fyrir vikið þurfi heimurinn að laga sig að hverjum og einum. Allt
gengur út á réttindi en skyldur koma hvergi við sögu. Frægum
orðum John F. Kennedy „ekki spyrja hvað landið þitt getur gert
fyrir þig heldur hvað þú getur gert fyrir landið“ hefur nú verið
snúið á haus.
Snjókornin þola ekkert áreiti og ekkert sem fellur illa að fyrir-
fram mótuðum hugmyndum þeirra. Fyrir vikið hafa háskólar
sem áður töldust leiðandi í því að innleiða gagnrýna hugsun og
stuðla þannig að framförum nú lagt áherslu á að vernda stúdenta
fyrir öllu því sem þeim gæti þótt ögrandi. Útbúin eru sérstök
„örugg rými“ þar sem menn geta verið lausir við allt sem truflar
sjálfhverfuna. Sums staðar er slíkum svæðum skipt upp eftir
kynþáttum í samræmi við hina nýju kynþáttahyggju. „Vafasam-
ar“ bækur (og þeim fjölgar jafnt og þétt) eru ýmist bannaðar
(jafnvel brenndar) eða merktar með sérstakri aðvörun um að
innihaldið geti reynst ögrandi fyrir einhverja. Fyrirlesurum sem
merktir hafa verið útskúfunarstimpli er meinað að halda erindi,
jafnvel með valdi. Nemendur hafa tekið að segja kennurum sín-
um hvað þeir megi segja og hvað ekki. Í virtustu háskólum
Bandaríkjanna haga stúdentar sér stundum eins og byltingarráð
og senda skólastjórnendum langa lista af furðulegum kröfum um
hvernig starfseminni skuli háttað.
Öllu er snúið á hvolf
Áður var það hlutverk kennara að veita nemendum ögrandi
fróðleik. Nú leggja námsmennirnir línurnar. Áður var það hlut-
verk fullorðins fólks að vernda börn og ala þau upp. Nú halda
stjórnmálamenn um allan heim því fram að við eigum að láta
börn leiða fullorðna, jafnvel í flóknum málum eins og loftslags-
málum og stjórnun hagkerfa. Þar, eins og alls staðar í hinni nýju
ímyndarpólitík, leggur orðræðan línurnar en ekki raunveruleik-
inn. „Við þurfum að hlusta á börnin,“ endurtaka stjórnmálamenn
hver um annan þveran. Setningin „við þurfum að hlusta á börnin“
hljómar vel en á hún við þegar börnin eru að krefjast þess að los-
un gróðurhúsalofttegunda verði hætt fyrir 2025? – Gera kröfur
sem eru óframkvæmanlegar og bara það að reyna að ná mark-
miðinu myndi valda mestu manngerðu kreppu sögunnar og stór-
auka fátækt.
Eru stjórnmálamennirnir þá raunverulega að hlusta á börnin
eða skáka í skjóli þeirra og sveipa sig hljómgóðum en innihalds-
lausum frösum? Og er réttlætanlegt að valda börnum angist með
því að telja þeim trú um að heimurinn sé við það að farast að því
marki að „loftslagskvíði“ er nú orðinn þekkt vandamál, jafnvel í
leikskólum?
Að flagga fölsku flaggi
Ybbar hafa ríka tilhneigingu til að eigna sér málstað annarra,
eða réttara sagt pakka sér inn í umbúðir þeirra. Á árinu voru
samtökin Black lives matter nýtt í þeim tilgangi. Harðlínusamtök
sem berjast að eigin sögn m.a. fyrir marxisma, því að leysa upp
lögregluna og gegn kjarnafjölskyldunni. En eins og jafnan á við
um ímyndar- eða merkimiðastjórnmálin skipti innihaldið ekki
máli. Aðeins nafnið.
Fyrr en varði voru stjórnmálamenn, fótboltamenn, prestar og
aðrir farnir að krjúpa á kné til að lýsa yfir stuðningi (eða undir-
gefni) við samtökin. Sjónvarpsmenn voru neyddir til að bera
merki BLM og fræga fólkið kepptist við að lýsa yfir stuðningi við
samtökin.
Óeirðir brutust út í mörgum borgum Bandaríkjanna en þeim
var jafnan lýst sem mótmælum. Hópar vopnaðs fólks (yfirleitt
fyrst og fremst skipaðir hvítum stúdentum og „aðgerðasinnum“)
fóru um og kröfðust þess að þeir sem urðu á vegi þeirra lýstu yfir
stuðningi við BLM og réttu upp handlegginn með krepptum
hnefa. Ef fólk lét ekki undan var því ógnað. Kona sem sat á veit-
ingastað með vinafólki reyndi að útskýra að hún væri nýkomin úr
kröfugöngum til að andmæla kynþáttamisrétti en vildi ekki láta
skipa sér að rétta fram handlegginn. Þær skýringar voru ekki
teknar gildar.
Áhrifin birtast víða
Áhrif hins nýja rétttrúnaðar birtast víða í stjórnmálum. Nú eru
mál fyrst og fremst dæmd út frá heiti þeirra, eða yfirlýstum
markmiðum, fremur en innihaldinu. Þeir sem reyna að ræða inni-
haldið og raunverulegar afleiðingar eiga ekki von á góðu. „Ætlar
þú virkilega að vera á móti frumvarpi um jafnrétti og velferð fyrir
alla? – Skammarlegt!“ Skiptir þá engu þótt frumvarpið hafi þver-
öfug áhrif við nafngiftina eða bent sé á aðrar leiðir sem séu lík-
legri til að skila meiri árangri. Umbúðirnar gilda og umræðan
byggist á frösum og merkimiðum.
Bóluefni við kórónuveirunni voru ekki fundin upp með því að
setja vökva í glas og kalla hann bóluefni. Rannsóknirnar sem skil-
uðu bóluefni og framförum á sviði lækninga byggðust á stað-
reyndum og innihaldinu. Þær byggðust á því að nýta gamal-
reyndar rannsóknaraðferðir en ekki bara því að skilgreina
vökvann sem bóluefni.
Ef árið sem nú er liðið verður til þess að framsókn hins nýja
rétttrúnaðar haldi áfram af meiri krafti en ella verður það mesti
skaðinn af árinu 2020. Það mun hafa skaðleg áhrif á hagsæld,
heilsu og ótal aðra þætti vestrænna samfélaga til framtíðar. Lát-
um reynslu ársins okkur að kenningu verða, treystum á stað-
reyndir, vísindi, rökræðu og þau gildi sem hafa skilað okkur
árangri um aldir.
Stór verkefni bíða
Efnahagur Íslands og annarra landa er verulega laskaður.
Sem betur fer vorum við Íslendingar komnir í óvenju sterka
stöðu til að takast á við mestu efnahagslegu niðursveiflu í 100 ár.
En sú staða varð ekki til af sjálfu sér. Hún var afleiðing pólitískra
ákvarðana sem ekkert ríki hafði ráðist í áður en byggðust á stað-
reyndum, gagnrýnni og lausnamiðaðri hugsun, framtakssemi,
fullveldishugsjóninni og öðrum þeim gildum sem reynst hafa vel.
Nú bíða mörg stór verkefni og þau þarf að nálgast á sama hátt.
Það þarf að endurreisa efnahag landsins, greiða niður skuldir og
aðstoða þá sem hafa orðið fyrir tjóni af völdum faraldursins. En
það þarf líka að leysa þau fjölmörgu mál sem hafa verið vanrækt
á meðan allt snerist um faraldurinn. Í mörgum tilvikum eru það
mál sem þoldu enga bið.
Lítil og meðalstór fyrirtæki voru þegar í miklum vanda áður en
veiran barst til landsins, þjökuð af sívaxandi útgjöldum, nýjum
kvöðum og sköttum. Landbúnaður stóð þegar frammi fyrir neyð-
arástandi. Þar þarf róttækar aðgerðir til að endurreisa eina af
mikilvægustu stoðum samfélagsins. Miðflokkurinn hefur þegar
lagt fram slíka áætlun. Það þarf að leysa húsnæðismálin, standa
við fyrirheitin gagnvart eldri borgurum og þannig mætti lengi
telja. Fullveldi landsins þarf að verja og laga okkur að breyttum
alþjóðasamskiptum eftir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu.
Nú við áramót ættum við að sammælast um að standa með íbú-
um Seyðisfjarðar með því að útvega það fjármagn sem þarf til að
verja samfélagið, aðstoða fólk sem varð fyrir tjóni og endur-
byggja þau miklu menningarverðmæti sem hafa skemmst eða
glatast.
Stjórnmálin á árinu hafa markast mjög af faraldrinum og hefð-
bundin stjórnmál og viðfangsefni þeirra legið í dvala að miklu
leyti. Í skjóli faraldursins hefur ríkisstjórnin þó hraðað í gegn
málum af ætt ímyndarstjórnmálanna.
Til að takast á við framtíðina þarf að ræða grundvallaratriði
stjórnmálanna á nýjan leik. Leita lausna og framkvæma. Sú
vinna má ekki byggjast á umbúðum og tómum frösum. Hún þarf
að byggjast á staðreyndum, innihaldi og framtakssemi.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Snjókorn rísa
Til að takast á við framtíðina þarf að ræða
grundvallaratriði stjórnmálanna á nýjan leik.
Leita lausna og framkvæma. Sú vinna má ekki
byggjast á umbúðum og tómum frösum. Hún
þarf að byggjast á staðreyndum, innihaldi og
framtakssemi.