Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
„Komdu í Bílanaust þar færð þú allt fyrir bílinn og meira til“
rafgeymar olíurvarahlutir vetrarvörur
3
7 verslanir um land allt
Hafnargötu 52Vatnagörðum 12
104 Reykjavík
S. 535 9000
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Í fyrstu sendingunni af bóluefninu frá BioN-
Tech og Pfizer voru 9.750 skammtar og
hægt að bólusetja 4.875 manns. Helming-
urinn er geymdur til seinni bólusetningar.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir ber
ábyrgð á skipulagningu og samræmingu
bólusetningarinnar. Hann sagði að
Sóttvarnastofnun Evrópu og fleiri hafi lagt
upp verklag varðandi forgangsröðun bólu-
setninga gegn kórónuveirunni.
„Áhrifaríkasta leiðin, á meðan við höfum
ekki mikið bóluefni, er í fyrsta lagi að bólu-
setja heilbrigðisstarfsmenn sem eru í mestri
hættu á að geta fengið Covid-19,“ sagði Þór-
ólfur. Það á við um þá sem vinna á gjör-
gæslu og Covid-deildum sjúkrahúsanna. Al-
mennt er talið áhrifaríkt að bólusetja
heilbrigðisstarfsmenn til að vernda þá og
forða því að þeir beri smit inn á stofnanir.
Á meðan framboð af bóluefni er takmark-
að verður einnig lögð áhersla á að bólusetja
elsta fólkið sem fer hvað verst út úr Co-
vid-19. Í lok mars á að vera komið bóluefni
frá Pfizer fyrir 21.000 manns. Lögð verður
áhersla á að bólusetja 70 ára og eldri. Í þeim
hópi er rúmlega 71.000. Líklega verður byrj-
að á þeim elstu og svo eftir lækkandi aldri.
Í samningum sem gerðir hafa verið við
framleiðendur bóluefna er kveðið á um
heildarmagn sem Ísland fær. Þórólfur sagði
að framleiðendur muni ekki leggja fram
dreifingaráætlanir fyrr en að fengnu mark-
aðsleyfi. Hann sagði að reynslan frá 2009
varðandi bóluefni gegn svínaflensu hafi sýnt
að margt geti raskað afhendingaráætlunum.
Forgangsröðin ákveðin
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
staðfesti 27. nóvember reglugerð um for-
gangsröðun við bólusetningu vegna Co-
vid-19. Heimilt er að víkja frá henni.
Um 1.000 manns í forgangshópi 1 voru
bólusettir. Í honum eru framlínustarfsmenn
í heilbrigðisþjónustu m.a. þeir sem starfa á
bráðamóttöku og gjörgæsludeildum Land-
spítala (LSH) og Sjúkrahússins á Akureyri
(SAK). Auk þeirra voru bólusettir um 600 úr
forgangshópi 2. Í honum eru heilbrigð-
isstarfsmenn sem starfa á Covid-19-
göngudeild og legudeild LSH og sambæri-
legum deildum SAK, þeir sem taka sýni
vegna gruns um Covid-19 og starfsmenn
hjúkrunar- og dvalarheimila.
Einnig voru bólusettir 2.949 heimilismenn
á hjúkrunar- og dvalarheimilum í forgangs-
hópi 3. Af þeim voru 1.704 á höfuðborg-
arsvæðinu og 1.245 úti á landi. Að auki aldr-
aðir sem eru í sérstökum úrræðum tengdum
hjúkrunarheimilum.
Í forgangshópi 4 eru sjúkraflutningamenn
og bráðatæknar, starfsmenn Landhelg-
isgæslunnar, slökkviliðsmenn, fangaverðir
og lögreglumenn sem sinna útköllum.
Í hópi 5 eru aðrir heilbrigðisstarfsmenn
sem sinna sjúklingum með beinum hætti og í
hópi 6 eru einstaklingar 60 ára og eldri.
Fólk með undirliggjandi langvinna sjúk-
dóma sem er í áhættuhópi vegna Covid-19 er
í 7. hópi. Í hópi 8 eru starfsmenn í leik-,
grunn- og framhaldsskólum og starfsmenn í
félags- og velferðarþjónustu sem eru í bein-
um samskiptum við notendur. Í hópi 9 eru
þeir sem eru í viðkvæmri stöðu vegna fé-
lagslegra- og efnahagslegra aðstæðna og í
hópi 10 allir aðrir sem óska eftir bólusetn-
ingu.
Bóluefni fyrir 539.000 manns
Samið var í gær við Pfizer um 80.000 bólu-
efnaskammta til viðbótar við þá 170.000 sem
þegar var samið um. Alls mun það duga fyr-
ir 125.000 manns. Ísland samdi einnig við
Moderna um bóluefni fyrir 64.000 manns.
Áætlað er að afhending geti hafist á fyrsta
ársfjórðungi 2021. Þá hefur verið samið um
kaup á bóluefni frá AstraZeneca-Oxford fyr-
ir 115.000 manns. Það fékk markaðsleyfi í
Bretlandi í gær og er stefnt að því að hefja
afhendingu í Evrópu á fyrsta ársfjórðungi
2021. Bóluefni Janssen er í III. fasa prófana
og hefur Ísland samið um efni fyrir 235.000
manns. Áætlað er að hefja afhendingu á
þriðja ársfjórðungi 2021. CureVac er á leið í
fasa III prófanir og er gert ráð fyrir að
bóluefni Sanofi fari í fasa III annan árs-
fjórðung 2021. Samningar um kaup á þeim
eru í undirbúningi.
Heilbrigðisstarfsfólk og aldraðir fyrst
Þrír fremstu hóparnir bólusettir Breyta má forgangsröðun bólusetningar ef nauðsyn krefur
Aldur mun ráða röð eldri en 70 ára Dreifingaráætlanir lagðar fram að fengnu markaðsleyfi
Þróun
Covid-19
á Íslandi
Fjöldi daglegra
smita
Fjöldi staðfestra
smita, sjö daga
meðaltal
febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
H
ei
m
ild
: C
ov
id
.is
16. MARS
Samkomubann sett á
til 13. apríl. Miðað við
100 manns og tveggja
metra regluna.
17. MARS
ESB setur á ferðabann
á ferðamenn utan
Schengen-svæðisins.
24. MARS
Hert samkomubann
tekur gildi. Fer úr 100
niður í 20 manns.
Samkomustöðum
lokað.
106 ný smit voru
staðfest 24. MARS
sem er mesti fjöldi á
einum degi. 4.875 einstaklingar hafa
verið bólusettir.
3. APRÍL
Samkomubannið
framlengt til 3. maí.
4. MAÍ
Samkomubann
rýmkað í 50 manns,
hárgreiðslustofur,
tannlæknar mega
hafa opið. Ferðir
einstaklinga til
landsins leyfðar
18. MAÍ
Sundlaugar og lík-
amsræktarstöðvar
opnaðar aftur.
25. MAÍ
Samkomubann
rýmkað. 200 mann
mega koma saman.
Veitingastaðir mega
hafa opið til kl. 23.
15. JÚNÍ
Samkomubann
rýmkað, 500 manns
fá að koma saman
1. JÚLÍ
Ferðabann úr gildi
innan ESB
6. JÚLÍ
500 manna
samkomubann
framlengt til 26. júlí.
Engar fjöldatak-
markanir lengur
á sundstöðum
og líkamsræktar-
stöðvum. 26. júlí er
samkomubannið
framlengt til
3. ágúst
30. JÚLÍ
Samkomubann
hert í 100 manns.
2-metra regla
skylda, grímur á al-
mannafæri þar sem
2-metra reglu verður
ekki komið við
14. ÁGÚST
Allir farþegar til
landsins þurfa
að fara í tvöfalda
skimun við
komuna og vera í
sóttkví þar til nei-
kvæð niðurstaða
er fengin í síðara
sinn.
19. ÁGÚST
Sóttkví milli
tveggja skimana á
landamærum.
7. SEPTEMBER
Eins metra regla í
stað tveggja metra
reglu.
18. SEPTEMBER
Skemmtistöðum
og krám á höfuð-
borgarsvæðinu
lokað.
5.754
staðfest smit frá 28. febrúar.
435.367 sýni höfðu alls verið
tekin 29. desember.
Þar af í landamæraskimun
195.575
sýni, samanlagt í skimun 1 og 2.
232 eru í sóttkví.
147 einstaklingar eru með virkt smit og í einangrun. 23 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
enginn á gjörgæslu.
18. NÓVEMBER
Íþróttastarf heimilt á ný.
1. DESEMBER
Sýnataka á landamærum
gjaldfrjáls til 31. janúar.
10. DESEMBER
Örlitlar tilslakanir á
aðgerðum, m.a. á skóla-
starfi og sund leyft á ný.
28. DESEMBER
Bóluefni frá Pfi zer
berst til landsins.
29. DESEMBER
Bólusetning hefst.
5. OKTÓBER
Hertar sóttvarnaað-
gerðir, m.v. 20 manna
samkomubann.
7. OKTÓBER
Aðgerðir á höfuðborgar-
svæðinu hertar enn
frekar, m.a. 2ja metra
regla á ný, grímuskylda í
verslunum, sundlaugum
og líkamsræktarstöðvum
lokað.
20. OKTÓBER
Aðgerðir hertar á lands-
byggðinni, m.a. 2ja metra
regla og grímuskylda.
31. OKTÓBER
Hertar aðgerðir um allt
land, m.a. 10 manna
samkomubann, allt
íþróttastarf bannað sem
og sviðslistir, takmörkun
á skólastarfi .
1.541 einstaklingar eru í skimunarsóttkví. 29
einstaklingar
eru látnir.
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI