Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020 Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Umfangsmikið jarðfall varð í gær- morgun í þorpinu Ask í sveitarfélaginu Gjerdrum, sem er 25 km norðaustur af höfuðborg Noregs, Ósló. Ellefu var enn saknað þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi. Um 700 manns var bjargað af heimilum sínum sem eru nærri áhrifasvæði jarðfallsins og flutt á brott. Að minnsta kosti átta manns slösuðust, að sögn lögreglu og norskra fjölmiðla. Fjöldi húsa hrapaði niður þegar jarðvegurinn undir þeim hrundi. Þetta myndaði stórt gat sem liggur í gegnum Ask, en þorpið er þjónustumiðstöð sveitarfélagsins Gjerdrum sem er með tæplega sjö þúsund íbúa. „Jarðfallið tók með sér nokkur íbúð- arhús og eru björgunarsveitir ásamt varðliðsmönnum og hermönnum að flytja fólk úr aurflóðinu,“ sagði lögregl- an í færslu á samfélagsvefnum Twitter í gærmorgun. Upp úr hádegi að stað- artíma í Noregi var 21 manns enn saknað, að sögn fjölmiðla. Þeir sögðu flatarmál áhrifasvæðisins hafa verið 210.000 fermetrar. Myndbandsmyndir frá svæðinu sýndu hvernig jarðvegurinn hafði hrunið undan þorpiðnu Ask og malað íbúðarhúsin og grafið brakið í dökkri eðjunni. Hríðarveður var allan morguninn á svæðinu er björgunarsveitir fluttu slasaða á brott og freistuðu þess að tjóðra niður hús sem enn stóðu en voru í hættu á að hrynja niður í skurðinn djúpa. Undir kvöld í gær sagði blaðið Aft- enposten að jarðfallið hefði að minnsta kosti tekið með sér hús með samtals 14 götunúmerum. Telur lögreglan að í einhverjum þeirra geti verið að finna fólk sem saknað er á svæðinu. Síðdegis í gær runnu nokkur hús til. „Eigi vitum við hvort fólkið er að finna á slóðum jarðfallsins, hvort það sé í burtu í fríi eða með öðrum hætti ekki í aðstöðu til að geta sett sig í sam- band við lögregluna,“ sagði lögreglan. Tíu manns hefðu slasast, þar af hefði einn verið fluttur alvarlega slasaður undir læknishendur í Ósló. Fólk sem varð að yfirgefa heimili sín var flutt á hótel í grenndinni þar sem því var veitt aðstoð. Er jarðvegurinn gaf sig rofn- uðu raflínur sem séð höfðu 495 manns fyrir ljósi og hita, að sögn NRK. Hamfarasvæði „Lögreglan hefur lýst vettvanginn sem hamfarasvæði,“ sagði Roger Pet- ersen, yfirstjórnandi aðgerða á vett- vangi, við norska útvarpið, NRK. Hann sagði fólk hafa hringt inn og til- kynnt um að hús þeirra væru á ferð. „Það berast inn dramatískar frásagnir og staðan er mjög alvarleg,“ sagði Pet- ersen. Erna Solberg forsætisráðherra lýsti samúð sinni með íbúum Gjerdrum í til- kynningu á samfélagsmiðlum. „Það er sársaukafullt að sjá hvernig kraftar náttúrunnar hafa lagt Gjerdrum í rúst. Hugur minn er hjá öllum sem eiga sárt um að binda af völdum jarðfallsins,“ sagði Solberg. Hélt hún síðdegis á vettvang og lýsti skriðunni sem einni þeirra allra stærstu í sögu Noregs. „Það er áhrifa- mikið að standa hér og virða hamfar- irnar fyrir sér. Sagðist hún sérlega áhyggjufull vegna þeirra sem enn væri saknað. „Ástandið á svæðinu er enn svo óstöðugt í eðjunni að ekkert annað er hægt að gera til björgunar en með þyrlum,“ sagði Solberg. Lögreglu bárust fyrstu tilkynningar um jarðfallið klukkan fjögur að norsk- um tíma í gærmorgun, klukkan þrjú að íslenskum tíma í fyrrinótt. Féll þá jarðvegurinn undan hluta Ask. Myndir frá hluta svæðisins sýndu að minnsta kosti átta hús sem eyðilögðust. Brugð- ist var skjótt við ástandinu og um 40 sjúkrabílar sendir á vettvang meðan leitað var fórnarlamba, en embættis- menn sögðu hættu á frekari aurskrið- um. Að sögn Torild Hofshagen, svæðis- stjóra Vatnsforða- og orkustofnunar Noregs, er um að ræða svonefnda „hraðleirsbunu“. Þorpið Ask stendur á svæði þar sem mikið er um svonefndan hraðleir sem breytt getur sér úr föstu formi í fljótandi undir álagi. Hraðleir er að finna í Noregi og Svíþjóð en stofnunin sagði í tilkynningu að ólík- legt væri að jarðvegur myndi gefa sig í jafn miklu umfangi annars staðar á svæðinu nú um stundir. Áður hefur orðið jarðfall á svæðinu og jarðfræð- ingar komu til Gjerdrum í gær til að meta ástandið. Norska útvarpið, NRK, sagði mikið hafa rignt í Suður- Noregi síðustu daga sem gæti hafa ýtt við hraðleirnum. Aðstæður til björgunarstarfa í suð- austurhluta Noregs voru afar krefj- andi; myrkur og slæm birta vegna snjókomu og vont veður. „Þessi helgi átti að verða friðsamleg og lágstemmd, þar sem við hefðum helst haft áhyggj- ur af kórónuveirunni, en ekki hvort einhverra væri saknað úr jarðskriðu. Þetta eru náttúruhamfarir,“ sagði Sol- berg forsætisráðherra Hamfarir Að minnsta kosti 14 hús hrundu þegar jarðfall myndaðist í gærmorgun í Ask í Gjerdrum í Noregi, um 40 km norðaustur af höfuðborginni Ósló. Að minnsta kosti 12 er saknað. AFP 11 íbúa Ask enn saknað  Jarðvegurinn hrundi undan að minnsta kosti 14 byggingum í norsku þorpi  Talið er að einhverjir hafi verið í húsum sínum er jarðfall varð  Lögreglan lýsir stóru svæði sem hamfarasvæði Nýtt bóluefni gegn kórónuveirufar- aldrinum, bóluefni Oxford-AstraZe- neca, hlaut leyfi til notkunar í Bret- landi í gær. Ráðgert er að bólusetning með því þar hefjist mánudaginn 4. janúar nk. Bresk stjórnvöld hafa pantað 100 milljónir skammta af bóluefninu, eða sem dugar til að bólusetja 50 millj- ónir manna. Það ásamt pöntunum í bóluefni Pfizer-BioNTech mun duga til að bólusetja alla bresku þjóðina, að sögn Matt Hancock heilbrigðis- ráðherra. Bóluefnið öðlast leyfi á sama tíma og búist er við að ströngustu mót- aðgerðum við faraldrinum verði lýst yfir í Englandi, en þær munu ná til margra milljóna manna. Í fyrradag komu í ljós 53.135 tilfelli nýsmits sem er mesti fjöldi frá því mælingar á smiti hófust. „Stórsigur“ Boris Johnson forsætisráðherra sagði leyfið til notkunar Oxford- Astra Zenic-bóluefnisins „stórsigur“ fyrir breskt vísindastarf. „Við mun- um nú vinda okkur í að bólusetja eins marga eins fljótt og mögulega er unnt,“ sagði hann. Sérstakar miðstöðvar munu bjóða fólki bólusetningu með Oxford-Astra Zeneca elixírnum frá og með næstu viku. Bóluefnið er auðvelt í meðför- um, það má geyma í venjulegum ís- skáp ólíkt Pfizer-BioNTech sem verður að geyma í 70°C frosti. Þá þykir víst að almenningur beri meira traust til bresks bóluefnis en þess sem flutt er inn frá Belgíu, þ.e. Pfizer-BioNTech bóluefnið. Bundn- ar eru vonir við að bólusetja megi um tvær milljónir manna á viku og að það muni ganga hraðar með tvö bóluefni til brúks. Leiðtogi bresku læknasamtak- anna BMA, Richard Vautrey, sagði það vera unnt ef nægar birgðir væru alltaf fyrir hendi. AstraZeneca/Oxford bóluefnið samþykkt  Pantað bóluefni AstraZeneca og Pfizer-BioN- Tech dugar til að bólusetja bresku þjóðina AFP Bólusetning Samþykktum bólu- efnum gegn kórónaveirunni fjölgar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.