Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 49
Hrós vikunnar fá björgunarsveitir landsins
Hér á K100 stefnum við ávallt að
því að „hækka í gleðinni“ og er því
viðeigandi að í hverri viku sé ein-
hverjum gefið uppbyggilegt hrós.
Það er sérstaklega mikilvægt að
hrósa því sem vel er gert. Bæði höf-
um við öll gott af því að fá hrós,
sem og að gefa það áfram. Hvað þá
núna þegar Vetur konungur er
mættur í öllu sínu veldi og tak-
markanir vegna Covid hafa verið
gífurlegar.
Það er Hanna Þóra Helgadóttir,
samfélagsmiðlastjarna og höfundur
bókarinnar Ketó – hugmyndir, upp-
skriftir, skipulag, sem gefur hrós
vikunnar í dag, þennan síðasta dag
ársins 2020.
Björgunarsveitirnar
vinna óeigingjarnt starf
„Ég vil hrósa björgunarveitum
landsins fyrir óeigingjarnt starf í
þágu okkar samfélags. Í krefjandi
aðstæðum þá er þetta fólkið sem
mætir á svæðið til þess að bjarga
því sem bjarga þarf þegar aðrir
hafa ekki búnað eða þekkingu til.
Það hefur verið magnað að fylgj-
ast með einstaklega sorglegum og
erfiðum verkefnum hjá okkar fólki
á Seyðisfirði en þarna sést enn og
aftur hvað það er mikilvægt að
styðja við okkar fólk.
Ég gleymi því seint þegar við
systkinin sátum hjá mömmu á að-
fangadagskvöld fyrir nokkrum ár-
um. Við vorum að segja gleðileg jól
og byrja að borða kl: 18:00 þegar
báðir bræður mínir ruku af stað á
fyrsta bita af forréttinum þegar
þeir fengu útkall frá björgunar-
sveitinni í brjáluðu veðri. Þetta er
fólkið sem rýkur af stað alveg sama
hvað klukkan er eða hvaða dagur,“
segir Hanna.
Fylgist með á K100.is þar sem
við höldum áfram með hrós vik-
unnar og ef þú lumar á hrósi endi-
lega deildu því með okkur.
Hrós vikunnar fá björgunarsveitir landsins
Morgunblaðið/Eggert
Björgunarsveitir landsins Vinna
óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins.
Hanna Þóra Hrósar björgunarsveitum landsins.
Hanna Þóra Helgadóttir hrósar björgunarsveitum landsins fyrir óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins. Hún segir fólkið í
björgunarsveitunum vera þau sem fari af stað sama hvenær eða í hvaða veðri sem er til þess að bjarga öðru fólki.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
Ruslið burt 1. janúar
Nú getur þú losað þig við notuðu flugeldana á
Nýársdag frá kl. 13-17 á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar á: flugeldar.is
Gleðilegt nýtt og hreint ár!