Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 63
svipur hjá sjón um þessar mundir
hvort sem er. Blaðamaður veltir fyr-
ir sér hvernig tilfinningar fylgja því
þegar stórt markmið næst eins og
sigur í Meistaradeildinni. Hvort
spennufall fylgi ef til vill slíkri nið-
urstöðu?
„Tilfinningin sem fylgdi þessu var
vissulega skrítin vegna þess að ég
hafði lengi farið inn í nýtt ár með það
fyrir augum að vinna Meistaradeild-
ina. Nú væri komið að því og þannig
var það í mörg ár. Eftir að hafa tap-
að úrslitaleiknum fyrir tveimur ár-
um þá þráði ég svo rosalega að verða
Evrópumeistari. Við höfðum verið
svo nálægt því. Þegar titillinn vannst
fylgdi því léttir en um leið tókst mér
að njóta þess að hafa unnið. Nú þeg-
ar líður frá úrslitaleiknum finn ég
fyrir því að mig langar að vinna
þennan titil aftur. Svo lengi sem
maður er í þessu í þessum gæða-
flokki vill maður vinna þá titla sem
eru í boði. Þegar maður hefur afrek-
að það áður veit maður að það er
raunhæft.“
Er í frönskunámi
Hvernig gengur Söru að koma sér
fyrir í Frakklandi?
„Það hefur gengið mjög vel en ég
vissi að ég þyrfti að vera fljót að að-
lagast. Franskan er erfið og er
þriðja tungumálið sem ég læri í at-
vinnumennskunni eftir að hafa verið
í Svíþjóð og Þýskalandi. Ég er í
frönskukennslu tvisvar í viku og hjá
félaginu er lagt upp með að við er-
lendu leikmennirnir lærum frönsku.
Einnig eru frönsku leikmennir í
enskukennslu og oft er töluð enska á
æfingum. En því fylgir heilmikil lífs-
stílsbreyting að fara frá Wolfsburg
til Lyon. Borgin er frábær og þarna
er gott að búa. Niðri í bæ er ekki töl-
uð mikil enska og maður er á þann
hátt þvingaður til að læra frönskuna.
En maður vill læra hana hvort sem
er til að komast betur inn í hlutina
hjá félaginu og kynnast betur menn-
ingunni,“ sagði Sara og á vinnu-
staðnum er ekki undan neinu að
kvarta enda ekki við því að búast hjá
félagi sem einokað hefur Meistara-
deild Evrópu síðustu ár.
„Ég er í bestu aðstæðum sem
hægt er að vera í en hjá Wolfsburg
var aðstaðan einnig í hæsta gæða-
flokki. Ég þrífst vel í svona að-
stæðum.“
Tími sem gæti nýst vel
Eins og íþróttaunnendur þekkja
þá er landsliðið með keppnisrétt í
lokakeppni EM en keppnin verður
ekki fyrr en sumarið 2022. Var henni
frestað vegna heimsfaraldursins en
átti að fara fram sumarið 2021. Söru
líst ágætlega á að íslenska liðið fái
góðan tíma til að undirbúa sig.
„Ef maður horfir á jákvæðu hlið-
arnar á þessu þá fáum við góðan
undirbúning fyrir EM. Við munum
hafa nægan tíma til að slípa liðið
saman fyrir stóru keppnina og ég
held að við þurfum á því að halda.
Við erum með nýja leikmenn. Unga
leikmenn sem hafa komið sterkar
inn og þessi tími ætti að nýtast vel
með góðum æfingaleikjum. Við verð-
um tilbúnar þegar keppnin hefst,“
sagði Sara Björk Gunnarsdóttir í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Ljósmynd/Bragi Valgeirsson
Íþróttamaður ársins Sara Björk Gunnarsdóttir með verðlaunagripinn stóra frá Samtökum íþróttafréttamanna
sem hún hefur nú veitt viðtöku tvisvar á síðustu þremur árum en hún er fyrst kvenna til að vinna kjörið tvisvar.
ÍÞRÓTTIR 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
Þótt árið 2020 hafi verið
mörgum erfitt og margt hafi farið
úr skorðum er eiginlega magnað
hve mörg góð afrek voru unnin af
íslensku íþróttafólki.
Þetta sést best þegar listinn
yfir það íþróttafólk sem varð of-
arlega í kjöri Samtaka íþrótta-
fréttamanna á íþróttamanni árs-
ins er skoðaður.
Sigurvegarinn, Sara Björk, er
Evrópumeistari, Þýskalands-
meistari, þýskur bikarmeistari og
franskur bikarmeistari og skoraði
í úrslitaleik Meistaradeildarinnar
ásamt alls konar tilnefningum
sem sjá má í rammanum vinstra
megin í þessari opnu.
Í öðru sæti er Martin sem varð
þýskur meistari í körfubolta og
bikarmeistari, besti leikmaður
þýska bikarúrslitaleiksins og spil-
ar nú með einu af tíu bestu liðum
Evrópu. Var einmitt stigahæstur í
síðasta leik.
Í þriðja sæti er Aron sem
skoraði sex mörk í undanúrslita-
leik Meistaradeildar Evrópu í
handbolta, er spænskur meistari
og bikarmeistari og í lykilhlutverki
í einu besta liði heims.
Í fjórða sæti er Anton Sveinn
sem hefur skipað sér í hóp bestu
bringusundmanna heims og vakið
athygli fyrir frammistöðu sína í
einu atvinnudeild íþróttarinnar.
Fimmti er svo Bjarki Már sem
varð markakóngur í bestu hand-
boltadeild heims.
Í næstu sætum eru ein besta
knattspyrnukona Svíþjóðar,
fimmti besti kringlukastari heims
á árinu, besta knattspyrnukona
Noregs, varafyrirliði liðsins sem
er í þriðja sæti ensku úrvalsdeild-
arinnar og einn efnilegasti mið-
herjinn í evrópska körfuboltanum.
Um leið og ég óska Söru sér-
staklega til hamingju með glæsi-
legan árangur og yfirburðakjör og
öllum hinum með sín afrek óska
ég íslensku þjóðinni til hamingju
með allt þetta afreksfólk. Á erfiðu
ári eins og 2020 er ómetanlegt
fyrir æsku landsins að eiga allar
þessar fyrirmyndir.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Jóhann Berg
Guðmundsson,
landsliðsmaður í
knattspyrnu, gaf
til kynna í gær að
hann væri klár í
slaginn á ný eftir
meiðsli þegar
hann skorað
þrennu í æfinga-
leik með Burn-
ley. Jóhann hef-
ur ekki spilað síðustu sjö leiki
Burnley vegna þrálátra meiðsla og
var ekki með í 1:0 sigri á Sheffield
United á þriðjudag. Hann lék hins
vegar gegn nágrannaliðinu Accr-
ington Stanley á æfingasvæði Burn-
ley í gær, þar sem þeir leikmenn
sem ekki voru með á þriðjudag
fengu að spreyta sig, og Jóhann
gerði sér lítið fyrir og skorað þrjú
marka liðsins í 5:1 sigri. Hann lék
allar 90 mínúturnar og ætti því að
koma til greina í næsta leik Burnley
sem er heimaleikur gegn Fulham á
sunnudaginn. Burnley er í 16. sæti
ensku úrvalsdeildarinnar.
Jóhann Berg
minnti ræki-
lega á sig
Jóhann Berg
Guðmundsson
Liverpool tapaði óvænt stigum ann-
an leikinn í röð í ensku úrvalsdeild-
inni í fótbolta í gærkvöldi er liðið
heimsótti Newcastle. Lokatölur
urðu 0:0 þar sem Liverpool gekk illa
að nýta góð færi. Meistararnir gerðu
óvænt 1:1-jafntefli á heimavelli gegn
West Brom í síðasta leik og hefur
því aðeins fengið tvö stig úr tveimur
leikjum í röð gegn liðum í neðri hluta
deildarinnar.
Ekki vantaði færin hjá Englands-
meisturunum en Mo Salah og Ro-
berto Firmino fengu báðir ákjós-
anleg færi í seinni hálfleik sem þeir
nýttu illa.
Úrslitin þýða að Manchester
United getur jafnað Liverpool á
toppi deildarinnar með sigri á Aston
Villa á heimavelli á nýársdag. Þá
verður Everton aðeins einu stigi frá
Liverpool með sigri í leik sem liðið á
til góða og er forskot ríkjandi meist-
aranna því afar naumt.
Tottenham og Fulham áttu einnig
að mætast í gær en var frestað
vegna kórónuveirusmita í herbúðum
Fulham. Er leikurinn sá þriðji í des-
ember sem er frestað vegna kór-
ónuveirusmita. Einhverjir hafa kall-
að eftir því að deildin fari í tveggja
vikna frí vegna þessa og þar á meðal
Sam Allardyce knattspyrnustjóri
West Brom.
Aftur tapaði Liverpool
óvæntum stigum
AFP
Svekktur Mo Salah leikmaður Liverpool gengur svekktur af velli í gær.