Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is 2012 2020 HJÁ OKKUR FÁST VARAHLUTIR Í AMERÍSKA BÍLA Íslendingar leituðu langmest að orð-um varðandi heimsfaraldur kórónu- veiru á Google í ár. Í fyrra var 15.140 sinnum leitað að orðum er tengdust faraldri en aukningin milli ára er 458%. Í ár voru leitirnar 84.480 talsins, en meðal vinsælustu leitarorðanna voru: grímur, sóttvarnalæknir, Kári Stef- ánsson og Víðir Reynisson. Leitirnar náðu hámarki í marsmánuði skömmu eftir að fyrsta tilfelli veirunnar greindist hér á landi. Þetta kemur fram í samantekt stafrænu auglýs- ingastofunnar Sahara. Davíð Lúther Sigurðarson, fram- kvæmdastjóri Sahara, segir að í sam- antektinni kenni ýmissa grasa. Þar sé enn fremur sérstaklega áhugavert að skoða leitarorð er tengjast fram- kvæmdum. „Ljóst er að leitir er tengjast fram- kvæmdum heima fara greinilega upp. Það nær frá marsmánuði til nóv- ember,“ segir Davíð. Á umræddu tímabili fjölgaði leitarorðum er tengj- ast framkvæmdum heima um 55% frá sama tímabili í fyrra. Meðal þess sem horft var til voru leitarorðin: eld- húsinnrétting, málning, flísar og framkvæmdir. Samtals voru leitirnar 62.910 talsins í ár en þær voru 40.580 í fyrra. Þannig var aukningin milli ára 55% eins og fyrr segir. Í samantekt Sahara var enn frem- ur skoðað hversu oft Íslendingar flettu upp frasanum „ferðast innan- lands“. Ekki var hægt að bera það saman við síðasta ár enda var verk- efnið sett á laggirnar í kjölfar farald- ursins. Að því er fram kemur í samantekt- inni leitaði fólk töluvert að umrædd- um frasa í sumar eða um 300 sinnum á mánuði. Fjöldinn datt þó niður í fimmtíu þegar önnur bylgjan var far- in af stað í haust. aronthordur@mbl.is Flestir flettu faraldrinum upp  Framkvæmdir mjög vinsælt leitarorð Reuters Leitarvél Íslendingar voru duglegir að fletta uppi orðum á Google. Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri „Þetta eru ákveðin tímamót í barátt- unni gegn veirunni,“ segir Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, en í gærmorgun var hafist handa við að bólusetja starfsfólk sjúkrahússins. Pálmi Óskarsson, for- stöðulæknir á bráðamóttöku, fékk fyrstu sprautuna en hann veitir Covid deild sjúkrahússins einnig for- stöðu. Sjúkrahúsið á Akureyri gegndi mikilvægu hlutverki þegar kórónuveiran var hvað skæðust norðan heiða, bæði á vormánuðum og eins blossaði veikin upp af krafti á haustdögum. Starfsfólk SAk setti upp Covid-deildir á undraskömmum tíma, bæði var komið upp Covid- legudeild og eins göngudeild þar sem fjölmargir fengu þjónustu. 16 voru lagðir inn á Sjúkrahúsið á Akureyri Alls voru 16 sjúklingar lagðir inn á Covid-legudeild Sjúkrahússins á Akureyri, 9 í fyrstu bylgju og 7 í þeirri þriðju. Fjórir voru um tíma á gjörgæslu og tveir voru í öndunar- vél, báðir í fyrstu bylgju faraldurs- ins. Þá nutu 52 Covid-smitaðir þjón- ustu göngudeildar SAk, 17 í fyrstu bylgju og 35 í þriðju bylgju. „Það gekk sem betur fer allt vel hér og fyrir það þökkum við,“ segir Bjarni. Starfsemi liggur niðri á þess- um deildum nú enda ekki komið upp smit á Norðurlandi undanfarnar vik- ur. Hann segir að hægt sé að opna deildir með skömmum fyrirvara ger- ist þess þörf. Þó svo smitum hafi fækkað segir Bjarni að menn verði að halda vöku sinni og gæta að sóttvörnum. „Þetta er ekki búið fyrr en það er búið,“ segir hann. Áfangi í baráttunni hafi náðst í gær þegar Sjúkrahúsið á Akureyri fékk 130 skammta af bóluefni gegn kórónuveiruni fyrir starfsfólk sitt. Tæplega 700 manns starfa við sjúkrahúsið. Skammturinn kláraðist í gær en þeir sem fyrstir voru sprautaðir var stafsfólk á bráðamót- töku, gjörgæslu- og Covid-deildum sem og nokkrir sjúklingar. Bjarni segir óljóst hvenær næsta sending berist norður. „Vonandi verður það sem fyrst,“ bætti hann við. Tímamót í baráttu gegn veirunni  Sjúkrahúsið á Akureyri fékk 130 skammta af bóluefni í gær  Engin smit á Norðurlandi undanfarið Morgunblaðið/Margrét Þóra Akureyri Pálmi Óskarsson forstöðulæknir fékk fyrstu sprautuna með bólu- efni í gær. Anna Rósa Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur sá um sprautuna. Í júlí á þessu ári voru í fyrsta sinn á lífi 60 Íslendingar hundrað ára og eldri. Nú í árslok er fjöldinn kominn niður í 46, karlarnir eru 7 og konurnar eru 39. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu um langlífi, sem Jónas Ragnarsson ritstjóri hefur umsjón með. Á næsta ári geta 29 bæst við, fæddir 1921. Síðan koma mjög sterkir árgangar, fæddir frá 1922 til 1925, og þá munu tölurnar fara hækkandi á ný. Hagstofan hefur spáð því að árið 2026 verði hundrað ára og eldri orðnir um 100, segir Jónas. Sérstaka athygli veki að nú séu rúmlega sextíu á lífi fæddir 1922 og eru því 98 ára. Síðustu ár hefur sambærilegur fjöldi verið um fjörutíu. Karlar eru um 40% af þessum hópi en hafa áður verið 20-30%. Dóra Ólafsdóttir í Reykjavík er elst núlifandi Íslendinga, hún varð 108 ára í júlí. Hún fékk bóluefni gegn kórónuveirunni í gær, eins og fram kemur hér til hliðar. Nanna Franklínsdóttir á Siglufirði er næstelst, hún varð 104 ára í maí. Stefán Þorleifsson í Neskaupstað er sá þriðji elsti og elstur karla, hann varð 104 ára í ágúst. Elstu tvíburarnir eru Hlaðgerður og Svanhildur Snæbjörns- dætur úr Bárðardal en báðar búsettar í Reykjavík. Þær urðu 98 ára í október en engir aðrir íslenskir tvíburar hafa náð svo háum aldri. Gunnar Ólafsson og Dýrleif Hallgríms í Reykjavík höfðu í júní verið gift í 76 ár og slógu hjónabandsmetið í nóvember. Hann er 99 ára, hún 97 ára. sisi@mbl.is Margir gætu bæst í 100 ára klúbbinn 2021 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Elsti Íslendingurinn bólusettur Dóra Ólafsdóttir, elsti núlifandi Íslendingurinn, 108 ára, var bólusett gegn kórónuveirunni í gær. Hún býr á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Hún er í hópi nærri 5 þúsund Íslendinga sem fengið hafa fyrri skammt af bóluefninu frá Pfizer og BioNTech.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.