Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 30
BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Stöðugur vöxtur hefur verið í sölu á Wellington-steikum um jól og ára- mót hjá Kjötkompaní síðustu árin. Aðrar verslanir finna einnig fyrir mikilli söluaukningu. Lauslegir út- reikningar Morgunblaðsins gera ráð fyrir að sölutekjur af Wellington um jól og áramót geti numið nálægt eitthundrað milljónum króna. Jón Örn Stefánsson, framkvæmdastjóri og eigandi Kjöt- kompanís, segir að salan hlaupi á þremur til fjórum tonnum þessi jól- in. „Við vorum einir þeir fyrstu sem byrjuðu að bjóða steikina til sölu fyrir ellefu árum síðan. Á þeim tíma vorum við ánægðir með að selja 15- 20 stykki, en nú seljum við í tonn- avís,“ segir Jón Örn í samtali við Morgunblaðið. Jón Örn segir að steikin sé sann- kallaður veislumatur, og einfalt sé að elda hana. „Þetta er bara penslað með eggjum og sett í ofn í 30 mín- útur, og þá er dýrindissteik tilbúin.“ Þurftu að loka fyrir pantanir Viktor Örn Andrésson eigandi Sælkerabúðarinnar segir aðspurður að spurnin eftir Wellington-steikinni hafi verið svo mikil fyrir jólin, að loka hafi þurft fyrir pantanir. Nú er hins vegar opið fyrir pantanir fyrir áramótin. „Við erum örugglega komin upp í þrjú tonn. Það er mjög mikið að gera, eiginlega allt of mik- ið,“ segir Viktor Örn. Pétur Alan Guðmundsson kaup- maður í Melabúðinni er einnig at- kvæðamikill í sölu á Wellington- steikum, bæði nautasteikum og veg- an. „Vegan steikurnar innihalda sætar kartöflur, rauðrófur og pec- anhnetusteik,“ segir Pétur. Aðspurður segir Pétur að um 200 stykki af Wellington, heilum, hálf- um, vegan og nautakjöts, seljist hjá þeim um hátíðirnar. Spurður um breytingar á neyslu- hegðun vegna faraldursins, segist Pétur ekki verða mikið var við það, nema að kalkúnarnir séu minni. Fólk gerir líka sjálft Sigríður Björnsdóttir í Kjöthöll- inni býst við að selja um fjögur hundruð kíló af Wellington-steik samtals um jól og áramót. Einnig selst talsvert af nautalundum, og telur Sigríður að margir útbúi Well- ington-steikur sjálfir heima. „Við seljum stórar smjördeigsplötur fyrir fólk sem vill gera þetta sjálft, og birtum uppskriftir að fyllingum á heimasíðunni okkar.“ Geir Rúnar Birgisson eigandi Kjötbúðarinnar segir að salan í Wellington-steikum hafi verið gríð- arlega góð um hátíðirnar. „Þetta los- ar sjálfsagt tonnið samtals,“ segir Geir. Líkt og í Kjöthöllinni selst líka mikið af nautalundum, jafnvel enn meira en af Wellington-steikunum. „Wellington-steikur og nauta- lundir eru um það bil 70% af sölunni hér um hátíðirnar.“ 100 mkr. eytt í Welling- ton-steikur um hátíðirnar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sælkeramatur Viktor Örn Andrésson og Hinrik Örn Lárusson með ljúffengar Wellington-steikur tilbúnar í ofninn. Hátíðarmatur » Nautalundir í Wellington steik eru látnar hanga í 25 daga áður en þær eru for- steiktar og gerðar klárar. Dag- inn fyrir afhendingu er steikin vafin í smjördeig. » Kalkúnaskip, Ribeye- nautakjöt, úrbeinað ferskt og fyllt lambakjöt og Sashi- nautalundir einnig vinsælt. » Einfaldleiki við eldun eykur vinsældir Wellington.  Vinsældirnar stöðugt vaxandi  Margir vilja einnig ferskt lambakjöt eða kalkún 30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020 31. desember 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.5 Sterlingspund 172.03 Kanadadalur 99.48 Dönsk króna 21.013 Norsk króna 14.823 Sænsk króna 15.5 Svissn. franki 143.9 Japanskt jen 1.2285 SDR 183.98 Evra 156.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 185.0215 Hrávöruverð Gull 1873.9 ($/únsa) Ál 2000.0 ($/tonn) LME Hráolía 51.02 ($/fatið) Brent ● Eignir íslenskra verðbréfa-, fjár- festingar- og fag- fjárfestasjóða námu 989,4 millj- örðum króna í lok nóvember að því er fram kemur í nýbirtum tölum Seðlabanka Ís- lands. Þar kemur fram að eignir þeirra hafi aukist um rúma 79 milljarða á árinu. Verulegur hluti eignanna er bundinn í hlutabréfum og hlutdeild- arskírteinum eða 358,2 milljarðar króna. Þá eru markaðsskuldabréf og víxlar metnir á 386,4 milljarða. Innlán voru 135,7 milljarðar í lok nóvember og afleiðu- og skiptasamningar 9,2 milljarðar króna. Aðrar eignir voru metnaðar á 104 milljarða, þar af lána- kröfur upp á 83,8 milljarða. Sjóðirnir seldu hlutdeildarskírteini fyrir 42 milljarða í nóvember sem var nokkru minna en í október þegar sal- an nam 59,8 milljörðum króna. Samkvæmt gögnum Seðlabankans fækkaði sjóðum um tvo í nóvember frá fyrra mánuði. Einn nýr bættist í hópinn og þrír hættu starfsemi. Fjöldi sjóða er nú 210, 37 verðréfasjóðir, 60 fjárfestingarsjóðir og 113 fagfjárfesta- sjóðir. Nær eitt þúsund millj- arða króna eignir sjóða STUTT Baldur Arnarson baldura@mbl.is Um 2.550 félagsmenn í Samtökum starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) störfuðu hjá viðskiptabönkun- um í nóvember. Hafði þeim þá fækkað um 50 frá júlí. Friðbert Traustason, fram- kvæmdastjóri SSF, segir lang- flesta starfsmenn viðskiptabank- anna vera fé- lagsmenn í SSF. Undantekningin sé einhver í starfsliði Kviku. Fluttu lánin til bankanna Friðbert segir mikla eftirspurn eft- ir endurfjármögnun lána hafa skapað annríki hjá bönkunum. Margir lán- takar hafi flutt íbúðalán sín frá ÍLS og lífeyrissjóðum til banka vegna betri vaxtakjara. Þessar annir eigi sinn þátt í að tekist hafi að verja störf í greininni. Þá sé stöðugt verið að efla upplýsingatæknina hjá bönkunum en um 700 sérfræðingar sinni henni nú. Bankarnir séu sífellt að bæta að- gengi viðskiptavina að rafrænum lausnum og efla eftirlit og áhættu- stjórnun á öllum sviðum. Þrátt fyrir þennan varnarsigur er viðvarandi fækkun starfsfólks hjá við- skiptabönkunum. Til dæmis störfuðu 3.300 félagsmenn SSF hjá þeim 2014, eða um 750 fleiri en nú. Friðbert segir að nokkur hluti fé- lagsmanna nálgist eftirlaunaaldur á næstu árum. Með því fækki starfs- fólki bankanna að óbreyttu enn frek- ar. 4.650 3.300 2.550 Fjöldi starfsmanna hjá viðskiptabönkunum Starfsmenn Fjöldi útibúa Heimild: SSF 2007 2014 2020 157 95 73 Nóv. 2020 Hægir á fækkun starfa í bönkum  Annríki vegna nýrra lána vann gegn þróuninni Friðbert Traustason hafðu það notalegt á nýju ári vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is Eigum úrval af miðstöðvar- og handklæðaofnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.