Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 61
DÆGRADVÖL 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
„ÉG VARÐ LÍKA ALLTAF VEIKUR AF AÐ
HLUSTA Á SJÚKRASÖGUR ANNARRA.”
„ANDAÐU DJÚPT AÐ ÞÉR OG LÍTTU SVO
ELDSNÖGGT Á REIKNINGINN.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera ófullkominn
en fullkominn fyrir þig.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
„KÆRA SPYRÐU
HUNDINN”…
„HVERS VEGNA HEFUR
HUNDUR ALDREI GENGIÐ Á
TUNGLINU?”
VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF!
ENGIN
TRÉ
HVER SAGÐIRÐU AÐ BYGGI HÉR?
SEIFUR
STUÐNINGSSAMTÖK
ÍMYNDUNARVEIKRA
það var ævintýralegt að kynnast
fólkinu og spila. Maður fann það á
tónleikunum að fólkið skynjaði og
skildi tónlistina svo vel. Ég man líka
eftir að fólk kom að sviðinu og færði
mér blóm persónulega og sumir fóru
með ljóð. Þetta var ótrúlega fallegt.“
Edda minnist líka á ferð til Kína
árið 2009. „Þar var ég að spila í söl-
um þar sem voru 2.500 manns og í
eitt skipti kíkti ég út í salinn og sá
mjög mikið af börnum og hugsaði
með mér að það yrði nú örugglega
kliður í salnum. Það varð ekki raun-
in, því það var alveg dauðaþögn á
meðan ég spilaði. Það var alveg ótrú-
legt að kynnast Kína og þar er gífur-
legur áhugi á klassískri tónlist.“
Fjölskylda
Eiginmaður Eddu er franski tón-
listarmaðurinn Olivier Manoury, f.
13.7. 1953. Foreldrar hans eru Rol-
and Manoury, f. 10.6. 1928, d. 22.12.
2015, ljósmyndari og Raymonde Ma-
noury, f. 20.11. 1928, d. 21.6. 2008,
húsfreyja. Sonur Eddu og Olivers er
Tómas Manoury, f. 23.8. 1979, tón-
listarmaður, búsettur í Reykjavík,
maki Christine Heirbaut, f. 20.1.
1984, sérkennari. Þau eiga Lúkas, f.
22.8. 2017. Tómas á soninn Tristan,
f. 11.3. 2004, með Valdísi Guðmunds-
dóttur, f. 2.3. 1978, eðlisfræðingi í
Reykjavík. Systkini Eddu eru Helga
Erlendsdóttir, f. 5.12. 1949, lífeinda-
fræðingur og klínískur prófessor í
Reykjavík, og Einar Erlendsson, f.
15.5. 1954, ljósmyndafræðingur í
Reykjavík.
Foreldrar Eddu eru hjónin Er-
lendur Einarsson, forstjóri Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga, f.
30.3. 1921, d. 18.3. 2002 og Margrét
Helgadóttir húsfreyja, f. 13.8. 1922,
d. 2.8. 2010.
Edda
Erlendsdóttir
Margrét Elíasdóttir
húsfr. í Þykkvabæ í Landbroti
Páll Sigurðsson
bóndi í Þykkvabæ I í
Prestbakkasókn, Skaft.
Gyðríður Pálsdóttir
húsfr. í Seglbúðum í Landbroti
Helgi Jónsson
bóndi í Seglbúðum í Landbroti
Margrét Helgadóttir
skrifstofumaður og síðar
húsfreyja í Reykjavík
Ólöf Jónsdóttir
húsfr. í Seglbúðum í Landbroti
Jón Þorkelsson
b. í Seglbúðum í Landbroti
Rannveig Einarsdóttir
húsfreyja í Vík í Mýrdal
Jón Brynjólfsson
bóndi á Höfðabrekku í
Mýrdal, síðar trésmiður og
vegaverkstjóri í Vík
Þorgerður Jónsdóttir
vinnustúlka í Vík í Mýrdal
Einar Sigurgísli Erlendsson
skrifstofum., skrifari og afgr.m.
í Víkurkauptúni, V-Skaft.
Ragnhildur Gísladóttir
húsfreyja í Vík í Mýrdal
Erlendur Bjarnarson
trésmiður og járnsmiður
í Vík í Mýrdal
Úr frændgarði Eddu Erlendsdóttur
Erlendur Einarsson
forstjóri í Reykjavík
Guðmundur á Sandi orti nýjárs-vísur 1930:
Ótta kemur með uppsett hár
austan land og sæinn,
góðan dag og gleði-ár
getur flutt í bæinn.
Mikils háttar morgunbrún
mundi nefnd, ef veitir:
fisk á bryggjur, flekk í tún,
fagurviðri um sveitir.
Hræsni og skreytni hljóti gröft,
hrökkvi af sannleik tundur.
Öfugsnúin helsi og höft
höggvist öll í sundur.
Káinn sendi nýjársvísu til Jón-
asar Hall.:
Flúði ég kenndur fyrst til þín,
fullur enn af gríni.
Byrja og enda árin mín
öll á brennivíni.
En hann orti líka:
Aldrei brenni- bragða eg –vín
né bragi nenni að tóna.
Fellt hefur enn þá ást til mín
engin kvenpersóna.
Eftirlætisljóð Japana er staka af
þeirri gerð, sem nefnd er tanka.
Hún er 5 ljóðlínur, 5, 7, 5, 7 og 7
atkvæði í línu. „Í árslok“ nefnist
þessi tanka. Helgi Hálfdánarson
þýddi:
Hvern dag hugsa ég:
víst getur þessi dagur
orðið síðastur.
Og sjá, einnig þetta ár
hef ég lifað til enda!
Þessi tanka er ort á nýjársdag:
Nú er upp runninn
morgunn fyrsta nýjársdags,
og með snjódrífu
vaknandi vors mun berast
blessun á blessun ofan.
Á síðari öldum hafa komið fram
japönsk skáld, sem fellt hafa aftan
af tönkuforminu tvær línur, svo að
eftir standa 17 atkvæði, 5, 7 og 5
atkvæði í línu. Sá háttur kallast
hæka og hljómar svo í þýðingu
Helga:
Nýjárs-drauminn minn
geymi ég sem leyndarmál
og bara kími.
Enn er liðið ár,
ennþá ber ég hatt og skó
pílagríms á jörð.
Þennan nýjársdag
skal sá vera velkominn
sem treður snjóinn.
Ég óska lesendum Vísnahorns
árs og friðar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Nýjársvísur og gleðilegt ár
Gleðilegt Nýtt Ár!
Við þökkum viðskipt in á árinu sem er að l íða.