Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARSTÓ með og án rafmagns lyftibún Komið og skoðið úrvalið Óskum landsmönnum farsældar á nýju ári Búið er að fresta öllum áramóta- brennum hér á landi í ár. Þrátt fyrir það verða flugeldasýningar haldnar víða um land í dag, en björgunar- sveitir viðkomandi sveitarfélaga standa fyrir því. Misjafnt er hvenær sýningarnar hefjast, en upplýsingar þess efnis er hægt að nálgast hjá björgunarsveit í næsta nágrenni. Á höfuðborgarsvæðinu verður Hjálparsveit skáta m.a. með flug- eldasýningar í Garðabæ og Kópavogi í dag. Í Kópavogi hefst sýningin klukkan 21 og verður á öðru svæði en venju samkvæmt. Er það sökum þess að engin brenna verður í bænum, en sýningin hefur yfirleitt verið í grennd við áramótabrennuna. Skotið verður frá ótilgreindu svæði í nágrenni Lindahverfis, nákvæm staðsetning er ekki gefin upp til að koma í veg fyrir hópamyndun. Sýningin mun þó sjást víða. Heildarfjöldi flugeldasýninga í dag er vel yfir þrjátíu. Listinn hér að ofan er enn fremur ekki tæmandi. Á lands- byggðinni verður víða hægt að fylgj- ast með ljósadýrðinni. Til að mynda verður flugeldum skotið upp í Hnífs- dal, á Eskifirði og á Laugarvatni. Spáð er blíðviðri á nýársnótt á höf- uðborgarsvæðinu og því ættu flug- eldasýningar að sjást mjög vel. Að sama skapi má búast við talsverðri svifryksmengun af völdum flugeld- anna á nýársnótt og fram eftir fyrsta degi ársins. Undanfarin ár hafa um 600 tonn af skoteldum verið flutt inn árlega. Sökum þessa er fólk með und- irliggjandi sjúkdóma hvatt til að vera inni þegar mest gengur á í kringum miðnætti. Blakkur á Patreksfirði Sæbjörg á Flateyri Björgunarfélag Árborgar á Selfossi Dagrenning á Hvolsvelli Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð Björgunarsveitin Eining á Breiðdalsvík Hjálparsveit skáta Kópavogi Björgunarsveitin Hérað Björgunarsveitin Gerpir Neskaupstað Tindar í Hnífsdal Flugbjörgunarsveitin á Hellu Björgunarsveitin Brimrún á Eskifirði Hjálparsveit skáta Garðabæ Björgunarsveitin dagrenning á Hólmavík Björgunarsveitin Grettir á Hofsós og Hólum í Hjaltadal Björgunarfélagið Blanda Björgunarsveitin Kópur á Bíldudal Björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni Skagfirðingasveit á Sauðárkróki Björgunarsveitin Bára á Djúpavogi Björgunarsveitin Týr með sýningu á Svalbarðseyri Víkverji í Vík Björgunarfélag Ísafjarðar á Ísafirði og Súðavík Björg á Suðureyri Björgunarsveitin Lífsbjörg á Breiðinni í Snæfellsbæ Björgunarsveitinn Strönd HSSH í Hveragerði Björgunarfélag Vestmannaeyja Björgunarsveitin Ernir Strákar á Siglufirði Geisli Fáskrúðsfirði Við í Mývatnssveit Björgunarsveitin Húnar á Hvammstanga Flugeldasýningar á gamlárskvöld Fjöldi flugeldasýninga  Björgunarsveitir halda flugeldasýningar í dag  Öllum áramótabrennum hefur verið aflýst  Yfir 30 sýningar Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Útköll flugdeildar Landhelgisgæsl- unnar voru aðeins 184 á árinu sem er að líða, þar af voru 82 í hæsta for- gangi. Útköll deildarinnar hafa ekki verið færri frá árinu 2012. Um er að ræða mikla lækkun frá fyrra ári er út- köllin voru 220 en þá hafði þeim þegar fækkað um 20% frá árinu 2018 þegar útköll voru 278, en útköllum hafði fjölgað stöð- ugt frá 2014. Ekki hefur ver- ið framkvæmd sérstök greining á því hvers vegna úköllum hefur fækkað í ár en tal- ið eð rekja megi stóran hluta skýr- angarinnar til kórónuveirufaraldurs- ins að sögn Ólafar Birnu Ólafsdóttur, flugrekstrarstjóra Landhelgisgæsl- unnar. „Það er minna af ferðamönn- um og svo hefur heimsfaraldurinn gert það að verkum að fólk er ekki jafn mikið á faraldsfæti og áður.“ Hún segir faraldurinn hafa sett svip sinn á rekstur flugdeildarinnar á árinu. „Við höfum þurft að bæta í æf- ingaflug til þess að reyna að tryggja lágmarks flugtíma áhafna yfir árið.“ Vísar Ólöf Birna til þess að krafa sé um að hver áhöfn sé með að lágmarki 200 flugtíma á ári til þess að viðhalda þekkingu, hæfni og færni í útköllum, ekki síst þar sem um er að ræða erf- iðar aðstæður. Það hafi hins vegar ekki verið einfalt að auka æfingaflug- ið þar sem starfsfólk var aðgreint vegna sóttvarnaráðstafana. Misstu af ferðum í flughermi „Við höfum samt sem áður ekki náð að fljúga eins mikið og við hefðum viljað,“ segir hún og bendir meðal annars á ferðatakmarkanir og til- heyrandi sóttvarnaaðgerðir hafa gert það að verkum að áhafnir Landhelg- isgæslunnar misstu af ferðum í flug- herma erlendis. „Við höfum þurft að bregðast við því með að hugsa aðeins út fyrir kassann í sambandi við þjálf- anir og stillt upp annars konar æf- ingaflugum heldur en við höfum venjulega gert. Þetta hefur gengið mjög vel og þökk sé samheldni starfs- manna flugdeildar fundum við ýmsar leiðir til þess að bregðast við þessu mjög svo óvenjulega ástandi.“ Spurð hvort áætlanir geri ráð fyrir óbreyttu ástandi vel fram á næsta ár, svarar Ólöf Birna: „Við munum eins og aðiri á landinu búa við takmark- anir fram á árið. Við erum í fjórða for- gangshóp hvað varðar bólusetningar og ef það er eitthvað sem maður er búinn að læra af þessu ári þá er það að búa sig undir það versta og gera plön út frá því. Svo munum við breyta okk- ar plönum í takt við aðstæður og þeg- ar við teljum það öruggt fyrir starf- semina.“ Útköllin ekki færri síðan 2012  Flugdeild Landhelgisgæslunnar varð að fjölga æfingaflugum til að ná lágmarksflugtíma áhafna  Flugrekstararstjóri kveðst gera ráð fyrir því versta en að gengið hafi vel að bregðast við faraldrinum Morgunblaðið/Árni Sæberg Flogið Sóttvarnaráðstafanir ná til áhafna, þar með talið grímunotkun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Útkall Þyrla Landhelgisgæslunnar TF Gró á flugi við Botnsúlur. Útköllum flugdeildar hefur fækkað mikið milli ára og hefur æfingum fjölgað. Útköll flugdeildar Landhelgisgæslunnar Fjöldi útkalla 2009 til 2020* 300 250 200 150 100 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 He im ild : L a n d h e lg is gæ sl a n *Það sem af er ári 2020 184 220 278 255 194 211 194 145 Ólöf Birna Ólafsdóttir Ungur karlmaður á réttargeðdeild Landspítala svipti sig lífi á jóladag. Maðurinn var talinn í bráðri sjálfs- vígshættu og var á svokallaðri sól- arhringsvötkun, eins og aðrir vist- menn á réttargeðdeildinni. Í því felst að fylgst er með fólkinu á kort- ersfresti. Sigurður Páll Pálsson, yfirlæknir geðlækninga á öryggis- og rétt- ardeild Landspítala, sagði í samtali við mbl.is í gær að málið sé til rann- sóknar hjá lögreglu, sem taki skýrslu af öllum hlutaðeigandi. Í kjölfarið verði farið í innri athugun. Rannsaka dauðsfall á réttargeðdeild Fram kom í umfjöllun um verð- hækkanir í Morgunblaðinu sl. þriðjudag, að hækkun á móttöku- gjaldi endurvinnslustöðva Sorpu næmi í sumum tilvikum hátt í 300%, til að mynda á steinefnum frá bygg- ingariðnaði. Sorpa vill koma því á framfæri, að gjaldskrá endur- vinnslustöðva breytist um áramótin og hækki um u.þ.b.1,5% fyrir flokk- aðan úrgang og 1,8% fyrir óflokk- aðan. Hækkun á móttökugjaldi á urðunarstað Sorpu í Álfsnesi nemi þó í sumum tilvikum hátt í 268%, til að mynda á steinefnum frá bygg- ingariðnaði. Árétting
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.