Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 54
54 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
✝ Björg Thorbergfæddist í
Reykjavík 2. sept.
1946. Hún lést 28.
október 2020 á
hjúkrunarheimilinu
Skjóli. Móðir henn-
ar var Hulda Bergs-
dóttir, fædd 31. júlí
1924, dáin 6. sept.
1996. Faðir hennar
hét Jack Kingston.
Foreldrar Huldu
voru Sumarlína Þuríður Eiríks-
dóttir, fædd 20. apríl 1898, dáin
7. júlí 1988, og Bergur Thorberg
Þorbergsson vélstjóri, fæddur
30. sept. 1894, dáinn 29. ágúst
1953. Björg giftist Gunnari Þórð-
arsyni 9. des. 1968 og voru þau
gift í 10 ár. Börn Bjargar eru
Hulda Berglind Gunnarsdóttir,
fædd 4. júní 1967, Katrín Perla
Gunnarsdóttir, fædd 17. okt.
1972 og Björg Thorberg Sigurð-
ardóttir, fædd 9. feb. 1986, faðir
Bjargar yngri er
Sigurður Björns-
son.
Björg Thorberg
ólst upp að mestu
leyti hjá ömmu
sinni og afa, Sum-
arlínu og Bergi, á
Bræðraborg-
arstígnum þar sem
hún gekk í Vest-
urbæjarskóla. Hún
hafði yndi af því að
vera í sveit á Hofi á Skagaströnd
sem barn. Hún var listakona
mikil, sérstaklega þegar kom að
heimilinu, Björg stundaði mikinn
tréútskurð. Einnig var Björg
hestkona um tíð.
Hún vann við ýmis versl-
unarstörf í gegnum ævina.
Lengst af vann hún þó í Rafbúð
Sambandsins í Ármúla 3 og síðar
hjá bílaumboðinu Jötni.
Útför fór fram í Fossvogs-
kirkju 9. nóvember 2020.
Elsku mamma, ég ætlaði að
vera búin að rita þetta fyrir löngu,
en það er mikið búið að ganga á –
eins og þú veist. Nú langar mig að
deila með fólkinu okkar, vinum og
fleirum, hversu yndislega mann-
eskju þú hafðir að geyma, reyndar
var það löngu vitað og ekkert
leyndarmál.
Uppvaxtarárin mín voru yndis-
leg. Eins og kunnugt var, þá var
heimilið okkar eins og félagsmið-
stöð, það var alltaf svo gaman
heima. Þú leyfðir okkur vinunum
að gista mikið heima, náttfatap-
artíin voru ófá. Þegar við höfðum
„aldur til“ tóku partíin við. Við
héldum mörg partí heima, enda
urðu þar aldrei vandamál, mamma
passaði okkur. Ég vann í Bónus í
15 ár, staffapartíin urðu einnig all-
mörg heima, þér til mikillar
skemmtunar (ekki kaldhæðni). Oft
kom það fyrir að þú laumaðist
fram til okkar og drykkir með okk-
ur. Mér fannst það yndislegt.
Eftirminnilegustu tímarnir sem
ég á með þér eru jólin, öll jól. Þú
gerðir jólin svo hátíðleg. Þá var allt
það fínasta dregið fram, hver
gluggi var prýddur jólaljósum,
jólakrans á útidyrahurðinni, jóla-
sveinar stóðu úti um alla íbúð, stór-
ir og smáir, í öllum gerðum. Jóla-
tréð fór upp snemma, skreytingin
á því var alltaf stórkostleg, sér-
staklega þegar þú hengdir á þá
jólastafina, ég át þá út í eitt. Oft
kom það fyrir að þeir voru allir
horfnir af trénu löngu fyrir jól, það
var allt í lagi, þú hlóst bara. Hlát-
urinn þinn var svo skemmtilegur,
heyri hann ennþá og mun alltaf
gera. Þú gerðir allt til að ég yrði
glaðasta barnið á jólunum. Yfir
pökkunum mínum ríkti mikill
leyndardómur, þú náðir alltaf að
plata mig, ég vissi aldrei hvað var í
þeim þó að ég hristi úr þeim líftór-
una. Ég reyndi oft að leita að gjöf-
unum áður en þú pakkaðir þeim
inn, það gekk ekki heldur, því þú
þekktir mig vel.
Maturinn, mamma, hann var
alltaf svo góður, sérstaklega á jól-
unum. Hefðin var svínabógur a la
mamma á aðfangadag, og sósan,
ólýsanleg, ég drakk hana með kjöt-
inu, þvílíkur meistari sem þú varst
í eldhúsinu. Eftirminnilegasta jóla-
gjöfin sem ég fékk frá þér var þeg-
ar ég var 10 ára; pakkinn var
stærri en ég. Þú gafst mér
splunkunýjan bláan Stiga-sleða.
Ég varð svo glöð og ánægð, titraði
og skalf. Ég fékk bláan því þú viss-
ir að ég vildi ekki stelpuliti. Þetta
aðfangadagskvöld endaði ég úti í
brekku með vinunum langt fram á
kvöld. Ég var glaðasta barnið.
Ég fór í jarðarförina þína, missti
hundinn okkar og tók tvö lokapróf
í háskólanum í sömu vikunni. Þessi
tvö próf voru síðustu prófin mín til
að fá að útskrifast sem tölvunar-
fræðingur. Þessi vika var líklega
sú erfiðasta á ævi minni. En
mamma, veistu hvað, ég náði að út-
skrifast, ég get ekki lýst því hvern-
ig það er að geta ekki eytt þessari
gleði með þér, fá að horfa í augun
þín, segja þér frá, og sjá stoltið í
augunum þínum. Ég á allt jóla-
skrautið þitt, alla jólasveinana, allt
saman. Helgina eftir að þú fórst
setti ég það allt upp; húsið mitt er
eins og jólaland, finn að þú ert hér.
Gleðileg jól mamma, ég elska
þig meira en allt, sjáumst seinna.
P.s. er Snjalla ekki örugglega
þarna hjá þér?
Björg Thorberg
Sigurðardóttir.
Björg Thorberg
Elsku tengda-
móðir mín, þó svo
það séu bara rúm
tvö ár síðan við hittumst fyrst
þá finnst mér eins og við höfum
þekkst alla ævi. Þú tókst mér
strax sem einu af börnunum
þínum og vinátta okkar var ein-
stök frá fyrsta degi, því mun ég
aldrei gleyma og væntumþykju
þína í minn garð mun ég geyma
í hjarta mínu á meðan ég lifi.
Öll trúnaðarsamtölin okkar
mun ég geyma í hjarta mínu því
þau voru jú bara á milli okkar,
þannig varst þú, þú varst ekki
allra en við sem náðum hjarta
þínu áttum það alla þína ævi-
daga. Við gerðum margt saman,
fórum t.d. á marga tónleika, þú,
ég og Halldór. Við fórum oft í
ísbíltúr, síðast í Perluna, en oft
fórum við í Ungó og þá gjarnan
líka á rúntinn í Garð og Sand-
gerði. Þú sýndir mér hvar
tengdaforeldrar þínir bjuggu í
Garðinum og ég sýndi þér hvar
ég og mamma mín bjuggum í
Sandgerði og ekki má gleyma
því að þú vildir alltaf fara á
bryggjuna enda reri Dóri þinn á
Freyjunni og Halldór sonur
þinn lengst af frá Sandgerði,
mínum heimabæ.
Elsku Hulda mín, þú munt
alltaf eiga stað í hjarta mínu.
Þín tengdadóttir,
Guðný Sigurbjörg.
Elsku mamma kvaddi okkur
hinn 11. desember síðastliðinn.
Mamma var dásamleg móðir
og á ég svo margar ljúfar og
góðar minningar sem tengjast
henni. Við mamma vorum svo
góðir vinir og það var alltaf
mjög gaman að heimsækja hana
Bergþóra Hulda
Ólafsdóttir
✝ BergþóraHulda Ólafs-
dóttir fæddist 13.
nóvember 1942.
Hún lést 11. desem-
ber 2020.
Útförin fór fram
í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
á Víkurbrautina.
Hún tók alltaf svo
vel á móti okkur
þessi elska með sín-
um einstaka kær-
leik sem fylgdi
henni alla tíð og
alltaf var passað
upp á það að við
færum ekki svöng
út því borðin svign-
uðu undan kræs-
ingunum.
Við mamma fórum margar
Reykjavíkurferðirnar og í þeim
ferðum var mamma dugleg í
tískubúðunum, hún var svo mikil
skvísa þessi elska. Oftar en ekki
enduðu þessar ferðir okkar á
Askinum sem var uppáhaldsveit-
ingastaðurinn hennar.
Og ekki má gleyma öllum ut-
anlandsferðunum okkar, bæði
með fjölskyldunni og bara við
tvö, hún og prinsinn hennar eins
og hún kallaði mig svo oft. Já
hún mamma elskaði sólina og
hitann.
Við ferðuðumst líka mikið
saman innanlands og dáðist
mamma að fallega landinu okkar
í þessum ferðum okkar. Sagði
hún gjarnan í upphafi ferðar:
„Halldór minn, settu nú á Hún
hring minn ber (sem var uppá-
haldslagið hennar) og öll hin
falllegu lögin hans Villa Vill.“
Eftirminnilegar eru t.d. ferðirn-
ar til Jónu systur mömmu í
Biskupstungunum. Þar tóku
Jóna og Siggi alltaf vel á móti
okkur með sinni glaðværð og
góðum kræsingum. Á heimleið-
inni var alltaf komið við á Geysi
þar sem við fengum okkur kjöt-
súpu. Hún mamma hélt sko fast
í hefðirnar.
Þegar elsku mamma lagðist
inn á spítala í lok október datt
mér ekki í hug að hún kæmi
ekki heim aftur.
Við Guðný mín erum þakklát
fyrir að hafa getað verið hjá
henni dag og nótt undir það síð-
asta. Söknuðurinn er mikill en
minningarnar ylja okkur.
Þinn sonur,
Halldór.
Þá hefur hann Sverrir Oddur
bróðir minn lagt upp í sína hinstu
för. Fráfall hans kom okkur á
óvart þótt við vissum að á und-
anförnum árum hefði heilsu hans
hrakað nokkuð.
Sverrir fæddist með fötlun
sem kom ekki í ljós strax við fæð-
ingu. Fötlunin ágerðist með ár-
unum og hafði veruleg áhrif á
hreyfigetu hans og lífsgæði.
Hann gat ekki talað en tjáði sig
með svipbrigðum og hljóðum
þegar hann taldi þörf á. Upp í
hugann koma minningabrot úr
æsku þegar Sverrir gat hlaupið
og hjólað. Honum þótti gaman að
stríða litlu systur en var alltaf
góður við hana. Þegar við systk-
inin eignuðumst okkar börn, var
hann ekki hrifinn af þeim í fyrstu
en þegar þau stækkuðu og voru
Sverrir Oddur
Gunnarsson
✝ Sverrir OddurGunnarsson
fæddist 11. júlí
1953. Hann lést 19.
desember 2020.
Útför Sverris fór
fram 30. desember
2020.
Eftirfarandi
grein er endurbirt
þar sem hluti
greinarinnar birtist
ekki í blaðinu í
gær. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
komin á hreyfingu
fannst honum þau
skemmtilegri og
þótti sérstaklega
gaman að geta
danglað með fótun-
um í þau. Og þá hló
hann hátt. Hann var
sannkallaður gleði-
gjafi allrar fjöl-
skyldunnar með
einlæga brosinu
sínu og fallegu aug-
unum. Börn og barnabörn í fjöl-
skyldunni allri umvöfðu Sverri
með hlýju og væntumþykju.
Sverrir Oddur átti einstaklega
sterk og hlý tengsl við pabba og
mömmu sem sinntu honum af
einstakri elju og hlýleika alla tíð.
Mamma fylgir nú þriðja barni
sínu til grafar. Slík lífsreynsla
hlýtur að vera ótrúlega erfið en
mamma er og hefur alltaf verið
klettur í fjölskyldunni.
Við fjölskyldan mín þökkum
starfsfólki sambýlisins á Svö-
luási, þar sem Sverrir bjó síðustu
árin, fyrir einstaklega góða og
faglega umönnun. Slíkt verður
seint fullþakkað.
Að leiðarlokum þökkum við
Sverri fyrir alla gleðistundirnar
sem við áttum með honum. Guð
blessi minningu hans. Minningin
um góðan dreng mun lifa.
Valgerður (Vala) systir
og fjölskylda.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HANNA GRETA HALLDÓRSDÓTTIR
húsmóðir og verkakona,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð
23. desember. Útförin fer fram frá
Akureyrarkirkju 4. janúar klukkan 10.30.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir athöfnina en beint streymi verður á
Facebook-síðunni
Jarðarfarir í Akureyrarkirkju-beinar útsendingar.
Sigurveig Rósa Agnarsdóttir Þorgrímur Sverrisson
Ævar Ingi Agnarsson Rakel Gunnþórsdóttir
Jóhanna María Agnardóttir Unnsteinn Kárason
Berglind Ósk Agnarsdóttir Hans Óli Rafnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður, faðir, sonur, bróðir,
barnabarn og frændi,
VALGEIR ÞÓR ÓLASON,
lést á heimili sínu sunnudaginn 27.
desember. Útförin fer fram 7. janúar.
Vegna takmarkana í þjóðfélaginu verða
einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja styðja eiginkonu
hans og börn á þessum erfiðu tímum er bent á
söfnunarreikninginn: 0123-05-001155, kt. 141057-4649.
Kristný María Hilmarsdóttir
Hilmar Óli Valgeirsson
Emilía Mist Valgeirsdóttir
Logi Þór Valgeirsson
Óli J. Kristjánsson Jóhanna Jónasdóttir
Jónas Pétur Ólason
Baldur Freyr Ólason
Helga Sif Ólason
fjölskylda og aðrir ástvinir
Ástkær sambýliskona, móðir, tengdamóðir
og amma,
RAGNHILDUR GUÐNADÓTTIR,
Skrúð, Reykholtsdal,
lést á sjúkrahúsinu á Akranesi
27. desember.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Sigfús Kristinn Jónsson
Einar Guðni Jónsson Josefina Morell
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
BRYNDÍS JÓNSDÓTTIR,
Suðurlandsbraut 62,
sem lengst af bjó á Laugarásvegi 61,
Reykjavík,
lést 26. desember.
Útför hennar verður frá Áskirkju miðvikudaginn
6. janúar klukkan 15 að viðstöddum nánustu ættingjum.
Streymt verður frá athöfninni.
Sigríður Snæbjörnsdóttir Sigurður Guðmundsson
Jónas Snæbjörnsson Þórdís Magnúsdóttir
Herdís Snæbjörnsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær dóttir okkar, móðir, tengdamóðir,
systir og amma,
SIGFRÍÐ JÓNSDÓTTIR,
varð bráðkvödd sunnudaginn
20. desember. Útför hennar fer fram frá
Blönduósskirkju fimmtudaginn 7. janúar
klukkan 14. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða einungis
nánasta fjölskylda og vinir viðstödd.
Erla Jóhannsdóttir Gísli Steingrímsson
Erla Ísafold Sigurðardóttir Stefán Þórarinn Ólafsson
Heba Gísladóttir Bernódus Alfreðsson
Jón Helgi Gíslason
Jóhann Friðrik Gíslason Anna María Birgisdóttir
Halla Gísladóttir
Ragnar Hólm Gíslason Svandís Bergsdóttir
Rósalind Gísladóttir Gunnar Kristmannsson
Stefán Örn Jónsson Björk Elíasdóttir
Ragnheiður Lára Jónsdóttir
Helena Jónsdóttir
og barnabörn