Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 31.12.2020, Blaðsíða 44
44 STJÓRNMÁL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020 Við höfum varla upplifað annað eins ár. Farsóttinkom okkur algjörlega í opna skjöldu og þó að viðséum vön býsna miklum hagsveiflum þá eru efna-hagsleg áhrif hennar sannarlega fordæmalaus. Sum okkar finna ekki fyrir kórónakreppunni en á stóra af- markaða hópa samfélagsins leggst hún þungt og ekki öll kurl komin til grafar með það. Náttúruöflin hér á landi minntu líka óþyrmilega á sig þetta árið með ofsaveðri og snjó- og ofanflóðum, nú síðast á Seyðisfirði. Þar gekk kraftaverki næst að enginn mannskaði skyldi verða en eyði- leggingin í bænum fagra er átakanleg og íbúar í áfalli. Tjón- ið verður að bæta og úrbóta er þörf til að tryggja öryggi fólks á Seyðisfirði og víðar. Þessi áramótin hugsum við til samborgara okkar sem eiga um sárt að binda og allra þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á veirunni eða þurft að færa þungbærar fórnir vegna sóttvarna. Við hugsum til ykkar. En nú er sólin loksins að rísa og eins og skáldið sagði: „það er maísólin okkar“. Betri tíð er vonandi í vændum. Fyrsti skammturinn af bóluefni kom til landsins á mánudag og við urðum vitni að fyrstu bólusetningunum hér á landi í vikunni. Enn er margt óljóst um það hvernig bólusetningum verður háttað en framundan er lokarimman í þessum langa og leiðinlega slag við veiruna. Við getum á ný hafið upp- byggingarstarfið. Og þá er nauðsynlegt að velta fyrir sér: Hvaða valkostir standa okkur til boða? Hvernig viljum við haga samfélagi okkar á næstu árum? Hvaða lærdóm höfum við dregið af átökunum við veiruna? Jafnaðarstefna fyrir allt Ísland Samfylkingin býður fram klassíska norræna jafnaðar- stefnu fyrir allt Ísland og alla Íslendinga. Við trúum því að hin gömlu góðu gildi hennar, sem lögðu grunninn að fram- úrskarandi samfélögum Norðurlanda, séu rétta leiðin fram á við. En við höfum líka lært af reynslunni. Framtíðarsýn jafnaðarmanna snýst um fulla atvinnu, fjöl- breytt tækifæri óháð efnahag og sterkt almennt velferðar- kerfi fyrir alla Íslendinga. Hún snýst í grunninn um bætt kjör venjulegs fólks og að við deilum lífsskilyrðum í þessu landi, óháð uppruna og þvert á alla þjóðfélagshópa. Við er- um andsnúin misskiptingu á grundvelli auðs, valds, tæki- færa og lífsgæða og viljum draga úr vaxandi bili milli borg- ar og byggða. Síðast en ekki síst hefur Samfylkingin tekið afgerandi forystu á sviði loftslagsmála með áherslu á græna uppbyggingu um land allt og ítarlegri stefnumótun um græna atvinnubyltingu. Það dugar ekkert minna. Gróðahyggja ekki svarið Æ fleirum verður ljóst að gróðahyggjan á engin svör. Þegar kemur að stærstu áskorunum okkar daga – hvort sem það er efnahagskreppa og ójöfnuður eða heimsfaraldur og hamfarahlýnun – þá skila þau stjórnmálaöfl auðu sem standa fyrir ofuráherslu á ískalda markaðshyggju. En er það nema von að stjórnmálafólk sem trúir því að markaðurinn leysi allt, eigi erfitt með að eiga við mesta og alvarlegasta markaðsbrest heimssögunnar, sem er hamfara- hlýnun af mannavöldum? Eða að hörðustu frjálshyggju- menn, sem hreinlega trúa því ekki að samfélagslegar stofn- anir geri gagn, reynist ráðþrota þegar þörf er á að beita afli hins opinbera af festu til að takast á við efnahagslegar af- leiðingar heimsfaraldurs og ójöfnuð í samfélaginu? Hug- myndafræðilegur rétttrúnaður má ekki þvælast fyrir heil- brigðri skynsemi. Staðreyndin er líka sú að stjórnmálaöfl gróðahyggjunnar eiga litla sem enga samleið með þeim gömlu góðu gildum sem íslenskur almenningur aðhyllist upp til hópa: um sam- stöðu, samábyrgð og samhjálp. Þetta hefur sýnt sig undan- farna mánuði í viðureigninni við veiruna og efnahagsleg áhrif hennar. Því í mótvindi kemur gjarnan í ljós úr hverju stjórnmálafólk er gert, hvaða hagsmunir eru settir í forgang og hvaða gildi ráða ferðinni í raun og veru. Ábyrgðarleysi Einn stjórnmálaflokkur hefur verið áberandi óábyrgari en aðrir flokkar og úr takti við þjóðina þegar kemur að sótt- varnamálum. Nær algjör og aðdáunarverð samstaða al- mennings á Íslandi að undanförnu á sér eins skýra and- stæðu og hugsast getur í fullkomnu ábyrgðarleysi Sjálf- stæðisflokksins, sem hefur leikið tveimur skjöldum og hlaupist undan ráðstöfunum eigin ríkisstjórnar. Þingmenn flokksins hafa hamast gegn settum sóttvarnareglum og ráð- herraliðið gengið á undan með vondu fordæmi og þverbrotið þær, ítrekað. Allt með tilheyrandi vandræðum fyrir sam- starfsfélaga sína og þríeykið góða. Eitt er að hlaupa á sig og gera mistök. En það er eitthvað annað og alvarlegra að gera svona mikið, svona markvisst, til að grafa undan trausti og tiltrú almennings á nauðsyn- legum aðgerðum í þágu almannavarna. Ábyrgðartilfinningin virðist lítil sem engin og lítið hugsað til þeirra sem leggja á sig mikið í framlínustörfunum, þeirra sem misst hafa lífsvið- urværið vegna sóttvarna, þeirra sem þurft hafa að sæta ein- angrun og vera í sóttkví eða þeirra sem glíma við heilsu- brest eða ástvinamissi. Þetta eru ekki viðhorf sem við þurfum á að halda þegar uppbygging samfélagsins hefst á ný. Þegar við ákveðum hvernig við viljum haga okkar málum á næstu árum, hvern- ig við ætlum að skapa sterkara og heilsteyptara samfélag á Íslandi fyrir okkur sjálf, hvert annað og komandi kynslóðir. Samhljómur með Samfylkingunni Því miður var sama hugmyndafræðin uppi á teningnum við stjórn efnahagsmála á árinu. Úreltar kennisetningar réðu för þegar betur hefði farið á að beita almennri skyn- semi. Í stað þess að létta undir með þeim sem lentu verst í kórónukreppunni var ráðist í ómarkvissa lækkun fjármagns- tekjuskatts og erfðafjárskatts, auk þess sem milljörðum var ausið í uppsagnastyrki. Tugir þúsunda misstu vinnuna en engin áætlun hefur enn verið sett fram af hálfu stjórnvalda um fjölgun starfa. Bætur atvinnuleysistrygginga mátti ekki hækka vegna hættu á „letjandi áhrifum“ og það var ekki gert fyrr en seint og um síðir þegar þrýstingur Samfylking- arinnar og samtaka launafólks reyndist ríkisstjórninni of- viða. Efnahagsáætlun okkar jafnaðarmanna til næsta árs, sem birtist í Ábyrgu leiðinni – úr atvinnukreppu til grænnar framtíðar, mæltist vel fyrir víða í samfélaginu og á eftir að reynast gott leiðarljós. Lykilorðin þar eru vinna, velferð og græn uppbygging um land allt. Grunnforsenda þess að hér sé hægt að halda uppi sterku velferðarkerfi er hátt atvinnu- stig. Yfir tuttugu þúsund manns vilja vinnu en fá ekki, með tilheyrandi tekjufalli og erfiðleikum. Samt er Samfylkingin eini stjórnmálaflokkurinn sem hefur lagt fram heildstæða áætlun hvernig á að ná niður atvinnuleysi og fjölga störfum. Val almennings Auðvitað skiptir það ekki mestu máli sem er búið og gert heldur hljóta verkefnin framundan að eiga hug okkar allan. Og þau eru ærin. Vinstri grænum og Framsóknarfólki er vorkunn að standa frammi fyrir svo brýnum úrlausnarefnum með óábyrgum samstarfsflokki í ríkisstjórn sem skilur ekki gildi samstöðu, samábyrgðar og samhjálpar. Þá mættu þau hafa hugfast að aðrir valkostir eru í boði við stjórn landsins. Það vita kjósendur líka þegar að kosningum dregur á nýju ári, hvort sem þær verða í haust eða þeim verður flýtt fram á vor vegna vandræða í stjórnarsamstarfinu. Sólin rís og smám saman blasa skýrir valkostir við okkur. Almenn- ingur getur brátt valið um það hvort hér verði mynduð græn félagshyggjustjórn sem reisir Ísland við úr veiru- kreppunni á forsendum jafnaðarstefnunnar: þar sem við byggjum á félagslegu réttlæti, ábyrgri hagstjórn og heil- brigðum vinnumarkaði – og ráðumst um leið í græna upp- byggingu um land allt. Forsendan fyrir slíkri stjórn er sterk Samfylking. Kæru landsmenn, gleðilegt nýtt ár! Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar Morgunblaðið/Eggert Maísólin Almenningur getur brátt valið um það hvort hér verði mynduð græn félagshyggjustjórn sem reisir Ísland við úr veirukreppunni á forsendum jafnaðarstefnunnar: þar sem við byggjum á fé- lagslegu réttlæti, ábyrgri hagstjórn og heil- brigðum vinnumarkaði – og ráðumst um leið í græna uppbyggingu um land allt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.