Iðjuþjálfinn - 2020, Síða 9
Iðjuþjálfinn 1/20209
Frumþýðendur þýddu listann úr ensku yfir á íslensku hvor í sínu lagi
og báru síðan þýðingarnar saman. Áður höfðu þýðendur komið sér
saman um að hafa heiti hlutverka eitt lýsandi nafnorð þar sem því
yrði við komið. Heiti hlutverka voru eins í báðum þýðingum en
smávægilegar orðalagsbreytingar voru gerðar til að samræma
leiðbeiningar og skilgreiningar hlutverkanna. Þar með urðu til
fyrstu drög Hlutverkalistans á íslensku.
Bakþýðandi þýddi íslensku drögin yfir á ensku og í kjölfarið var
bakþýðingin borin saman við frumútgáfuna á ensku. Heiti hugtaka
og orðalag í bakþýðingunni var stundum ólíkt upphaflegu útgáfunni
en inntakið hins vegar nánast það sama. Leiðbeiningar um notkun
listans voru einnig samhljóma þótt orðalagið væri ekki alls staðar
eins. Heiti fjögurra hlutverka voru nákvæmlega þau sömu í
bakþýðingunni og heiti hinna sex höfðu sömu merkingu þótt
orðfærið væri annað. Dæmi um þetta voru: „Carer“ í stað
„Caregiver“, „Homemaker“ í stað „Home maintainer“ og
„Participant in community organization“ í stað „Participant in
organizations“. Í skilgreiningum frumútgáfunnar koma oft fyrir
orðasamböndin „responsible for“, „spending time or doing
something with“ og „involvement in“. Þau tvö fyrrnefndu voru eins
í bakþýðingunni og frumútgáfunni en það síðastnefnda var ýmist
þýtt „participates in“ eða „attends to“ í bakþýðingunni og var talið
jafngilt. Lítils háttar munur var á sumum hugtökum kvarðanna. Til
dæmis voru hugtökin „unsatisfied“ og „quite satisfied“ notuð í
bakþýðingunni en „dissatisfied“ og „somewhat satisfied“ í
frumútgáfunni, en þetta var talið jafngilt. Lítils háttar breytingar
voru gerðar á skilgreiningum þriggja hlutverka, þ.e. sjálfboðaliði,
umönnunaraðili og heimilishaldari, en orðalag í skilgreiningum á
hinum sjö hélst óbreytt. Hér með voru orðin til önnur drög sem
síðan voru rædd í rýnihópnum (sjá töflu 1).
Rýnihópssamtal
Þátttakendur í rýnihóp voru valdir markvisst til að fá sem mesta
breidd í hópinn m.t.t. aldurs, starfsreynslu og sérsviðs innan fagsins
(Katrín Blöndal og Sigríður Halldórsdóttir, 2013). Haft var samband
símleiðis við sjö iðjuþjálfa, fimm þeirra störfuðu á vettvangi
iðjuþjálfunar og tveir í háskóla. Þeim var boðið að rýna drög að
íslenskri þýðingu Hlutverkalistans: Þátttaka og sátt, með tilliti til
merkingar hugtaka og málfars, og allir brugðust jákvætt við. Í
kjölfarið var þeim sent kynningarbréf í tölvupósti um markmið og
fyrirkomulag samtalsins, ásamt drögum að Hlutverkalistanum á
íslensku. Iðjuþjálfarnir voru á aldrinum 26 til 64 ára með
starfsreynslu á bilinu eitt til 40 ár. Iðjuþjálfarnir á vettvangi störfuðu
með fólki á aldrinum 18–90 ára með ólíkan heilsufarsvanda af
líkamlegum og/eða andlegum toga. Rýnihópurinn ræddi hvert
hlutverk fyrir sig, þ.e. heiti þess, inntak og orðalag skilgreininga og
hvort og hvernig það birtist í íslensku samfélagi. Einnig voru
leiðbeiningar um fyrirlögn listans ræddar. Frumþýðendurnir tveir
voru til staðar í rýnihópnum til að halda umræðunum á sporinu og
skrá innihald þeirra jafnóðum. Þeir gerðu síðan samantekt á inntaki
og niðurstöðum umræðnanna og báru undir þátttakendurna til að
auka réttmæti gagnanna. Í leiðbeiningum um hvernig skuli svara
listanum er orðfærið að gegna hlutverki notað. Þetta orðalag var
ekki öllum tamt í rýnihópnum. Einnig var rýnihópurinn ósammála
um hvort það að gegna hlutverki fæli alltaf í sér bæði ábyrgð og
gjörð eða einungis annað hvort. Orðfærið að sinna hlutverki kom til
tals en var slegið út af borðinu þar sem það er notað í skilgreiningum
sumra hlutverkanna. Að gegna hlutverki var notað í fyrstu útgáfu
Hlutverkalistans á íslensku og flestir höfðu vanist því.
Hópurinn ræddi um heiti hlutverka í listanum. Heitinu þátttakandi í
tómstundastarfi var breytt í tómstundaiðkandi þar sem meirihluti
þátttakenda taldi það heiti meira notað í samfélaginu, auk þess að
vera þekkt innan tómstundafræðinnar. Heiti annarra hlutverka
hélst óbreytt.
Í umræðum um skilgreiningar á hlutverkum bar hæst orðalagið að
bera ábyrgð á og sinna. Flestir töldu orðasambandið að bera ábyrgð
á fela þetta hvort tveggja í sér og ná þar að auki yfir það að leiðbeina
öðrum við framkvæmd verka sem tilheyrðu hlutverkinu. Sá sem
ber ábyrgð þarf því ekki að framkvæma sjálfur allt sem fellur undir
hlutverkið og fólk getur líka deilt ábyrgð. Niðurstaðan varð því sú
að orðasambandinu ber ábyrgð á og sinnir í hlutverkunum
umönnunaraðili og heimilishaldari var breytt í ber ábyrgð á. Lítils
háttar orðalagsbreytingar voru gerðar á skilgreiningunum á
hlutverki starfsmanns, sjálfboðaliða og þátttakanda í
félagasamtökum og skýringardæmum breytt í hlutverkunum sjálf-
Mynd 1 Rannsóknarferlið: Þýðing og mat á réttmæti og notagildi.
Tafla 1
Breytingar sem heiti hlutverka og skilgreiningar tóku í þýðingarferlinu
Fyrstu Drög
Eining í kjölfar frumþýðingar
Önnur drög
Eining í kjölfar bakþýðingar
Þriðju drög – rannsóknarútgáfa
Eining í kjölfar rýnihóps
NEMANDI
Stundar nám, fullt nám eða hlutanám.
Óbreytt Óbreytt
STARFSMAÐUR
Er í launaðri vinnu, fullu starfi eða
hlutastarfi.
Óbreytt
STARFSMAÐUR
Stundar launaða vinnu, fullt starf eða
hlutastarf.
SJÁLFBOÐALIÐI
Sinnir reglulega ólaunuðu starfi í þágu
líknarfélaga, góðgerðarsamtaka, skóla,
samfélagsins o.fl.
SJÁLFBOÐALIÐI
Sinnir reglulega ólaunuðu starfi í þágu
samfélagsins, t.d. líknarfélaga,
góðgerðarsamtaka og skóla.
SJÁLFBOÐALIÐI
Sinnir reglulega ólaunuðu starfi fyrir
t.d. góðgerðarsamtök, skóla, íþróttafélag
og hjálparsveit.
UMÖNNUNARAÐILI
Annast aðra s.s. barn, maka, aðra
ættingja eða vin, a.m.k. einu sinni í
viku.
UMÖNNUNARAÐILI
Ber ábyrgð á og sinnir umönnun annarra
s.s. barns, maka, ættingja eða vinar,
a.m.k. einu sinni í viku.
UMÖNNUNARAÐILI
Ber ábyrgð á umönnun annarra t.d.
barns, maka, ættingja eða vinar, a.m.k.
einu sinni í viku.
HEIMILISHALDARI
Sinnir heimilishaldi s.s. þrifum,
eldamennsku eða garðvinnu, a.m.k.
einu sinni í viku.
HEIMILISHALDARI
Ber ábyrgð á og sinnir heimilishaldi s.s.
þrifum, eldamennsku eða garðvinnu,
a.m.k. einu sinni í viku.
HEIMILISHALDARI
Ber ábyrgð á heimilishaldi t.d. þrifum,
eldamennsku, innkaupum, viðhaldi eða
garðvinnu, a.m.k. einu sinni í viku.
VINUR
Ver tíma eða gerir eitthvað reglulega
með vini.
Óbreytt Óbreytt
FJÖLSKYLDUMEÐLIMUR
Ver tíma eða gerir eitthvað reglulega
með fjölskyldumeðlimi s.s. barni, maka
eða öðru skyldmenni.
Óbreytt
FJÖLSKYLDUMEÐLIMUR
Ver tíma eða gerir eitthvað reglulega
með t.d. barni, maka eða öðrum úr
fjölskyldunni.
ÞÁTTTAKANDI Í TRÚARSTARFI
Tekur þátt í starfi eða athöfnum á
vegum trúfélags.
Óbreytt Óbreytt
ÞÁTTTAKANDI Í
TÓMSTUNDASTARFI
Sinnir áhugamáli reglulega s.s.
saumaskap, hljóðfæraleik, smíðum,
íþróttum, útivist, leiklistar- eða
klúbbastarfi..
Óbreytt
TÓMSTUNDAIÐKANDI
Sinnir áhugamáli reglulega t.d.
saumaskap, smíðum, íþróttum, útivist,
hljóðfæraleik, kórsöng eða leiklist.
ÞÁTTTAKANDI Í
FÉLAGASAMTÖKUM
Á aðild að og starfar reglulega með
formlegu félagi s.s. kvenfélagi,
fagfélagi, stjórnmálasamtökum eða
ýmsum hreyfingum.
Óbreytt
ÞÁTTTAKANDI Í
FÉLAGASAMTÖKUM
Starfar reglulega með formlegu félagi
t.d. fagfélagi, kvenfélagi,
stjórnmálaflokki eða hreyfingum.
Tafla 1. Breytingar sem heiti hlutverka og skilgreiningar tóku í þýðingarferlinu.