Iðjuþjálfinn - 2020, Side 25
Iðjuþjálfinn 1/202025
innsýn sé bæði dýrmæt og þörf í þá umræðu til að auka skilning á af
hverju fólk sér stundum engan annan kost en að taka eigið líf og
aðdragandann fram að þessari alvarlegu tilfinningalegu krísu.
Bókin er ætluð þeim sem vinna í þessum málaflokki eða stefna á að
vinna við hann þar sem við teljum þörf á auknum skilningi og
breyttum áherslum á þessu sviði. Einnig teljum við bókina eiga
erindi til aðstandenda og líklegt er að fólk með persónulega reynslu
af málefninu finni samsvörun við eigin reynslu og þar af leiðandi að
það sé ekki eitt með þessa krefjandi upplifun. Tilgangur bókarinnar
er að breyta áherslum geðheilbrigðisþjónustu sem og íslensks
samfélags í garð þeirra sem takast á við sjálfsskaða,
sjálfsvígshugsanir eða reyna að taka eigið líf. Við viljum opna
umræðu um raunverulega rót vandans, veita mótvægi við ráðandi
stefnu um sjúkdómsvæðingu tilfinninga og miðla öðrum
sjónarhornum sem byggð eru á eigin persónulegri reynslu og stuðla
að von. Bókarskrifin eru nú í fullum gangi og stefnt er að útgáfu í
mars eða apríl 2021.
Aktívismi sem heilun
Allt ofangreint ferli hefur einkennst af aktívisma. Hér er um að ræða
grasrótarhóp ungs fólks með persónulega reynslu af andlegum
áskorunum sem vill nýta erfiðar upplifanir öðrum til góðs. Við
höfum skapað tækifæri til úrvinnslu og endurskilgreiningar eigin
sögu auk þess sem hver og einn þátttakandi finnur sterkt að við
erum ekki ein um þennan sársauka. Við erum að opna umræðu um
málaflokkinn sem losar um skömmina og sendir skýr skilaboð til
okkar sem og annarra að þetta sé ekkert sem þurfi að fela. Eitt það
magnaðasta við verkefnið er að okkur gefst færi á að taka eitt það
erfiðasta úr lífsreynslu okkar, öll særindin og sársaukann, og snúa
því yfir í baráttutól sem getur knúið fram bættari heim. Aktívisminn
reynist heilandi.
Hlutverk iðjuþjálfa í aktívisma
Ég vinn sem iðjuþjálfi í geðheilbrigðismálum. Geðheilbrigðiskerfinu
er of tamt að vinna aðallega að einstaklingsþáttum líkt og andlegar
áskoranir séu einungis vandi sem einskorðist við manneskjuna
sjálfa. Það er ekki rétt. Orsakir andlegra áskorana má meðal annars
rekja til áfallasögu, ofbeldis, vanrækslu, skorts á viðunandi
félagslegum tengslum og jaðarsetningu sem verður til þess að við
upplifum okkur hvorki örugg né við stjórnvölinn í eigin lífi.
Iðjuþjálfar sem starfsstétt eru vel staðsettir til að horfa heildrænt á
málin og sjá skýrt að vandinn einskorðast ekki við einstaklinginn og
færniþætti.
Við getum vissulega unnið náið með einstaklingnum og þeim
félagslegu tengslum, hlutverkum og virkni sem skipta viðkomandi
máli. Það nægir hins vegar ekki til ef stuðningsnetið, þjónustu-
umhverfið, samfélagsgerðin eða stjórnsýslan er hluti af vandanum.
Við höfum dýrmætt hlutverk sem málsvarar þess fólks sem við
vinnum náið með, og okkur ber að stuðla að því að rödd þeirra
heyrist hátt og skýrt. Við getum komið raunverulegum breytingum
til leiðar.
Frá fundi með forseta Íslands til að ræða stefnumótandi tillögur hópsins. Ungt fólk var í sviðsljósinu í pallborðsumræðunum og svaraði spurningum ráðafólks í málaflokknum.
Hópurinn að loknu útgáfuhófi stefnumótandi tillagna sinna þar sem voru skapandi umræðustöðvar.