Iðjuþjálfinn - 2020, Page 28

Iðjuþjálfinn - 2020, Page 28
28Iðjuþjálfinn 1/2020 mikinn mun á fjölda nemenda og háskólaumhverfinu. Í Ástralíu voru 140 manna nemendahópar í fyrirlestrasal á hverjum tíma þannig að tengslin við þá nemendur urðu mjög ólík þeim tengslum sem mynduðust við nemendurna á Akureyri. Fjarlægðin var lýjandi, alltaf flogið á milli Reykjavíkur og Akureyrar þannig að þegar Valerie eignaðist dóttur sína gerðist hún stundakennari. Henni finnst enn gott að geta haldið tengslunum við iðjuþjálfunarfræðideildina í Háskólanum á Akureyri. Einnig hafði Guðrún Árnadóttir samband við Valerie um þetta leyti þar sem mikill áhugi var fyrir að A-ONE matstækið yrði kennt í Asíu og því þurfti að þjálfa iðjuþjálfa þar sem gætu haldið námskeið í A-ONE. Valerie sló til, fór í þjálfun til Guðrúnar og þær fóru saman til Asíu, um 7–8 ár í röð. Nú er þjálfun að verða lokið í Japan og Kóreu og nú er Guðrún að þjálfa iðjuþjálfa á Ítalíu. Samhliða þessu hafa þær líka verið með námskeið í Texas og svo hérlendis. Valerie segir það hafa verið mikinn heiður að Guðrún hafi beðið hana að koma með sér í kennslu á A-ONE. Hún segist hafa öðlast dýrmæta reynslu í þessu verkefni og lært margt. Hún segir Guðrúnu Árnadóttur vera þann iðjuþjálfa sem hafi haft mest áhrif á starf hennar sem iðjuþjálfa. Nú hefur Valerie dregið úr þátttöku sinni í kringum A-ONE námskeiðin þar sem vinnan í Sjálfsbjörg hefur aukist mikið. Hún segir það vera dýrmæta reynslu að fá að þjálfa aðra iðjuþjálfa og kenna þeim. Þó þetta sé erfitt þá hefur þetta verið mjög skemmtilegt að hennar sögn. Það sama segir hún um starfið hjá Sjálfsbjörg, gott að hafa tengslin við Háskólann á Akureyri. Þó það séu ákveðin kynslóðaskipti hjá kennurunum við Háskólann á Akureyri þá er Valerie bjartsýn á að starf skólans muni eflast frekar í framtíðinni því metnaðurinn er mikill. Stærstan hluta starfsferilsins hefur Valerie starfað á Íslandi og telur sig hafa verið mjög lánsama og starfað með mörgu góðu fólki. BREYTINGAR Í IÐJUÞJÁLFUN Valerie er spurð um þær breytingar sem orðið hafa á iðjuþjálfuninni í gegnum árin. Hún segir að þegar hún hafi verið í námi hafi fyrsta MOHO-bókin komið út og hún hafi hugsað: „Ég ætla ekkert að kaupa þetta, einhver óþarfi.“ Eftir á áttaði hún sig. Valerie segir einnig að meira sé núna til af iðjuþjálfabókum og útgefnu efni en þegar hún útskrifaðist og trúir því að mikið af námsefninu sé aðgengilegra og notendavænna nú en margt að því heimatilbúna námsefni sem hún studdist við, t.d. leshefti frá kennurum og þess háttar. Nú er meira af kenningum og matstækjum í boði, hún telur núverandi nemendur fá sterkari upplifun og þekkingu úr iðjuþjálfafaginu og minna sé fengið að láni annars staðar frá. Hún segist enn muna eftir því þegar hún kom til Íslands og las bókina Brain and behaviour eftir Guðrúnu Árnadóttur í fyrsta skipti. Hún fékk hugljómun, að geta metið vandann út frá framkvæmdinni og hvað hefði áhrif á getu einstaklingsins. „Þetta er málið, þetta er iðjuþjálfun, skilurðu!“ lýsir hún og segist ekki vilja fara til baka í þeim málum. Valerie segir líka samfélagið hafa breyst á iðjuþjálfatíð sinni og það hafi áhrif á hugsunarhátt iðjuþjálfa. Að sumu leyti hafi hún upplifað Ástralíu með meiri fjölbreytileika en Ísland þegar hún flutti hingað en Ísland hafi breyst. Vissulega séu komnir fleiri innflytjendur en enn mikilvægara sé að fjölbreytileiki samfélagsins er að aukast og fólk þorir að vera meira öðruvísi og fara sínar leiðir. Hún segir mikilvægt að vera vakandi og passa að setja ekki manns eigin gildi yfir á aðra. MUNUR MILLI LANDA Valerie segir að þegar hún flutti hingað fyrst hafi fólk nánast gert ráð fyrir að hún væri Ameríkani af Keflavíkurflugvelli og margt hafi breyst við að vera útlendingur á Íslandi síðan þá. Aðspurð um muninn milli Íslands og Ástralíu segir hún fólk tala meira saman í Ástralíu, spjalla meira við ókunnuga, sé meira í þessu óformlega spjalli um daginn og veginn: „Þetta er á tilboði núna, komdu endilega og kíktu á.“ Það séu öðruvísi samskiptareglur. Hún segist alltaf fara ‘heim’ til Ástralíu og líka ‘heim’ til Íslands. Mest finnur Valerie þó fyrir því að hafa ekki fjölskylduna sína hjá sér og það sé sérstaklega erfitt núna í COVID-19 faraldrinum að vita af öldruðum foreldrum sínum í útgöngubanni í Ástralíu. Valerie var spurð út í nám sitt og hvað hún sæi líkt og ólíkt með náminu þar og hér á Íslandi. Hún sagði hópana í Ástralíu hafa verið stærri, uppbygging námsins hafi verið meira í fyrirlestraformi og minna hægt að koma með spurningar nema í þar til gerðum spurningatímum. Hún lærði í skóla þar sem fleiri heilbrigðisfög voru kennd, hún fékk tengingu við læknadeild og fleiri heilbrigðisstéttir og hún fékk því meira námsefni á því sviði. Hvað námið á Íslandi varðar segir Valerie að henni finnist erfitt að tala í fjarfundarbúnað og geta ekki verið í sama herbergi og nemarnir og heldur jafnvel að þetta sé erfiðara þar sem hún kenni ekki á móðurmáli sínu. Fámennu hóparnir í náminu á Íslandi gera það hins vegar að verkum að nemendur fá meira úr náminu af því að það er meiri nálægð við kennara og þar með ná þeir dýpri umræðum og útskýringum, sérstaklega ef einhver lendir í vandræðum með eitthvað efni. Hún segir vera mun á nemendahópunum í Ástralíu og hér, í Ástralíu fara flestir 18 ára í háskólanám og ljúka 21 árs. Flestir búa í foreldrahúsum, þurfa að spá í fátt annað en námið og náms- umhverfið er betra. Hér á Íslandi eru hins vegar fleiri nemendur komnir með fjölskyldu. Þar eru kostir og gallar, 21 árs ertu kannski svolítið ungur og óreyndur en getur einbeitt þér meira að náminu. Íslensku nemarnir hafa oft í meiru að snúast meðfram náminu, eru komnir með fjölskyldu, þurfa að hlaupa út í búð og kaupa í matinn eða eru jafnvel með langveik börn. Þeir hafa ekki frið og ró til að njóta námsins en á móti kemur þessi lífsreynsla sem er svo mikilvæg og nemendurnir öðlast meiri skilning á hvað fólk er að vinna með. Valerie var líka spurð í muninn milli landa í atvinnulífinu. Hún sagði að í Japan og Kóreu væri mikill agi. Fólk mætti fyrr bæði til vinnu og á A-ONE námskeiðið og missti ekki mínútu úr. Hins vegar höfðu iðjuþjálfar þar minna um það að segja hvernig þjálfun þeir voru að veita. Hún telur iðjuþjálfa á Íslandi hafa mikið frelsi til þess að nota rökhugsun og þekkingu sína sem fagaðila, við að ákveða hvað er rétt fyrir sinn skjólstæðing. Það þarf ekki að hugsa um hvort tryggingafélagið muni borga. Víða um heim þarf að hafa áhyggjur af tryggingamálum, t.d. er verið að reyna að fá A-ONE matstækið inn á endurgreiðslulista tryggingafélaga. Ástralía er kannski nær Íslandi hvað þetta varðar, það fer eftir því hvar fólk vinnur, hjá ríki eða í einkageiranum. Miðað við þá iðjuþjálfa sem hún sagðist hafa talað við í Ameríku virðist ramminn vera frekar stífur, hvað skjólstæðingur fær mörg skipti í þjálfun og hvað er hægt að fá endurgreitt fyrir. „Það getur verið mjög erfitt fyrir þjálfara og komið í veg fyrir að þjálfari hafi möguleika á að velja þá leið sem hann telji besta,“ segir hún. Valerie minnir á mikilvægi þess að berjast fyrir að halda í þessi kerfi sem við höfum hér og styrkja þau frekar. Einnig að styrkja iðjuþjálfa með þessum frábæru námsstyrkjum, nota þá og fá flott námskeið eins og er búið að vera núna. Hvetja fólk áfram að efla sig og styrkja.

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.