Iðjuþjálfinn - 2020, Síða 47
Iðjuþjálfinn 1/202047
KYNNING
Í júní 2020 útskrifuðust fyrstu nemendurnir með BS-gráðu í iðju-
þjálfunarfræði eftir þriggja ára nám samkvæmt nýrri námskrá í
Iðjuþjálfunarfræðideild Háskólans á Akureyri. Í stað hefðbundinna
BS-verkefna eins og tíðkast hefur, vinna nemendur á lokamisseri
námsins nú að viðamiklum verkefnum í námskeiðunum Fræðileg
skrif og gagnreynt starf og Nýsköpun. Verkefnin tengjast þannig að
nemendur gera heimildasamantekt sem þeir síðan nota til að
byggja undir nýsköpunarhugmyndir sínar og lausnir. Eftirfarandi
eru upplýsingar um verkefni nemenda.
A-VÁ: AFLEIÐINGAR VEGNA ÁFALLA
Höfundar: Eva Björk Birgisdóttir, Sigríður Arna Lund
og Sunna Hlynsdóttir
Markmið samantektarinnar var að afla upplýsinga um áhrif áfalla í
barnæsku. Horft var til skólaþátttöku barna og hvernig skólar geta
veitt viðeigandi stuðning svo draga megi sem mest úr afleiðingum
áfalla, þá sérstaklega með störfum iðjuþjálfa og snemmtækri
íhlutun. Nýsköpunarlausn þeirra var námskeið fyrir starfsfólk
grunnskóla. Námskeiðinu er annars vegar ætlað að auka þekkingu
á áhrifum áfalla á skólaþátttöku og heilsufar barna og hins vegar að
veita upplýsingar um ýmis úrræði sem hafa gagnast vel, meðal
annars til að efla tilfinningatjáningu, seiglu og stuðla að öruggu
skólaumhverfi.
DCD VITUNDARVAKNING.
Höfundar: Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Helga Dröfn Jónsdóttir
og Hólmfríður Einarsdóttir
Tilgangur heimildasamantektarinnar var að afla upplýsinga um
þátttöku barna með DCD (e. developmental coordination disorder)
í daglegu lífi, íhlutun eða þjónustu fyrir þau og fræðslu til foreldra
þeirra. Til að koma til móts við litla þekkingu almennings og fagfólks
á einkennum, afleiðingum og úrræðum til að efla þátttöku barna
með DCD, beindist nýsköpunin að fræðslu og upplýsingagjöf sem
er fyrirhugað að miðla í gegnum vefsíðu og með stuttum
fyrirlestrum.
HUGARSTOFA
Höfundar: Guðrún Agla Gunnarsdóttir, Guðrún Lilja Jóhannsdóttir
og Steinunn Þorsteinsdóttir
Tilgangur samantektarinnar var að varpa ljósi á áhrif efnislegs og
félagslegs umhverfis á þátttöku fólks með ákominn heilaskaða og
hvaða íhlutunarleiðir hafa borið árangur við að auka þátttöku
þeirra í athöfnum daglegs lífs. Nýsköpunin var í formi aðgengilegrar
dagþjónustu fyrir fólk með ákominn heilaskaða sem hefur það að
markmiði að veita skjólstæðingsmiðaða færniþjálfun og skipulagt
félagsstarf.
GEÐVEIKT KYNLÍF
Höfundar: Andrea Björt Ólafsdóttir, Elísabet Ósk Jónsdóttir
og Herdís Júlía Júlíusdóttir
Heimildasamantektin dró saman fræðilega þekkingu á áhrifum
geðrænna áskorana á kynverund fólks. Skoðaðar voru sérstaklega
heimildir um (1) áhrif geðlyfjameðferða á kynlíf, (2) áhrif
kynverundar, nándar og parasambanda á meðferðarferli, og (3)
fræðslu um kynverund og kynferðislega nánd. Nýsköpunin var
vefsíðan www.gedogkyn.is sem er ætlað að opna á umræðu um
samspil kynheilbrigðis og geðheilsu með því að miðla fræðslu og
upplýsingum til almennings og fagfólks.
ORKUKISTAN
Höfundar: Guðbjörg Guðmundsdóttir, Heiðdís Rós Svavarsdóttir
og Inga Margrét Benediktsdóttir
Markmið heimildasamantektarinnar var að taka saman gögn um
fræðslu og fyrirbyggjandi aðferðir fyrir konur með vefjagigt og
reynslu þeirra af sjúkdómnum. Nýsköpunarhugmyndinni var ætlað
að koma til móts við skilningsleysi og skort á úrræðum fyrir fólk
með vefjagigt. Hún beindist að því að veita aðgengilega fræðslu til
fólks með vefjagigt og hjálpa því að nýta einföld úrræði til að efla
þátttöku í iðju og auka lífsgæði. Lausnin fólst í að opna vefsíðu þar
sem hægt væri að finna fræðsluefni og hafa aðgang að fjarþjónustu
iðjuþjálfa.
Bergljót Borg,
MSc, aðjúnkt í iðjuþjálfunarfræði
við Háskólann á Akureyri
Sigrún Kristín Jónasdóttir,
PhD, lektor í iðjuþjálfunarfræði
við Háskólann á Akureyri
NÝSKÖPUNARVERKEFNI
ÚTSKRIFTARNEMA Í BS-NÁMI
Í IÐJUÞJÁLFUNARFRÆÐI 2020