Skólavarðan - 2017, Qupperneq 23
SORPA býður fræðslu- og vettvangsferðir fyrir nem endur
á öllum aldri. Fræðslan tekur mið af þörfum hópsins og
er boðið upp á mismunandi leiðir.
• Fyrirlestur og vettvangsferðir nemenda í
móttökustöð SORPU í Gufunesi.
• Vettvangsferðir nemenda á endurvinnslustöð.
• Ráðgjöf og fræðsla í skólann fyrir nemendur og
starfsfólk.
Í fræðslunni er lögð áhersla á um hverfis ávinninginn
sem felst í því að draga úr úrgangi og flokka og skila til
endurnýtingar. Hinir ýmsu hlutir geta öðlast framhaldslíf,
í höndum nýrra eigenda eða sem nýjar vörur, ef við
flokkum rétt.
Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is
Nánari upplýsingar um fræðsluna og pantanir, er að finna á sorpa.is
NOTAÐ FÆR NÝTT HLUTVERK
FRÆÐSLA HJÁ SORPU
Vefur Skólavörðunnar hefur vaxið og dafnað
frá því hann var settur í loftið snemma árs
2016.
Markmiðið er að Skólavarðan á vefnum
verði lifandi og fróðlegt veftímarit um skóla-
og menntamál – til hliðar við prentúgáfu
Skólavörðunnar sem kemur út tvisvar á
ári. Nú er hægt að lesa hátt í tvö hundruð
greinar á Skólavörðuvefnum eftir rúmlega
60 höfunda. Efnið á vefnum kemur úr
öllum áttum; fjallað er um öll skólastigin frá
margvíslegum sjónarhornum.
Meðal nýlegra aðsendra greina má
nefna grein Fjólu Þorvaldsdóttur, varafor-
manns FL, um stöðu leikskólans; Jónína
Hauksdóttir skólastjóri segir frá áhuga-
verðum fundi Delta Kappa Gamma þar sem
fjallað var um starfsánægju og hvernig hún
hefur áhrif á líðan og heilsufar, og Hrafnkell
Tumi Kolbeinsson framhaldsskólakennari
veltir fyrir sér galdrinum sem er fólginn í
góðri kennslustund.
Þá hefur hinu rótgróna tímariti
Málfríði, sem gefið er út af Samtökum
tungumálakennara, verið komið fyrir á
vef Skólavörðunnar. Greinar úr síðustu
tölublöðum hafa verið settar á vefinn og
von er á fleirum. Málfríður kemur ekki
lengur út á pappír og er samvinna þess og
Skólavörðunnar tilraunaverkefni.
Kennurum, skólastjórnendum,
náms ráðgjöfum og áhugafólki almennt um
skólamál er frjálst að senda inn greinar til
birtingar á vef Skólavörðunnar og einnig er
vel þegið að fá hugmyndir að efni, viðtölum
eða úttektum sem útgáfusviðið getur skrifað
um. Skólavarðan er líka á Facebook og
Twitter og hægt að hafa samband í gegnum
þá miðla.
Netfang útgáfusviðs er utgafa@ki.is.
MARKMIÐIÐ AÐ VERA LIFANDI VETTVANGUR
UMRÆÐU UM SKÓLA- OG MENNTAMÁL