Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 6
Styrkur og útsjónarsemi
Vegna faraldursins höfum við upplifað tíma sem eiga engan sinn líka og þó farald-
urinn virðist nær afstaðinn, er alls ekki útséð með það. Við þurfum því öll að vera
áfram á varðbergi og fara eftir þeim reglum næstu mánuði og leiðbeiningum sem
settar eru hverju sinni til að koma í veg fyrir að faraldurinn blossi upp á ný. farald-
urinn hefur markað djúp spor í sögu Íslendinga og í raun óvíst hvort við eigum nokk-
urn tímann eftir að snúa alveg til fyrri lífshátta. Íslenska heilbrigðiskerfið stóðst álagið
þegar faraldurinn var sem mestur og áttu hjúkrunarfræðingar hvað stærstan þátt í
því. Starfsumhverfi og vinnuskipulagi var gjörbylt og mikið af þeim daglegu hindr-
unum sem við þekkjum, bæði milli og innan stofnana, hurfu því lausnir var að finna.
Þar endurspeglaðist styrkur og útsjónarsemi stéttarinnar vel í öllu ferlinu og þjóðinni
varð ljósar en nokkru sinni fyrr að hjúkrunarfræðingar eru hryggjarstykkið í heil-
brigðiskerfinu.
Grunnlaunin þarf að hækka
Á sama tíma hefur kjarabaráttan við ríkið haldið áfram og er nú komin á annað ár
síðan kjarasamningar runnu út. hjúkrunarfræðingar felldu nýjan kjarasamning í
apríl síðastliðnum og voru skilaboð hjúkrunarfræðinga alveg skýr: hærri grunnlaun.
Þetta kom einnig berlega fram í könnuninni sem gerð var í maí, en þar var aflað frek-
ari upplýsinga um skoðun hjúkrunarfræðinga á kjarasamningnum. Þegar þessi pistill
er ritaður sést ekki til lands í samningaviðræðunum og óvíst hvert stefnir. Ég vil enn
þá trúa því að stjórnvöld beri gæfu til að viðurkenna mikilvægi stéttarinnar í heil-
brigðiskerfinu og endurspegli það í launakjörum. Það er ekki sjálfgefið að hjúkr-
unarfræðingar vinni innan íslenska heilbrigðiskerfisins og störf þeirra þarf að meta
að verðleikum.
En það styttir upp um síðir. Sú stund rennur upp að samningsgerð ljúki og þá
einnig við aðra viðsemjendur, eins og reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög. Von-
andi lætur kórónu-faraldurinn undan og lífið kemst í eðlilegt horf sem þó verður
ekki eins og áður því þessir erfiðu tímar kenndu okkur ýmislegt gagnlegt sem ekki
má gleymast.
6 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Formannspistill
Takk, hjúkrunarfræðingar
Rannsóknartækifærin eru mörg fyrir hjúkrunarfræðinga og er ég
sannfærð um að sá einstaki árangur sem íslenskra heilbrigðiskerfið
hefur náð í baráttunni við faraldurinn verður vel kynntur af hjúkr-
unarfræðingum, jafnt innan lands sem utan.
Þegar ég horfi um öxl yfir þann tíma sem liðinn er af árinu finnst mér eins og heilt ár hafi þotið
hjá, svo margt hefur gerst. Eins og fram hefur komið tileinkaði Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin árið 2020 hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum og stóð til að fagna því á ýmsa vegu,
m.a. í samvinnu við Ljósmæðrafélag Íslands. Við náðum að halda einn viðburð í Hallgrímskirkju
í upphafi árs en öllum öðrum þurfti að fresta vegna kórónu-heimsfaraldursins.