Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 58
Hjúkrunarfræðideildin vel undirbúin
fyrir fjarvinnu
Faraldurinn hefur haft mikil áhrif á starfsemi Hjúkrunar -
fræðideildar líkt og annarra vinnustaða. Fyrirlestrahald, um -
ræðufundir og fundir starfsmanna voru færðir í fjarfundaform
sem reyndist lítið mál enda kennsluhættir deildarinnar fjöl-
breyttir og var hjúkrunarfræðideild, af deildum háskólans,
einna best undir fjarvinnu búin. Klíníska námið í grunnnám-
inu var hins vegar þyngri þraut, sérstaklega klíníska námið á
þriðja ári en þá eru nemendur einvörðungu í klíník.
Erfiðleikarnir fólust í auknu álagi á hjúkrunarfræðinga sem
störfuðu á deildum, meiri vinnu nemenda og ótta við að nem-
endur sýktu sjúklinga og sína nánustu. Flestallir nemendur
starfa með námi og fara á milli stofnana og húsa einstakra
stofnana, svo sem Landspítala. Þar var áhersla lögð á að lítið
eða ekki væri farið á milli. Jafnframt var ekki gott að fara á
milli hjúkrunarheimila, heilsugæslu og Landspítala. Augljósir
valkostir voru að segja nemendum að þeir yrðu að velja vinnu
eða nám, og ef vinna væri valin þá seinkaði náminu. Stofnanir
gátu hins vegar illa án starfskrafta nemenda verið. Þá stóðum
við frammi fyrir því að seinka klínísku námi nemenda. Það
var slæmur kostur sem hefði í för með sér að sumarvinna nem-
enda yrði með öðru sniði, þeir fengju ekki störf sem nemendur
að loknu þriðja námsári og verkefni þeirra yrðu því önnur í
sumarstarfinu. Okkur hugnaðist þetta ekki og því varð að hugsa
í lausnum og finna nýjar leiðir við breyttar aðstæður. Markmið
okkar voru strax þessi:
• Öllum nemendum verður gert kleift að ljúka námi á
misserinu
• Gæði klíníska námsins haldast eins og kostur er
• Nemendur geta stundað vinnu með námi.
Námstækifæri víða að finna
Til að ná þessum markmiðjum var ákeðið að nemendur ákveð -
inna námskeiða tækju klíníska námið á sínum vinnustað. Þetta
krafðist nýrrar skipulagningar og sköpunargáfu en opn aði
jafnframt augu allra fyrir því að námstækifæri er að finna víða.
Þökkum við öllum forsvarsmönnum sjúkrastofnana fyrir að
samþykkja að nemendur tækju klíníska námið á vinnu staðn -
um. Þetta þýddi að sumir nemendur tóku klíníska námið í
geðhjúkrun á gjörgæsludeild, aðrir á hjúkrunarheimili og þar
fram eftir götunum.
Kennarar aðlöguðu klínísk verkefni þannig að nemendur
gátu tekið þau á sínum vinnustað með áherslu á það nám sem
þeir voru í. Auk þess voru útbúin klínísk tilfelli um sjúklinga
sem nemendur spreyttu sig á. Segja má að við þessar aðstæður
og þær lausnir sem fundnar voru hafi sjóndeildarhringur allra
hlutaðeigandi víkkað. Til dæmis getur löng dvöl á gjörgæslu
haft áhrif á andlegt ástand sjúklinga. Það tókst þó ekki að nýta
þessi úrræði í öllum námskeiðum og má nefna heilsugæslu og
hjúkrun aðgerðasjúklinga. Úrræði fundust þó sem fólu í sér að
ofangreindum markmiðum var náð.
Náið samstarf við menntadeild
Landspítala
Í þessu ferli vorum við í nánu samstarfi við menntadeild Land-
spítala. Jafnframt var brýnt fyrir nemendum að ef óvissa væri
skyldi fara varfærustu leið og fylgja smitleiðbeiningum stofn-
unar eða deildar þar sem klíníska námið eða vinnan fór fram.
Brýnt var fyrir nemendum að ef þeir færu að starfa á deild þar
sem þá vantaði upp á klíníska þjálfun (t.d. við geðhjúkrun á
gjörgæslu) létu þeir viðkomandi hjúkrunardeildarstjóra vita af
því þannig að deildarstjórinn vissi að viðkomandi þyrfti ef til
vill aðeins lengri aðlögunartíma.
Á fyrsta námsári var þrekvirki unnið í að ljúka klínísku
námi í almennri hjúkrun. Á vormisseri annars námsárs var
ekkert klínískt nám vegna námsskrárbreytinga sem eru í
gangi. Á fjórða námsári voru áhrifin helst þau að lokaverk-
efniskynningum nemenda var sleppt. Lokaverkefnisdagur
B-nema hefur sannarlega verið nokkurs konar uppskeruhátíð
námsins og alltaf mjög ánægjulegur dagur og sakna hans allir
í ár. Að höfðu samráði við nemendur var ákveðið að hafa ekki
„fjar-lokaverkefnisdag“. Ekki er enn útséð um fyrirkomulag
útskriftar en það er von okkar allra að af formlegri útskrift
verði.
Varðandi námsmat var það á öllum stigum náms rafrænt.
Ýmsar tilfæringar voru gerðar sem of langt mál er að fjalla um
núna en vonandi allt til góðs á endanum. Tvær doktorsvarnir
58 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
á tímum covid-19
Herdís Sveinsdóttir og Helga Bragadóttir
Mikið hefur mætt á heilbrigðiskerfinu og þar með hjúkrunarfræðingum í yfirstandandi covid-19-
heimsfaraldri. Í þessum stutta pistli ætlum við að deila með lesendum þeim óvæntu úrlausnar -
efnum sem við stjórnendur í hjúkrunarfræðideild höfum staðið frammi fyrir á vormisserinu
í sambandi við námið og hvernig við tókumst á við þau.