Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 12
hvernig átti að klæða sig úr var í fordyri ásamt ruslakörfu sem tók við óhreinum
hlífðarbúnaði.
Samskipti
Það var ótrúleg heppni að deidin átti tvo „baby monitora“ vegna þess að sjúklingur
hafði nýlega legið inni sem gat ekki notað hefðbundna bjöllu. Vegna þessa kom upp
sú hugmynd að nota tækið inni á einangrunarstofunum til þess að geta betur átt
samskipti við sjúklinga. Þá væri hægt að fá allar upplýsingar um hver þörfin væri
áður en starfsmaður klæddi sig upp og færi inn. Þetta reyndist gífurlega hjálplegt og
sjúklingar tóku vel í þetta fyrirkomulag. Deildin keypti því fleiri „baby monitora“ til
að hafa inni á öllum herbergjum. Þegar deildin þurfti að loka vegna fjölda legusjúk-
linga var sett upp fordyri framarlega á ganginum sem aðskildi alla deildina fyrir utan
þrjú herbergi. fyrir innan fordyrið var mengaða svæðið og alltaf starfsmenn þar fyrir
innan í fullum hlífðarbúnaði. Þegar þessi staða var komin upp varð starfsfólki ljóst
að þörf væri á að merkja sig með nafni því erfitt var að sjá hver var undir hverjum
búningi. Byrjað var á því að skrifa nafn starfsmanns á límmiða sem færi svo á slopp-
inn. fljótlega fór af stað umræða um þörf á myndum af starfsfólki fyrir sjúklingana
til að gera þetta meira persónulegt og þá tók ritarinn upp á að finna myndir af öllu
starfsfólki, prenta út í lit og plasta þannig að hver og einn var merktur með mynd og
nafni inni í einangrun. Mikil ánægja var meðal sjúklinga með þessa nýtilkomnu
breytingu.
hægt var að hafa opið inn á stofur og sjúklingar gátu komið fram og farið í göngu -
túr utan herbergis en innan lokuðu deildarinnar. Starfsfólk sá hvað sjúklingum leið
betur andlega að geta komist út af stofunum, hreyft sig og séð aðra sjúklinga. Þegar
þar var komið sögu þurfti ekki „baby monitora“ en fengn ar voru tetrastöðvar til að
starfsmenn gætu átti samskipti sín á milli. hvert teymi var með stöð á mengaða
svæðinu og á hreina svæðinu. Einu símarnir frammi voru ritarasími og vaktstjóra-
sími og augljóst var að auka þurfti möguleikann á samskiptum milli starfsmanna.
komið var upp lokaðri spjallrás fyrir starfsfólk deildarinnar í heilsugátt til að byrja
með. Síðar fengust gefnar spjaldtölvur og var ein höfð á hvorum hluta deildarinnar.
Þær voru notaðar til að eiga samskipti í gegnum facetime. Einnig nýttust þær sjúk-
lingum, sem höfðu ekki snjallsíma, til að eiga í samskiptum við ættingja vegna heim-
sóknarbanns. Þar komu þær að góðum notum.
Aðföng
allt skipulag breyttist með lokun deildarinnar. Öll aðstaða var á mengaða svæðinu,
býtibúr, lín, lyfjaherbergi og vakt, en hreinu herbergin fyrir framan fordyri voru
notuð sem vakt, kaffistofa og geymsla með hlífðarfatnaði þar sem fólk klæddi sig í
búnaðinn. allt auka lín, lyf og birgðir þurfti að flytja fram áður en deildin lokaði og
endaði með því að skálinn fyrir framan deildina var orðinn fullur af grindum með
dóti. Það nauðsynlegasta sem þurfti fyrir hjúkrun sjúklinga með önd unar færa -
sýkingar var haft á mengaða svæðinu. hugsa þurfti fyrir öllu. Lyf sjúklinga fóru inn
og voru ekki tekin út af deildinni. Skönnun á kanbanspjöldum fór fram á hjólaborði
inni í fordyri fyrst í stað þar sem næturvaktin raðaði öllum spjöldunum á hjólaborð
þannig að skönnunarfólkið þurfti ekkert að snerta. Síðar fengust skápar frammi í
skála til að geyma allar birgðir og slá fyrir kanbanspjöldin. Þá voru spjöld in sprittuð
og eitt sett af öllu sett fram þannig að hægt var að skanna fyrir framan deildina.
Starfsfólk þurfti að vera vakandi fyrir vöntun á mat og kalla fram til vaktstjóra það
sem vantaði þar. Línið sem hafði verið pantað af ritara á morgunvöktum var nú
pantað á næturvöktum inni á mengaða svæð inu og þörfin fyrir lín breyttist heil-
mikið. allt í einu þurfti að panta auka lín fyrir starfsfólk deildarinnar, boli, jakka og
handklæði, svo allir gætu, ef vildu, farið í sturtu í lok vaktar. Bæði apótekið og birgða -
stýringin jók þjónustu við deildina því erfitt var að vita hvað þurfti af innviðum því
um nýjan sjúkdóm var að ræða. Ákveð ið var að hafa tvo hjólastóla inni á mengaða
berglind guðrún chu
12 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020
Bráðabirgðafordyri.
Í fyrstu voru skilaboðin
um að nóg væri að vera
með skurðstofugrímu og
hanska. Síðar bættist við
margnota sloppur eða
svunta. Í raun voru allar
upplýsingar óljósar í
fyrstu því nýjar upplýs -
ingar um sjúkdóminn
bárust daglega.