Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 35
leiðingarnar yrðu verri. Það voru nokkrar sjúkra flugferðir
héðan dag eftir dag af mikið veikum íbúum og það ríkti gífur-
lega mikil hræðsla, auk þess sem veðrið var hræðilegt og þetta
leit alls ekki vel út. En á sama tíma fundum við sterkt fyrir
miklum hlýhug samfélagsins sem verður svo fallegt við svona
aðstæður, en Vestfirðingar eru þekktir fyrir falleg viðbrögð og
stuðning. Samfélagið varð þétt og samheldin heild sem sýndi
bæði skilning og stuðning. Það var talað fallega til okkar, okkur
voru sendar fallegar hugsanir og falleg skilaboð birtust á sam-
félagsmiðlum. allt þetta hjálpar. Það var líka haft samband við
okkur að fyrra bragði, við fengum gjafir, kökur, nammi og
páskaegg. Einnig voru stofnuninni lánuð hús og íbúðir fyrir
bakverði og starfsfólk, spjaldtölvur voru gefnar og búnaður
sem tengist þeim og við fengum líka nafnlausar gjafir.“
Þakklæti
Þegar ég spyr fjólu hvað standi upp úr þegar hún hugsar til
undangenginna vikna er hún fljót til svars: „Þakklæti. Ég er
þakklát fyrir hjúkrunarþekkinguna og framþróun í hjúkrun
sem grundvallaði árangurinn og gerði að verkum að ekki fór
ver því á tímabili leit þetta ekki vel út. Einnig er ég þakklát fyrir
samstöðuna, fyrir allt starfsfólkið á hVEST, bakverðina og
samfélagið hér. Ég er líka þakklát fyrir tæknina; við fengum til
dæmis okkar eigin sjónvarpsstöð sem aðeins við höfðum
aðgang að og gátum fyrir tilstuðlan hennar talað við covid-
sjúkling inni í herberginu sínu. Einnig fengum við spjaldtölvur
og heyrnartól sem fóru inn á herbergi skjólstæðinga og gerði
þeim kleift að eiga í samskiptum. Tæknin studdi líka viðhald
tengsla milli stjórnenda og starfsfólks og má jafnvel hugsa sér
að þetta hafi gengið eins vel og raun varð vegna þess að við
höfðum tæknina til að eiga í samskiptum. Það var ekkert ráp
á milli húsa, ekkert bankað upp á og spurt um líðan, en tæknin
sá til þess að fólk einangraðist minna. Það hjálpaði mér einnig
sem stjórnanda að geta fylgst með því þegar starfsfólkinu fór
að batna. hVEST notar mikið Workplace-forritið sem hefur
nýst vel í faraldrinum. Þetta er svo lítið samfélag hérna og það
var starfsfólkinu erfitt að vera fast heima í sóttkví, frískt en
mega ekki vinna þó að allt sé á hvolfi á vinnustaðnum. Þá réð
seiglan, fagmennskan og samstaðn kom okkur í gegnum þetta
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020 35
INNILEGAR ÞAKKIR TIL
HJÚKRUNARFRÆÐINGA
FYRIR ÓMETANLEGT STARF
isam.is
„Þetta leit ekki vel út hér og á tímabili óttuð -
umst við að afleiðingarnar yrðu verri. Það voru
nokkrar sjúkraflugferðir héðan dag eftir dag af
mikið veikum íbúum og það ríkti gífurlega
mikil hræðsla, auk þess sem veðrið var hræði -
legt og þetta leit alls ekki vel út.“