Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 21
fræðingar eru í skipulagningu og undirbúningi viðbragða heilbrigðisstofnana,“ segir
hún.
frá því að fyrsta covid-tilfellið greindist hefur fjarheilbrigðis þjónusta aukist verulega.
Erla telur að hjúkrunarfræðingar muni taka meiri þátt í fjarheilbrigðisþjónustu og að
þar muni reynsla og þekking hjúkrunarfræðinga nýtast vel. að mati Áslaugar Sölku er
teymisvinna lykilorð í þessum samhengi. allar heilbrigðisstéttir sinni fjarheilbrigðis -
þjónustu en hjúkrunarfræðingar ættu að vera í lykilhlutverki í skipulagningu og utan-
umhaldi á henni. „hjúkrunarfræðingar eru lykillinn að fjarheilbrigðis þjónustu.“
„Við lifum svo sannarlega sögulega tíma og ég hef aldrei verið jafn stolt og hreykin
af því að vera hjúkrunarfræðingur eins og núna. Það hefur verið mögnuð reynsla að
fá að leggja sitt af mörkum í baráttunni við faraldurinn og finna að maður er að sinna
gífurlega mikilvægu og þörfu starfi á degi hverj um,“ segir Ólöf. „hjúkrunarfræðingar
eru nefnilega alltaf til taks, burtséð frá því hvort heimsfaraldur er í gangi eða ekki.
fólk glímir jú við veikindi af ýmsum toga allt árið um kring, hvort sem það er á
sunnudegi, helgidögum eða á öllum öðrum dögum ársins. já, við erum nefnilega
það mögnuð og ómissandi starfsstétt!“ segir Ólöf.
„allir lögðu sig fram við að læra nýja dansinn“
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020 21
„Hjúkrunarfræðingar eru nefnilega alltaf til taks, burtséð frá því
hvort heimsfaraldur er í gangi eða ekki. Fólk glímir jú við veikindi
af ýmsum toga allt árið um kring, hvort sem það er á sunnudegi,
helgidögum eða á öllum öðrum dögum ársins. Já, við erum nefni-
lega það mögnuð og ómissandi starfsstétt!“
Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir, sérfræðingur í
bráðahjúkrun og kennslu og þjálfunarstjóri
deildar mennta og vísinda á Sjúkrahúsinu á
Akureyri.