Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 75
Verkir og hegðunarvandi
Einnig kom í ljós að því meiri verki sem sjúklingurinn hafði
því meiri var árársargirni (Spearmans-ró = 0,047; p = 0,017),
ósæmileg félagslega hegðun (Spearmans-ró = 0,073; p <
0,0001) og höfnun á umönnun (Spearmans-ró= 0,099; p <
0,0001) (sjá töflu 3).
Virkni
Um 70% (n = 1832) sjúklinga voru virkir þriðjung eða meira
af þeim tíma sem þeir höfðu til virkra athafna, um 25% (n =
644) voru virkir minna en þriðjung tímans en um 4% (n = 105)
voru ekki virkir. Einstaklingar sem ekki eru með heilabilun
eyða fleiri stundum að meðaltali í virkum athöfnum heldur en
bæði einstaklingar með alzheimers-sjúkdóm og einstaklingar
með önnur elliglöp (sjá töflu 2).
Virkni og hegðunarvandi
Þegar kannað var hvort fylgni væri á milli áætlaðs tíma í
virkum athöfnum og einkenna um hegðunarvanda kom í ljós
marktæk jákvæð fylgni milli ráfs, árásargirni í orði, árásargirni
í verki, ósæmilegrar hegðunar og þess að hafna umönnun og
virkni í daglegum athöfnum. Því minni sem áætlaður tími var
í virkum athöfnum því meiri voru einkenni um hegðunar-
vanda en þetta var hins vegar veik fylgni (sjá töflu 3).
ritrýnd grein • scientific paper
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020 75
Tafla 2. Meðalstig á þunglyndiskvarða (0–14), verkjakvarða (0–3) og áætluðum tíma í virkum athöfnum eir sjúkdómsgreiningu
með dreifigreiningu (ANOVA)
Meðaltal Staðalfrávik Lágm. Hám. F p df
Þunglyndiskvarði 6,341 < 0,0001 3
Alzheimer 3,03 3,349 0 14
Önnur elliglöp en alzheimer 2,84 3,224 0 14
Blandað form heilabilunar 3,31 3,192 0 12
Ekki heilabilun 2,40 2,880 0 14
Heild 2,76 3,164
Verkjakvarði 7,487 < 0,0001 3
Alzheimer 0,97 0,915 0 3
Önnur elliglöp en alzheimer 1,04 0,897 0 3
Blandað form heilabilunar 1,30 0,932 0 3
Ekki heilabilun 1,17 0,975 0 3
Heild 1,07 0,933
Áætlaður tími í virkum athöfnum 17,629 < 0,0001 3
Alzheimer 1,06 0,873 0 3
Önnur elliglöp en alzheimer 1,13 0,830 0 3
Blandað form heilabilunar 1,11 0,894 0 3
Ekki heilabilun 0,85 0,822 0 3
Heild 1,02 0,850
0 stig = mikil virkni, 1 stig = þó nokkur virkni, 2 stig = lítil virkni, 3 stig = engin virkni
Tafla 3. Fylgni einkenna um hegðunarvanda við þunglyndiskvarða, verkjakvarða, áætlaðan tíma í virkum athöfnum og ötra -
notkun (n=2589)
Áætlaður tími í
Þunglyndiskvarði Verkjakvarði virkum athöfnum Fjötranotkun
Spear- P1 Spear- P1 Spear- P1 Spear- P1
mans-ró mans- ró mans- ró mans- ró
Árásargjarn í orði 0,290 < 0,0001 0,026 0,1921 0,086 < 0,0001 0,059 0,003
Árásargjarn í verki 0,223 < 0,0001 0,047 0,017 0,156 < 0,0001 0,115 < 0,0001
Ráfar um án sýnilegs tilgangs 0,299 < 0,0001 0,015 0,445 0,065 < 0,001 0,037 0,059
Ósæmileg félagsleg hegðun 0,374 < 0,0001 0,073 < 0,0001 0,134 < 0,0001 0,145 < 0,0001
Hafnar umönnun 0,399 < 0,0001 0,099 < 0,0001 0,224 < 0,0001 0,107 < 0,0001
1 Tvíhliða próf