Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 59
frestuðust þó á vormisseri en verða haldnar á fjarfundi í byrjun
júní.
Hjá nemendum í framhaldsnámi voru námsleyfi aftur-
kölluð og vaktaáætlanir breyttust með skömmum fyrirvara.
Geta nemenda til að stunda sitt nám skertist auk þess að ein-
beitingarskortur gerði vart við sig. Kennsla og verkefni voru
hratt og vel aðlöguð breyttum aðstæðum og var komið til móts
við nemendur eins og unnt var, skiladögum verkefna breytt og
lokum vormisseris breytt. Námsverkefni sem fólu í sér vett-
vangsheimsóknir eða gagnaöflun á klínískum vettvangi voru
endurskoðuð. Má segja að í öllu tilliti hafi kennarar og nem-
endur brugðist vel við og aðstæður verið nýttar til hins ýtrasta
við endurskoðun kennsluaðferða, verkefna og viðfangsefna til
að draga sem mestan lærdóm af þessari einstöku reynslu.
Helstu vandkvæði doktorsnema sneru að gagnasöfnun í
rannsóknum þeirra því þeir áttu erfitt með að nálgast þátttak-
endur á tímum samkomubannsins.
Varanleg áhrif á nýtingu tækni
og nýjunga í kennslu
Kennsla í ljósmóðurfræði byggist mikið á virkri þátttöku nem-
enda og reyndi því fjarkennsluformið mikið á. Það gekk þó vel,
en nemendur voru afar ánægðir þegar kennsla í kennslustofu
hófst aftur. Kennsluhættir sem reyndust vel verða þó teknir til
endurskoðunar. Í klínísku námi gátu nemendur að mestu
haldið áætlun en gera þurfti nokkrar breytingar, t.d. á fæðing-
ardeildum þar sem mikil nánd er milli nemenda og ljósmæðra
og rými á fæðingarstofum í sumum tilfellum takmarkað. Starf-
semi var breytt í mörgum tilvikum á klínískum stofnunum á
meðan ástandið var sem verst, eins og aðgengi verðandi feðra
að þjónustunni, og hafði það áhrif á námið.
Kennarar eru almennt sammála um að faraldurinn hafi haft
afgerandi og varanleg áhrif til góðs hvað nýtingu tækninnar
og nýjungar í kennslu varðar. Covid-19-faraldurinn hefur ekki
hjúkrunarfræðideild háskóla íslands á tímum covid-19
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020 59
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
CARESCAPE V100
LÍFSMARKASJÁ
Frá GE Healthcare
• BP/PULSE
• Masimo
• SpO2
• Fáanlegur á hjólastandi
• Val um EXERGEN hitamæli
Covid-19-faraldurinn hefur ekki eingöngu fært
okkur strembin úrlausnarefni í kennslunni
heldur hefur hann vakið mikla og jákvæða at-
hygli á mikilvægu hlutverki hjúkrunarfræðinga
í heilbrigðisþjónustunni og þar með samfélag-
inu almennt.