Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Qupperneq 45
alltof oft um flóttafólk sem þjáist af alvarlegum heilsubresti,
bæði á líkama og sál, og flóttafólk sem ekki hefur fengið þá
aðstoð sem það þarf nauðsynlega á að halda. — Í þessu sam-
bandi vil ég segja ykkur, í stuttu máli, hvernig þessum málum
er háttað hér í Noregi. Í Noregi fá allir þeir sem sækja um
alþjóðlega vernd tiltekin réttindi í heilbrigðiskerfinu — á sama
hátt og aðrir landsmenn — þótt erfitt geti reynst að komast á
skrá hjá heimilislækni. Læknavakt, bráða- og sér fræðiþjónusta
stendur þeim þó opin.
Við komuna til landsins gangast allir undir berklaskoðun og
geta þá samtímis fengið að tala við lækni eða hjúkrunarfræð-
ing eigi þeir við einhver aðkallandi vandamál að stríða. Innan
þriggja mánaða frá komu eru svo allir flóttamenn og þeir sem
hafa sótt um dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar
kallaðir inn til heilbrigðisskoðunar þeim að kostnaðarlausu.
Þessi heilbrigðisskoðun er eitt af mínum verkefnum í núver-
andi starfi. Þar er skrásett heilsufarssaga hvers og eins, veitt er
almenn skoðun og unnt er að fá tilvísun til sérfræðilækna ef
nauðsynlegt reynist. Blóðsýni eru tekin, sem geta afhjúpað
fleiri vandamál, og er niðurstöðum fylgt eftir af lækni. Þá er
gerð einföld skimun vegna hugsanlegra geðheilbrigðisvanda-
mála. Niðurstöður eru síðan sendar þeim heimilislækni, sem
einstaklingnum hefur verið úthlutað hafi hann hlotið vernd í
landinu.
Þá hefur heimilislæknirinn ákveðnar grunnupplýsingar um
heilsufarssögu og ástand sjúklingsins þegar hann leitar til
læknisins síðar. Í þessum skoðunum höfum við oftar en ekki
afhjúpað heilbrigðisvanda. Oft er um að ræða minniháttar
vandamál á borð við blóð- og bætiefnaskort, en einnig koma
fram merki um alvarleg geðvandamál, áfallasögu eða jafnvel
sögur um pyntingar í heimalandinu sem oft skilja eftir sig
lang varandi meinsemdir. Þá er að sjálfsögðu mjög mikilvægt
að bregðast skjótt við og vísa viðkomandi til viðeigandi sér -
fræðiþjónustu. — Við skoðun fá flóttamenn fræðslu um upp-
byggingu heilbrigðiskerfisins í Noregi og hvert unnt er að leita
hjálpar þegar eitthvað bjátar á.
Menningarhæfni í heilbrigðisþjónustu
Í starfi með flóttafólki eru skýr og góð samskipti mikilvæg. Þar
gildir miklu skilningur á töluðu máli og ekki síður þekking á
ólíkum menningarheimum og almenn virðing fyrir einstak-
lingunum. Eitt það veigamesta til að tryggja góð samskipti er
að nýta þjónustu þjálfaðra túlka í öllum samtölum er snerta
heilbrigðismál. Það er þekkt staðreynd að þótt sjúklingurinn
hafi getu til að tala önnur tungumál en sitt eigið, t.d. ensku,
vilja allir helst ræða um heilsu sína á eigin tungu. Við verðum
einnig að muna að ekki hafa allir lært að lesa og skrifa á sínu
móðurmáli og því hjálpar ekki alltaf að deila út bæklingum.
Ekki allir með aðgang að góðu
heilbrigðiskerfi
Það er mikilvægt að túlkur hafi hlotið þjálfun í starfi, sé bund -
inn þagnareiði á sama hátt og heilbrigðisstarfsfólk og að hann
hafi reynslu af að túlka við aðstæður sem svipar til heilbrigðis-
kerfis. Á sama hátt þurfum við heilbrigðisstarfsfólk að hafa
grundvallarskilning á því hvernig fólk með mismunandi
menningarbakgrunn lítur á heilsu og heilsueflingu (e. health
beliefs — heilsutrú). Mismunandi heilsutrú hefur mikil áhrif
á það hvort og hvenær við leitum okkur hjálpar og hvaða
kvilla við teljum að vestræn heilbrigðisþjónusta geti bætt. Það
hefur einnig áhrif á þær aðferðir sem heilbrigðisstarfsfólk ætti
að nota til að ná sem bestum árangri í samskiptum við sjúk-
linga og til að tryggja góða eftirfylgni. Ekki eru allir vanir
aðgengi að góðu heilbrigðiskerfi eða vita hvernig á að nýta sér
það.
Ég hvet því alla hjúkrunarfræðinga (og heilbrigðisstarfsfólk al-
mennt) að kynna sér fræðigreinina menningarhæfni (e. cult-
ural competency) og lesa sér til um menningarhæfni í heil -
brigðisþjónustu. Ég mæli með bókinni „Cultural awareness in
nursing and health care: an introductory text“ eftir Karen Hol-
land. Ég styðst sjálf við þessa bók þegar ég kenni hjúkrunar-
nemum hnattræna heilsu og menningarhæfni. Það er mikið
til af góðum bókum og fræðigreinum um efnið hafi maður
áhuga á að lesa meira. Við Háskóla Íslands hefur einnig verið
stofnað til framhaldsnáms í hnattrænni heilsu sem er góð
námsleið fyrir hvern þann sem hefur brennandi áhuga á mál-
efninu.
Síðan skora ég á Hildi Ey Sveinsdóttur, sem ég hefi starfað
með í alþjóðaverkefnum hjá Rauða krossinum, að skrifa næstu
þankastrik.
þankastrik
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020 45
Innan þriggja mánaða frá komu eru svo allir
flóttamenn og þeir sem hafa sótt um dvalarleyfi
á grundvelli fjölskyldusameiningar kallaðir inn
til heilbrigðisskoðunar þeim að kostnaðarlausu.
Þessi heilbrigðisskoðun er eitt af mínum verk-
efnum í núverandi starfi.
Ég hvet því alla hjúkrunarfræðinga og heil-
brigðisstarfsfólk almennt að kynna sér fræði -
greinina menningarhæfni og lesa sér til um
menningarhæfni í heilbrigðisþjónustu.