Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Side 50
Fordómar og hugtakaruglingur
einkennir umræðuna
Vandinn er sá að eins og títt er um ástand sem er óáþreifanlegt þá eru ekki til traustar
skilgreiningar á því. Fordómarnir eru miklir og hugtakaruglingur einkennir um -
ræðuna, skrifar hún. Það að langvarandi og neikvæð streita verði að kulnun er ekki
fullgild sjúkdómsgreining á Íslandi og þrátt fyrir að læknar og annað heilbrigðis-
starfsfólk bæði þekki og viðurkenni sjúkdómsástandið sem slíkt, segir Inga, „þá eru
notaðar aðrar greiningar, svo sem kvíða- eða streituröskun.“ Þá er farið að rugla
saman því að vera leiður á vinnunni sinni eða þreyttur á of mikilli vinnu og því að
verða veikur af kulnun — „slíkt gerist þegar umræðan um vandamálið eykst. Það að
vera leiður í vinnunni sinni, haldinn mikilli og langvarandi streitu, verða fyrir
miklum áföllum, hvílast ekki nægilega vel, allt eru þetta þættir sem geta leitt til sjúk-
dómsástandsins sem þekkt er sem kulnun.“
Það dylst engum mikilvægi þess að greina einkenni kulnunar snemma til að ná
skjótum bata sem og að koma í veg fyrir sjúklega streitu. Hún rifjar það upp að hafa
brugðið allverulega þegar hún las grein eftir Ólaf Þór Ævarsson geðlækni en hann
er einn þeirra sem hafa skrifað mikið um sjúklega streitu og vísar þá til þeirrar grein-
ingartækni sem notuð er í sænska heilbrigðiskerfinu. „Þarna voru einkennin mín
komin og ekki lengur bara þegar ég var óvenju þreytt,“ segir hún en hann lýsir ein-
kennum þannig: „Hamlandi ofurþreyta með minnkuðu frumkvæði, skorti á úthaldi
eða óeðlilega mikilli þörf fyrir hvíld. Vitrænar truflanir með minnistruflunum og
skertri einbeitingu eru mjög áberandi. Lækkað álagsþol. Tilfinningalegt ójafnvægi
eða pirringur. Svefntruflanir. Truflandi líkamleg einkenni eins og stoðkerfisverkir,
hjartsláttaróþægindi, meltingartruflanir, svimi og viðkvæmni fyrir hávaða og áreiti
(bls. 127).“
Aldrei aftur óþægilegir skór og ekki
drekka vont kaffi
Inga Dagný fer ekkert í grafgötur með hve mikið þetta ferli hefur tekið á hana. „Það
að missa starfsorkuna, svo ég tali nú ekki um þá félagslegu og fjárhagslegu stöðu sem
starfið gefur, er erfitt. Það að finnast maður ekki vera fullgildur þjóðfélagsþegn er
erfitt og að horfa á eftir reynslu sinni og hæfni er erfitt.“ Það er á ábyrgð samfélagsins,
skrifar hún, og þeirra sem fara með völd hverju sinni að skapa mannvænlegt sam-
félag. Það er samfélag þar sem vellíðan og hamingja þegnanna fær ekki minni sess
en peningar, samkeppni og hraði. Það er samfélag sem fræðir ungt fólk um andlega
og líkamlega velferð og styrkir mótstöðu þess gegn streitu og græðgi. Henni finnst
umhugsunarvert hve mikil áhersla er lögð á árangursmiðað samfélag og að lífsóska-
listinn sé jafn árangursmiðaður og flest annað sem við tökum okkur fyrir hendur og
snúist um mælanleg afrek af ýmsu tagi. Hún gerði sinn lífsóskalista um það sem hún
ætlar ekki að gera eða að minnsta kosti að gera heiðarlega tilraun til að draga
helga ólafs
50 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020
Það er á ábyrgð samfélagsins, skrifar hún, og þeirra sem fara með
völd hverju sinni að skapa mannvænlegt samfélag. Það er samfélag
þar sem vellíðan og hamingja þegnanna fær ekki minni sess en
peningar, samkeppni og hraði. Það er samfélag sem fræðir ungt
fólk um andlega og líkamlega velferð og styrkir mótstöðu þess gegn
streitu og græðgi.