Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 68
Kvíði er algengur hjá öldruðum en er oft vangreindur og því
ekki meðhöndlaður (Bandelow o.fl., 2017). Þeir sem eru með
kvíða eiga frekar á hættu að fá hjarta- og æðasjúkdóma en
ókvíðnir (Emdin o.fl., 2016). En hverjir eru það sem fá helst
kvíða og hvað er hægt að gera? Hverju þurfum við að vera vak-
andi fyrir?
Hverjir fá kvíða og hversu
algengur er hann?
Allir geta fengið kvíða en milli 3 og 14% aldraðra eru með
greinda kvíðaröskun (Kennedy-Malone o.fl., 2019). Þeim er
hættara við kvíða sem hafa lent í miklum áföllum í lífinu, þurft
að búa við fátæk, lent í ofbeldi og fundið fyrir mikilli streitu á
yngri árum. Nýleg áföll, missir og aðskilnaður eru allt áhættu -
þættir fyrir kvíða hjá öldruðum. Ýmsir sjúkdómar ýta einnig
undir kvíða, eins og geðsjúkdómar, þunglyndi, vitglöp, hjarta-
sjúkdómar og öndunarfærasjúkdómar. Konur eiga frekar á
hættu að fá kvíða (Andreescu og Varon, 2015). Rannsóknir
sýna að konur geta verið allt að tvisvar sinnum líklegri til að
fá kvíða en karlar (Catuzzy og Beck, 2014).
Til eru margar mismunandi gerðir kvíðaröskunar en algengast
er að aldraðir séu með almenna kvíðaröskun, einfalda fælni,
félagslegan kvíða og kvíða sem fylgir lyfjaáhrifum eða læknis -
fræðilegu ástandi. Á öldrunarheimilum áttar starfsfólk sig oft
ekki á einkennum kvíða. Það heldur að einkennin séu eðlileg
og að þau tengist öldrun, en á hjúkrunarheimilum er algengt
að fólk sé með ógreindan kvíða (Kennedy-Malone o.fl., 2019).
Hvers vegna fá aldraðir kvíða?
Það að eldast getur haft margt í för með sér, eins og að missa
heilsu, missa maka og nána vini og breytingar verða á heila.
Ýmsir nýir streituvaldar fara að hafa áhrif, sjálfstæði minnkar,
hræðsla við að detta og brotna og fjárhagsáhyggjur. Þetta getur
allt verið orsök fyrir kvíða hjá öldruðum. Margir aldraðir sem
fá kvíða hafa verið með kvíða frá yngri árum en hann versnar
svo þegar aldurinn færist yfir. Þó fá sumir aldraðir kvíða sem
hafa ekki fengið hann áður (Kennedy-Malone o.fl., 2019).
Hvernig greinum við kvíða?
Til að greina kvíða er mikilvægt að hlýða vandlega á sjúkra-
söguna. Spyrja þarf út í neyslu koffíns, áfengis og lyfja en óhóf-
leg neysla getur leitt til einkenna sem líkjast kvíða. Taka þarf
blóðprufur til að skoða t.d. skjaldkirtilsvirkni (Kennedy-
Malone o.fl., 2019). Ýmis einkenni þurfa að vera til staðar til
að greinast með kvíðaröskun, t.d. mikill kvíði, áhyggjur sem
erfitt er að stjórna og svo þurfa að vera a.m.k. þrjú önnur ein-
kenni til staðar. Þau einkenni geta verið erfiðleikar við að ein-
beita sér, pirringur, eirðarleysi, erfiðleikar með svefn, verða oft
og auðveldlega þreyttur og vöðvaspenna (Clifford o.fl., 2015).
Þegar einhver er með einkenni kvíða eða grunur leikur á kvíða
þarf að leggja fyrir hann áreiðanlegan greiningarkvarða til að
staðfesta kvíðann og hversu alvarlegur hann er. Til eru margir
kvarðar sem hægt er að nota en einn þeirra er Hospital Anxiety
and Depression Scale (HADS). Í HADS er spurningarlisti sem
er notaður til að skima eftir þunglyndi og kvíða. Þetta er listi
með 14 spurningum, 7 tengdum kvíða og 7 tengdum þung-
lyndi. Hver spurning gefur fjóra svarmöguleika og 0–3 stig.
Stigin eru svo tekin saman, þunglyndi sér og kvíði sér. Hægt
er að fá minnst 0 stig og mest 21 stig. Því fleiri stig því alvar-
legri kvíði eða þunglyndi. Þetta er einfaldur spurningarlisti
sem fljótlegt er að leggja fyrir (Breeman o.fl., 2015).
Einnig er til greiningarkvarði sem hentar vel fyrir aldraða
en það er Geriatric Anxiety Inventory (GAI). GAI var búinn
til sérstaklega fyrir aldraða. Hann er mjög einfaldur í notkun,
með stuttum og einföldum spurningum. Hann inniheldur 20
68 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020
Til eru margar mismunandi gerðir kvíðarösk-
unar en algengast er að aldraðir séu með al-
menna kvíðaröskun, einfalda fælni, félagslegan
kvíða og kvíða sem fylgir lyfjaáhrifum eða
læknisfræðilegu ástandi.
Kvíði hjá öldruðum: Greining og meðferð
Kristrún Anna Skarphéðinsdóttir
Kvíði lýsir sér þannig að fólk hefur miklar áhyggjur sem erfitt er að stjórna. Þessar áhyggjur
fara að hafa áhrif á daglegt líf fólksins. Líkamleg einkenni geta líka fylgt, eins og óþægindi
frá maga, hröð og grunn öndun og þyngsli eða verkur fyrir brjósti. Einkenni, eins og ógleði,
svefn truflanir, hægðatregða og áhyggjur af ýmsu, t.d. heilsu, eru algengari meðal aldraðra
(Kennedy-Malone o.fl., 2019).