Heimilispósturinn - 16.04.1951, Qupperneq 2
Margt er skrítiö í Harmomu.
Auga fyrir auga.
I borginni Springfield í Ohio sætti
vörubílstjóri ákæru fyrir að hafa ver-
ið ölvaður við akstur og ekið á fót-
gangandi mann. Hann var dæmdur
i 150 dala sekt og til þess ,,að sitja
jafnlengi í fangelsi og hinn verður
að vera í sjúkrahúsi".
*
Falsspádómur.
Kona ein í Fíladelfíu var sett í
varðhald fyrir að hafa tekið gjald
fyrir að spá fyrir fólki. Dómarinn
spurði um spásagnir hennar, og lög-
fræðingur hennar svaraði því til, að
þær væru víst ekki upp á marga
fiska, „annars væri hún ekki hér“.
Dómarinn lét konuna lausa.
*
Dangt yfir skammt.
Blaðið Journal í Atlanta í Georgíu
í Bandaríkjunum hóf nýlega bar-
áttu gegn fjárhættuspili i fylkinu,
og birti meðal annars skýrslu um
eigendur sjálfvirkra fjárhættuspils-
véla, en þær eru bannaðar þar í
fylki. Taldi blaðið ekki eftir sér að
rannsaka, hvaða menn í fylkinu
greiddu skatt af þesskonar vélum til
sambandsstjórnarinnar í Washing-
ton. Ofarlega á skránni var heldri
manna klúbbur einn i Atlanta; for-
maður hans: George C. Biggers. For-
maður útgáfustjórnar Atlanta Journ-
als: George C. Biggers.
#
Vö.vtur drengja og telpna.
Sveinbörn fæðast að jafnaði stærri
og þyngri en stúlkubörn. Þegar kom-
ið er yfir 5 ára aldur, og allt að 11
ára aldri, fará telpurnar að sækja á;
11 ára eru þær ekki nema um 1 cm.
lægri en drengir. En þá verður snögg
breyting á hlutfallinu. Frá 11 ára
til 15 ára aldurs fara stúlkurnar fram
úr drengjum, verða bæði hærri og
þyngri. Síðan sækja drengirnir aftur
á og taka forystuna. Stúlkur vaxa
venjulega ekki eftir 19 eða 20 ára
HEIMILISPÓSTURINN
2. hefti 1951
MARZ—APRlL
Lestrarefni karla:
Mynd á kápu: Egill Guttorms-
son stórkaupmaður.
Bls.
„Árið sem við kóngurinn
komum.“ Viðtal við Egil
Guttormsson stórkaupm. 1
Dómurinn mikli. Smásaga
eftir H. G. Wells .... 4
Reimleikar. Frásögn eftir
Frank Rasky .......... 9
Orlofsferð. Smásaga eftir
Henry Treece ........ 14
Á takmörkunum ......... 20
Dauðinn um borð. Smásaga 21
Lán. Eftir Barry Pain ... 28
Kvikmynda-opnan ....... 32
Ennfremur myndir af frægum
kvikmyndaleikurum, bridge-
þáttur, reikningsþraut, gátur,
vísur og skrýtlur.
a.ldur, en piltar hætta ekki með öllu
að stækka fyrr en þeir eru 23 ára.
*
Ofurást.
Frú Brainard í Los Angeles fékk
skilnað við mann sinn fyrir þá sök,
að þegar hann kom heim á kvöldin,
kyssti hann hundinn á undan konunní.
*
Bankainnstæða.
Jakob Dirkes í Great Falls í
Montana varð fyrir slysi og þurfti
að fá blóðgjöf án tafar. Hann var í
mjög sjaldgæfum blóðflokki, og það
kom í ljós, að i blóðbankanum var
ekki nokkur blóðdropi af þessum
flokki, nema það sem Dirkes hafði
géfið sjálfur fáum dögum áður.
HEIMILISPÓSTURINN — FRÓÐLEIKS- OG SKEMMTIRIT
Ritstjóri Pétur Sig.urðsson, magister, Aragötu 7. Afgreiðsla: Stein-
dórsprent h.'f., Tjarnargötu 4, Reykjavík, sími 1174. Pósthólf 365.
ÚTGEFANDI STEINDÓRSPRENT H.F.