Heimilispósturinn - 16.04.1951, Blaðsíða 19

Heimilispósturinn - 16.04.1951, Blaðsíða 19
að sleppa bollanum og styðja sig við eitthvað, og þá vildi svo illa til, að kerið varð fyrir hendinni. Stútur- inn brotnaði af.“ ' Elísa horfði ásökunaraugum á systur sína. „Brotnaði bollinn?" spurði hún. Systir hennar kinkaði kolli, og nú seytlaði tár niður kinnina. Elisa tók aftur til orða, ósveigj- anleg eins og guð: ,,Var það einn af sparibollunum hennar mömmu?" Agnes spratt snöggt upp frá borð- inu og flýði með ekka út í eldhús. Georg klakaði eins og hæna, sem veit ekki sitt rjúkandi ráð, og fór á eftir henni. Um kvöldið voru Georg og mág- kona hans úti í gróðurskálanum, en Agnes tók til kvöldmatinn. „Hvað er orðið af krysantemunum hennar mömmu?" spurði Elísa, þeg- ar Georg var búinn að sýna henni öll blómin og segja sögu þeirra. „Þær fóru í kuldakastinu í hitti- fyrra," svaraði hann. Elisa leit til hans. Augnaráðið var eins og sverðsoddur. „Fóru?" spurði hún. „Ætlarðu að segja mér, að þær hafi verið látnar drepast? Ætl- arðu að segja mér, að ekkert hafi verið um þær skeytt, líkt og var um Skjónu, kerið og tebollana?" Georg varð ofsareiður. Hann minntist þess, að hann var fyrrver- andi kornkaupmaður, dómari og hús- bóndi á heimili sínu. Hreimurinn í rödd hennar espaði hann, og hann svaraði henni fullum hálsi, en það hafði hann aldrei fyrr gert. „Það voru ekki mín orð," sagði hann. „Það, sem ég vildi sagt hafa, var þetta, að góðum Guði, sem þú þreytt- ist aldrei að vegsama fyrir eina tíð, þóknaðist að rétta út hönd sína og taka, eftir þvi sem árin liðu, Skjónu, stútinn og flesta sparibollana henn- ar móður þinnar. Alveg eins og Clark Gable og Jeanette MacDonald hann mun taka páfagaukinn þinn, sjalið þitt og þig sjálfa, ef hann vill svo vera láta!" En svo var eins og Georg yrði skelkaður við guðlast sitt; hann snerist á hæli og gekk út í garðinn. Gamla konan stóð sem steini lostin, horfði forviða á eftir honum og fór upp á loft til þess að taka saman hafurtask sitt. Kvöldverðurinn var eins og við jarðarför. Enginn mælti orð frá vör- um, en þegar Georg leit í ásökunar- augu konu sinnar, hefði hann viljað allt til vinna að geta sagt eitthvað. Hann hjálpaði til að bera af borð- inu, fór að því búnu inn í skrifstofu sina og hlustaði annars hugar á fréttirnar. Elísa settist aftur á harðasta stól- inn á heimilinu og bað um ættar- biblíuna. Systir hennar fékk henni bókina og fór út til þess að sækja sokka til viðgerðar. Þegar hún kom HEIMILISPÓSTURINN 17

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.