Heimilispósturinn - 16.04.1951, Blaðsíða 22

Heimilispósturinn - 16.04.1951, Blaðsíða 22
Á takmörkunum! Hann Jói litli minn, sonur okkar hjónanna, hann hefur kraftana, vöxt- inn, gáfurnar og glímutökin af mér, honum föður sínum, en hóstann og ropann og viðreksturinn og alla and- skotans óknyttina af henni móður sinni. * „Það veit ég, að guð getur grátið yfir því,“ sagði Fúsi á Framnesi, „hvað brennivínið er dýrt á Bakkan- um.“ „O, heldurðu það, heldurðu, að honum sé ekki alveg sama." „Svo mikið er víst, ekki hlær hann.“ * Þegar Sigurður Sigvaldason var í Ameríku, kom hann eitt sinn að fljóti, er hann þurfti að komast yfir. Hon- um var boðin ferja og ferjumaður, er róa skyldi á móti honum og fara með bátinn til baka yfir fljótið, en Sigurður hafnaði því, kvað Drottin mundu róa á móti sér og skila bát- inum. Þetta var látið eftir honum; reri Sigurður knálega á sitt borð, an ekki var róið á móti, og hringsnerist báturinn þarna á fljótinu. Um þessa sögu orti Guttormur skáld Guttorms- son i orðastað Sigurðar: Þótt þér yfir fljótið þyki skammt, mun þínu almætti þykja samt of þungur þessi róður, þó ég ei í líma leggi mig, það liggur við samt, að ég snúi á þig: því rærð’ ekki, Guð minn góður. * Óheppni. Jón gamli var mesta nískunös. Þegar Bjarni vinur hans átti afmæli fór hann inn i glervörubúð, til þess að kaupa einhverja gjöf handa hon- um, en allt þótti honum of dýrt. Loksins sá hann blómsturskál sem var brotin á nokkrum stöðum. Hon- datt þá i hug að kaupa hana, látæ búðarmanninn senda Bjarna hana i pósti, og láta eins og hún hefði brotn- að á leiðinni. Nokkrum dögum seinna fékk Jón eftirfarandi þakkarbréf frá Bjama: „'Ég þakka þér kærlega fyrir send- ingima. En hvað það var hugulsamt af þér, að vefja öll brotin í pappír,. hvert um sig.“ * Löng ferff. Seis-Bjarni hafði selt Spánarvín. að nóttu til, og var dæmdur í sekt. Hann vildi fá kvittun fyrir sektinni, en yfirvaldið neitaði því. „Trúið þér á dómsdag, sýslumað- ur?“ spurði Bjami. „Já,“ svaraði sýslumaðurinn. „Það er okkar lög- leidda trú.“ „Jæja,“ sagði Bjarni. „A þeim degi verður sagt við mig: Sels- Bjarni, þú seldir Spánarvín! Já, herra, segi ég, ég borgaði mína sekt fyrir það. Hvar er kvittunin? mun þá verða sagt; og finnst yður, sýslu- maður, vera nokkur meining í því, að ég sé að hlaupa alla leið niður til helvítis eftir yður eða fulltrúanum yðar á slíkum degi, til þess að ná I kvittunina?“ „Þú hefðir ekki þurft að taka þaff svona bókstaflega, þó að ég bæði þig að vera honum til skemmtunar með- an ég skrapp frá.“ 20 HEIMILISPÓSTURINN

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.