Heimilispósturinn - 16.04.1951, Blaðsíða 4

Heimilispósturinn - 16.04.1951, Blaðsíða 4
mótað. Vindlarnir, sem menn reyktu þá hér, voru nær ein- göngu unnir í þessum verk- smiðjum. Ástæðan til þess að verksmiðjan lagðist niður, nokkru eftir að ég kom hingað, að því er mig minnir, var sú, að þingmennirnir, komust að raun um, að tolltekjur myndu vaxa með því að gera innflytj- endum að greiða sömu gjöld af vindlum og óunnu tóbaki, en tollar af því höfðu verið mjög lágir. Vitanlega hækkuðu toll- tekjurnar, eins og ráð hafði verið fyrir gert, en grundvöll- urinn, sem verksmiðjurnar höfðu verið reistar á, var ekki framar til, og nú vita fáir, sem sjá brunarústirnar í Kirkju- stræti, að þar uppi var einu sinni „Cigarfabrikken Hekla“. Cigarfabrik? Var þetta ekki íslenzk verksmiðja? Jú, en allt mál, — sennilega einkum allt það, sem laut að verzlun — var mjög dönsku- skotið í þann tíð. Ég minnist þess t. d., að á úttektarnótur var sjaldan skrifað orðið „sjálfur“, þegar sá, sem skrifað var hjá, hafði tekið vöruna út, heldur „selv“. Það var gömul venja, — og þótti fínna. Voruð þér lengi hjá Gunnari frænda yðar? Nei. Ekki nema 3 ár. Þaðan fór ég til verzlunarinnar Edin- borg og árið 1913 gerðist ég starfsmaður Th. Thorsteinsson- ar og vann um tíma í nýlendu- vörudeildinni í kjallaranum á Vesturgötu 3, þar sem verzlun Fossbergs er nú. í þá daga unnu margir hjá Thorsteinsson, sem síðar hafa orðið mjög kunnir verzlunarmenn hér í bænum, enda verzlun hans mjög til fyr- irmyndar um flest. Við þurftum margt að gera, sem verzlunar- menn myndu nú kunna illa við, t. d. að byrja daginn með því að kveikja upp í kolaofninum, að ógleymdum „hlauparastörf unum“. Hvað var það? Kaffi var malað í kvöm í búðinni, en kvörninni var snú- ið með þeim hætti, að hún var stigin líkt og reiðhjól, og vor- um við því stundum uppnefnd- ir og kallaðir „hlaupararnir“. Vinnutími verzlunarfólks var þá miklu lengri en nú gerist, eða frá kl. 9 á morgnana til 8 að kvöldi. Hvað finnst yður einkum ólíkt með verzlunarháttum þá og nú ? Þessari spurningu verður ekki svarað, svo sæmilegt megi kalla, nema í löngu máli og með mörgum dæmum, en fyrsta orðið, sem mér dettur í hug að svara með, er: Allt. Það eru þó ugglaust ýkjur, en verzlunar- hættirnir eru svo ólíkir, að ó- mögulegt er að nefna þá í sömu andránni, nema til þess að gera ljósan mismun tveggja andstæðna, myrkurs og Ijóss, frelsis og kúgunar. Hér ríkti þá algjört verzlim- arfrelsi. Kaupmaður gat flutt út íslenzkar afurðir og keypt erlendis fyrir andvirðið þann varning, sem hann kærði sig um að fá, án þess að þurfa nokkurn um að spyrja. Hann gat einnig fengið skipt íslenzku fé í erlenda mynt í bönkum og ráðstafað til vörukaupa hvar sem var eftir sínum geðþótta. 2 HEIMILISPÓSTURINN

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.