Heimilispósturinn - 16.04.1951, Page 3
KARLMENN!
1 þessum hluta
ritsins er lestrarefni
fyrir karlmenn.
-
HEIMILIS
fósTuRJNN
2. HEFTI
REYKJAVlK MARZ —APRÍL 1951
„Árið, sem við
kángurinn
komum. 66
Viðtal við Egil Guttormsson,
heildsala.
Fóruð þér að heiman til vanda-
lausra hér í Reykjavík?
Nei. Föðurbróðir minn, Gunn-
ar Einarsson, verzlaði þá hér í
bænum, og til hans fór ég fyrst.
Hann hafði m. a. búð niðri í
húsinu nr. 4 við Kirkjustræti,
þar sem brunarústirnar eru
núna, en uppi var vindlaverk-
smiðjan.
Vindlaverksmiðja? Viljið þér
segja mér eitthvað um það?
Velkomið. Þegar ég kom
hingað árið 1907, eða eins og
ég segi stundum við kunningja
mína: Árið, sem við kóngurinn
komum til Reykjavíkur, voru
þar tvær vindlaverksmiðjur.
Aðra átti Gunnar Einarsson, og
unnu þar um 30 stúlkur, en hina
Thomsen, og þar unnu um 50
stúlkur. Norður á Akureyri var
þriðja verksmiðjan, og átti Tuli-
nius hana, en um stærð hennar
veit ég ekki.
Dœmin um, að leiðin til
mennta og mannvirðinga liggi
ekki alltaf upp skólaþrepin, eru
bœði gömul og ný. Einar i Nesi
sannaði samtíð sinni, að ís-
lenzkur bóndi getur með sjálfs-
námi komizt mjög langt á
menntabrautinni. Sonarsonur
hans, Egill Guttormsson stór-
kaupmaður, fór ekki heldur
í neinn skóla, en liann hefur þó
aflað sér svo víðtœkrar og stað-
góðrar þekkingar t atvinnugrein
sinni, að hamn er nú talinn i
hópi hinna fjölfróðustu íslenzkra
stórkaupmanna. Hann hefur afl-
að sér mikilla vinsœlda og not-
ið trausts, utan stéttar sinnar
og innan, jafnan staðið framar-
lega í samtökum verzlunar-
manna, átt sœti t skólanefnd
Verzlunarskólans i rúma tvo
áratugi og er nú formaður
Félags íslenzkra stórkaup-
manna.
Egill er fæddur að Ösi i Hörg-
árdal 1. október 1892. Hugur
hans hneigðist snemma til verzl-
unar, og 15 ára gamall kom hann
hingað til bœjarins. Upp frá því
vann hann hér að verzlunar-
störfum hjá ýmsum fyrirtœkj-
um, unz hann, árið 1928, hvarf
emgöngu að sjálfstœðum at-
vinnurekstri. Hcmn hefur stðan
unnið við umboðs- og heild-
sölufirma sitt, verzlað með
ýmsar vörutegundir, en einkum
þó allskonar skrifstofugögn, rit-
föng og pappír.
Tóbakið var flutt inn beint
frá ekrunum. Hér var það
þurrkað, flokkað, pressað og
HEIMILISPÓSTURINN
1